Fréttablaðið - 06.11.2014, Blaðsíða 34
FÓLK|TÍSKA
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður aug lýsendum að kynna vörur og
þjónustu í formi viðtala og umfjallana ásamt hefðbundnum auglýsingum. Blaðið
fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Jón Laufdal | Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Kolbeinn Kolbeinsson, kkolbeins@365.is, s. 512 5447
Guðbjörg vinnur hjá Fataflokkun Rauða krossins þar sem mikið fellur til af lopapeysum sem
ekki eru seljanlegar. „Við látum vissu-
lega gera við margar peysur en sumar
er ekkert hægt að laga. Mig langaði
að finna einhverjar nýjar leiðir til að
nýta þær og datt í hug að búa til nýjar
flíkur úr þeim. Þótt ermi sé ónýt er
mikið annað eftir af peysunni og oft
má finna mjög skemmtileg mynstur
og fallegar samsetningar í illa förn-
um lopapeysum,“ segir Guðbjörg.
Hún tók sig því til og safnaði saman
peysum sem hún spretti í sundur og
skeytti saman. „Ég nota lágmark þrjár
peysur og allt upp í sjö til átta í hina
nýju flík.“
Guðbjörg velur vel þær peysur sem
hún skeytir saman. „Peysuhlutarnir
verða að tóna saman,“ segir hún en
gráir litir hafa verið mest áberandi
hingað til í hönnun hennar.
Peysurnar eru allar unnar í hönd-
unum. „Ég prjóna þær saman en
sauma ekki í saumavél. Ég passa að
allar lykkjur liggi rétt og því má segja
að þetta sé nánast ný peysa fyrir utan
þessa fleti sem ég endurnýti.“
Guðbjörg er búin að gera þrjár
endurunnar peysur en er byrjuð á þó
nokkrum til viðbótar. „Ég er líka með
húfur og trefla í smíðum enda er nán-
ast hægt að nýta allt af peysunni. Það
er fínt að gera húfur úr berustykkjum
og trefla má gera úr hinum ýmsu
afgöngum.“
Enn er þessi hönnun Guðbjargar á
tilraunastigi en hana langar að þróa
hönnun sína enn frekar og minna um
leið á endurnýtingu og endurvinnslu.
„Við verðum að nýta þennan dýrgrip
sem við höfum í höndunum.“
Þeir sem vilja vita meira geta sent
Guðbjörgu tölvupóst á gudbjorg.rut@
gmail.com. ■ solveig@365.is
EIN PEYSA VERÐUR
TIL ÚR MÖRGUM
LOPAPEYSUENDURVINNSLA Guðbjörg Rut Pálmadóttir hönnuður nýtir
gamlar og illa farnar lopapeysur til að búa til nýjar og fallegar flíkur.
FALLEGAR
FLÍKUR
Guðbjörg
notar frá
þremur og
upp í átta
peysur til að
búa til hverja
flík.
MYND/VALLI
HÖNNUÐUR
Guðbjörg starfar hjá
Fataflokkun Rauða
krossins þar sem falla
til fjölmargar illa farnar
lopapeysur. Þær nýtir
Guðbjörg til að búa til
nýjar flíkur.
MYND/VALLI
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flottar yfirhafnir,
fyrir flottar konur
Stærðir 38-58
Bæjarlind 6 • S. 554 7030
www.rita.isVið erum á Facebook
KJÓLADAGAR
20% afsláttur af
öllum kjólum í dag og
á morgun föstudag
Str. 36-56