Fréttablaðið - 06.11.2014, Side 10
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
25-30%
Hlutdeild sjávar-
klasans í vergri
þjóðarframleiðslu
25.000
Starfsmenn
í sjávarklasanum
1.363.000 tonn
Afli íslenskra
skipa árið
2013
272.000.000
Útflutningsverðmæti
sjávarafurða
-121.000 tonn
Samdráttur
í uppsjávarafla
+86.000 tonn
Aukning
í bolfiskafla
+12%
Vöxtur
tæknifyrirtækja
sjávarklasans
19.000.000
Áætluð velta
í flutningum
með sjávarafurðir
+73%
Nemendafjölgun
í sjávarútvegstengdu
námi frá 2008
LYKILTÖLUR ÍSLENSKA SJÁVARKLASANS ÁRIÐ 2013
Að meðtalinni síðustu makrílvertíð
hefur þessi nýbúi í íslenskum sjáv-
arútvegi fært þjóðarbúinu um 100
milljarða króna í auknar útflutn-
ingstekjur frá árinu 2007. Eigin-
fjárstaða sjávarútvegsfyrirtækja
hefur innan þessa tímabils tekið
stakkaskiptum; er nú jákvæð um
107 milljarða króna en var nei-
kvæð um 80 milljarða króna í lok
hrunársins 2008. Er það að þakka
endur skipulagningu fyrirtækjanna
og niðurgreiðslu skulda.
Þessu má m.a. finna stað í Sjáv-
arklasinn á Íslandi: Efnahagsleg
umsvif og afkoma 2013; fjórðu
greiningunni á umfangi og afkomu
sjávarútvegsins og hliðargreina
hans sem Íslenski sjávarklasinn
mun senda frá sér. Það eru hag-
fræðingar Sjávarklasans, þeir
Bjarki Vigfússon og Haukur Már
Gestsson, sem unnu samantektina
ásamt framkvæmdastjóranum, Þór
Sigfússyni.
Þáttaskil
Nýliðið fiskveiðiár markar þáttaskil
í atvinnugreininni að mati höfunda.
Því ráða tilkynningar um stóraukna
fjárfestingu í nýjum fiskiskipum
sem væntanleg eru til landsins á
næstu árum.
„Í sjávarútvegsfyrirtækjunum
er það kannski markverðast að eig-
infjárstaðan er víða orðin góð og
fjárfesting í nýjum skipum, sem er
orðin alveg bráðnauðsynleg, er farin
að taka við sér. Nú er búið að til-
kynna um smíði ellefu nýrra skipa
og í þeim kaupum birtast einnig
breyttar framtíðaráherslur sjávar-
útvegsfyrirtækjanna, frystitogar-
arnir eru á undanhaldi og á síðustu
tveimur árum sáum við mikinn kipp
í útflutningi á ferskum fiski,“ segir
Bjarki.
Í skýrslunni er bent á að nýsmíði
skipa eru send jákvæð skilaboð um
bætta hráefnanýtingu og aukna
verðmætasköpun sem birtist m.a.
í breyttum áherslum í vinnslu upp-
sjávarfisks til manneldis og aukinni
ferskfiskvinnslu bolfisks síðustu
misserin. Tilfærsla frá sjófryst-
ingu til landvinnslu á stuttum tíma
segir einnig margt um getu greinar-
innar til að bregðast við breyttum
ytri aðstæðum og samkeppnisstöðu
á alþjóðlegum mörkuðum.
Makríllinn breytti miklu
„Eftirhrunsárin í íslenskum sjávar-
útvegi hafa öðrum þræði verið lituð
bláum strípum makrílsins, millj-
örðunum sem hann hefur skilað til
þjóðarbúsins og deilunum sem hann
hefur valdið. Frá árinu 2007 hefur
samanlagt útflutningsverðmæti
makríls á Íslandi numið rúmum 76
milljörðum króna og er árið 2014
þá ótalið. Þar af nam útflutningur
á árinu 2013 rúmum 21 milljarði
króna og útlit er fyrir að árið 2014
verði svipað,“ segja skýrsluhöfund-
ar. Þetta er á allra vitorði. Tækni-
byltingin sem er að verða í greininni
er kannski fréttir fyrir fleiri.
Tæknibylting
Tæknifyrirtæki í sjávarklasanum
hafa eflst myndarlega frá árinu
2008 og heildartekjur greinarinnar
vaxa nú annað árið í röð um 12-13%.
Eru dæmi þess að fyrirtæki með
ársveltu upp á hundruð milljóna
króna hafi tvöfaldað tekjur sínar á
skömmum tíma. Margir stjórnendur
tæknifyrirtækja í sjávarklasanum
líta björtum augum á árið 2014 og
„bólgnar pantanabækur gefa fyr-
irheit um gott framhald á næstu
misserum. Ástæða er til að búast
við meiri vexti milli áranna 2013 og
2014, sérstaklega í ljósi fjárfestinga-
áætlana í íslenskum sjávarútvegi,“
segir í skýrslunni.
„Hvað varðar tæknifyrirtækin
erum við að sjá ótrúlegan vöxt í
veltu þeirra, þriðja árið í röð. Þarna
er að fjölga í hópi fyrirtækja sem
telja má stór á íslenskan mæli-
kvarða, sprotarnir eru að verða að
meðalstórum og stórum fyrirtækj-
um með tugi starfsmanna. Hluti af
þessu er líka ákveðin samþjöppun
þar sem stærri fyrirtæki eru að
kaupa öfluga sprota og vaxa þann-
ig,“ segir Haukur Már en bætir við
að áframhaldandi vöxtur í tækni-
geiranum sé ekki laus við áskoran-
ir. Ógreiður aðgangur að fjármagni,
gjaldeyrishöft og takmörkuð geta til
að takast á við stór verkefni standa
mörgum þeirra fyrir þrifum. Lykil-
orðið til að eiga möguleika á að tak-
ast á við stór verkefni er hins vegar
samstarf tækni- og sjávarútvegs-
fyrirtækja, eins og þegar hafa verið
sett á fót innan Sjávarklasans.
Fullvinnsla og líftækni
Með hverju árinu sem líður sann-
ast að fullvinnsla afurða er að verða
íslenskum sjávarútvegi sífellt mikil-
vægari. Síðustu áratugi hefur afla-
meðferð og aflanýting gjörbreyst,
og nú er svo komið að það hráefni,
sem oft var áður hent, stendur að
baki tugmilljarða verðmætasköp-
unar. Jafnvel það sem var þó nýtt
er margfalt verðmætara nú en
áður. Lýsi er eitt dæmi þess
þar sem samnefnt fyrir-
tæki er risi á íslensk-
um heilsuvörumarkaði
– með útflutning til 80
landa og leyfi til lyfjafram-
leiðslu.
Á síðustu áratugum hafa einnig
byggst upp öflug fyrirtæki í þurrk-
un fiskafurða en um 10-12 fyrirtæki
eru nú á því sviði og fjöldi starfs-
manna þeirra líklega um 250-300.
Flest þurrkunarfyrirtæki búa yfir
afar öflugum tæknibúnaði sem
þróaður hefur verið af innlendum
tæknifyrirtækjum. Ætla má að á
bilinu 50-60 þúsund tonn (ferskt)
af hausum séu þurrkuð og flutt út
árlega hér á landi. Útflutningsverð-
mæti þeirra var um átta milljarðar
króna árið 2013.
Líftækniiðnaður tengdur nýtingu
aukaafurða er einn mest spenn-
andi vettvangur sjávarklasans á
Íslandi og nokkur fyrirtæki vinna
að þróun og sölu slíkra líftækni-
afurða. Skýrsluhöfundar telja að á
Íslandi sé að mörgu leyti einstakur
grundvöllur til uppbyggingar öfl-
ugs líftækniklasa. Sá grundvöll-
ur byggist annars vegar á miklum
auðlindum, bæði til lands og sjávar,
og á sérstakri vistfræði landsins,
og hins vegar á mann-
auði og stofnanaumhverfi sem byggt
gæti undir slíkan klasa. Skynsam-
legt væri að marka öfluga stefnu
til framtíðar um uppbyggingu líf-
tækniiðnaðarins á Íslandi í sam-
vinnu ríkis, háskólasamfélagsins,
heilbrigðisgeirans og atvinnulífsins.
Áhugi á menntun vex
Kannski er það til marks um vöxt og
uppgang sjávarklasans á Íslandi að
stóraukin aðsókn hefur verið í sjáv-
arútvegstengt nám allt frá árinu
2008. Heildarfjöldi nemenda á fjöl-
mörgum námsbrautum á framhalds-
skóla- og háskólastigi jókst um 73%
milli áranna 2008 og 2013. Merkja
má stóraukinn áhuga ungs fólks
á haftengdum greinum og margt
bendir til að áhugi á sjávar tengdri
nýsköpun hafi sjaldan eða aldrei
verið meiri.
Spurðir um áskoranir sjávar-
klasans heilt yfir telja þeir Bjarki
og Haukur að eitt af því sem líta
megi til sé hve
mörg lítil fyrirtæki
tilheyra þessum klasa, bæði í tækni,
líftækni og annarri þróun ýmis-
konar. Að þeirra mati þurfa þau að
leita leiða til að vaxa og vinna betur
saman, þar liggi tækifærið. Um leið
og þessi nýsköpunarfyrirtæki eru
orðin svolítið stærri, stöndugri og
þroskaðri opnist þeim miklu stærri
tækifæri til fjármögnunar heldur
en þegar þau eru enn agnarsmá.
Og með þeirri fjármögnun geti þau
svo orðið risar líkt og þeir sem nú
standa styrkum fótum á íslenskum
markaði.
Nýbúinn hefur gefið 100 milljarða
Viðsnúningur á eiginfjárstöðu íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja er hátt í 200 milljarðar frá hrunárinu 2008. Vöxtur tæknigeirans í greininni
er eftirtektarverður eitt árið enn. Fjárfestingar aukast í skipum og tæknibúnaði. Stóraukin ásókn er í sjávarútvegstengt nám.
Hvað varðar tæknifyrirtækin sjáum við ótrúlegan vöxt í
veltu þeirra, þriðja árið í röð. Þarna er að fjölga í hópi
fyrirtækja sem telja má stór á íslenskan mælikvarða,
sprotarnir eru að verða að meðalstórum og stórum
fyrirtækjum með tugi starfsmanna.
Bjarki Vigfússon og Haukur Már Gestsson,
hagfræðingar Íslenska sjávarklasans
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Gæði fara aldrei úr tísku
Vaskar og
blöndunartæki
ÖRYGGISMÁL Hópur þingmanna úr öllum stjórnmála-
flokkum á Alþingi hefur lagt fram þingsályktunar-
tillögu um áhættumat
vegna ferðamennsku á
Íslandi.
Í framhaldi áhættu-
matsins verði metið
hvort ástæða er til að
setja sérstakar reglur um ferðir á þau svæði á Íslandi
sem helst er áhættusamt að heimsækja.
Þingsályktunartillagan var lögð fram á síðasta þingi,
og þá einnig af þingmönnum allra flokka. Hún fór svo
langt að fá umfjöllun í umhverfis- og samgöngunefnd
sem sendi út umsagnarbeiðnir vegna hennar. Þær gáfu
til kynna að úrlausnar þessarar hugmyndar yrði ekki
beðið mikið lengur.
Í greinargerð með tillögunni segir meðal annars að
markmiðið sé að fækka slysum og óhöppum ferðamanna
í óbyggðum og utan alfaraleiðar. Með því yrði fækkað
þjáningum einstaklinga og kostnaði samfélagsins vegna
leitar- og björgunarstarfa.
Sérstaklega er þetta talið brýnt í ljósi fjölgunar ferða-
manna og hve mikið hefur teygst úr ferðamannatím-
anum yfir á haust og vetur. - shá
Þingmenn allra flokka vilja úttekt frá ríkislögreglustjóra í víðtæku samstarfi:
Vilja ferðamennsku í hættumat
LEIT Fyrirkomulag á Grænlandi og á Svalbarða er tekið sem
dæmi í tillögunni. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
➜ Markmið úttektar er
sagt að fækka slysum og
óhöppum ferðamanna.