Fréttablaðið - 06.11.2014, Síða 41
KYNNING − AUGLÝSING Húðvörur6. NÓVEMBER 2014 FIMMTUDAGUR 3
Neostrata- húðvörurnar innihalda efni sem kall-ast ávaxtasýrur, en rann-
sóknir sýna að þær hafa veru-
lega bætandi áhrif á húðina.
A H A-s ý r u r (a lpha-hyd rox y
acids) og PHA (poly-hydrox y
acids) eru einstakir rakagjafar
og f lýta fyrir endurnýjun húð-
f r umnanna. „Þannig v inna
Neostrata-húðvörurnar gegn
ótímabærri öldrun húðarinn-
ar, þurrki og skemmdum í húð
af völdum sólarljóss,“ segir Guð-
rún Einarsdóttir, sölufulltrúi
Icepharma, sem er með umboð
f yrir Neostrata-húðvörurnar.
„Neostrata-húðvörurnar gefa
húðinni jafnari hörundslit og
heilbrigt og frísklegt yfirbragð.
Þær eru þróaðar af húðlæknum
og framleiddar eftir ströngustu
gæðakröfum en eru ekki próf-
aðar á dýrum, innihalda hvorki
ilmefni né lit og eru ofnæmis-
prófaðar.“
Þær Neostrata-húðvörur sem
inniha lda sterka A H A-sý r u
(glycolic acid) hafa um árabil
verið notaðar af húðlæknum
með góðum árangri við ýmsum
húðvandamálum. „Þessar húð-
vörur innihalda átta til tuttugu
prósent AHA-sýru og fást í apó-
tekum gegn ávísun frá lækni.
Húðlæk na r veita au k þess
áhrifaríkar sýrumeðferðir með
allt að sjötíu prósent styrk. Efnin
komast þannig dýpra inn í húð-
ina og örva nýmyndun bandvefs
sem oft leiðir til þess að yfirborð
húðarinnar verður sléttara og
fínlegra,“ útskýrir Guðrún.
Hvað eru ávaxtasýrur?
AHA- og PHA-sýrur eru einstak-
ir rakagjafar og flýta fyrir endur-
nýjun húðfrumnanna og vinna
því gegn ótímabærri öldrun húð-
arinnar, þurrki og skemmdum í
húð af völdum sólarljóss.
Glycolic-sýra er eitt af inni-
haldsefnum sykurreyrs. Glyco-
lic-sýra hefur minnstu sameind-
ina af AHA-fjölskyldunni og fer
því hraðast inn í húðina. „Rann-
sóknir sýna að Neostrata-húð-
vörur sem innihalda glycolic-
sýru og eru notaðar í daglegri
umhirðu draga úr fínum línum,
hrukkum og gefa húðinni heil-
brigt útlit.“
Gluconolactone er önnur kyn-
slóð af ávaxtasýrum. Glucono-
lactone er PHA-sýra sem er nátt-
úrulegt andoxunarefni og segir
Guðrún hana vera einstakan
rakagjafa. „Gluconolactone ertir
ekki húðina og hæfir öllum húð-
gerðum, einnig viðkvæmri húð.
Neostrata-húðvörur sem inni-
halda gluconolactone gefa húð-
inni jafnara og frísklegra yfir-
bragð.“
Lactobionic-sýra er samsett
PHA-sýra sem er afleiða laktósa
(mjólkursykurs) og gluconic-
sýra. „Lactobionic-sýra er áhrifa-
ríkt andoxunarefni með einstaka
rakamyndandi eiginleika sem
mýkja og slétta húðina.“
„Sítónusýra eða citric acid er
sýra sem notuð er bæði í mat
og snyrtivörur. Andoxunareig-
inleiki hennar hjálpar til við að
minnka eyðileggjandi áhrif sólar
og mengunar. Rannsóknir sýna
að citric acid dregur úr öldrun
húðarinnar og minnkar fínar
línur og hrukkur,“ segir Guðrún.
Hún bætir við að mandelic-sýra
sé sýra sem dragi úr olíufram-
leiðslu í húðinni. „Auk þess hefur
hún bakteríueyðandi áhrif og
hentar því óhreinni húð. Rann-
sóknir sýna að mandelic-sýra
dregur úr öldrun húðarinnar.“
Neostrata-húðvörur sem inni-
halda PHA-sýrur eru seldar í
apótekum. Þær henta öllum húð-
gerðum, einnig viðkvæmri húð.
Neostrata-húðvörur sem inni-
halda AHA-sýrur fást í apótekum
gegn ávísun frá lækni.
Húðvörur sem húðlæknar mæla með
Neostrata-húðvörurnar eru þróaðar af húðlæknum og framleiddar eftir ströngustu gæðakröfum. Þær innihalda ekki ilmefni og eru
ofnæmisprófaðar. Neostrata-vörurnar gefa húðinni jafnari hörundslit og heilbrigt og frísklegt yfirbragð.
Guðrún segir Neostrata-húðvörurnar meðal annars vinna gegn ótímabærri öldrun
húðarinnar. MYND/GVA
Neostrata-húðvörur sem henta feitri og/eða bólóttri húð,
sem hætt er við blettum og útbrotum, leysa upp óhrein-
indi og halda húðfitu og opnum fitukirtlum í skefjum.
Þrjár vörur frá Neostrata henta feitri og erfiðri húð.
Neostrata fyrir
feita og bólótta húð
Spot treatment gel
Neostrata spot treatment gel inniheldur 2%
salisýlsýru, neohydroxy complex, sem er einstök
samsetning af AHA-sýrum, auk A-vítamíns. Spot
treatment gel hreinsar bólótta húð, dregur úr
bólumyndun, auðveldar endurnýjun frumnanna
og bætir útlit húðarinnar. Hlaupið er borið á bólur
sem eru að myndast. Spot treatment gel má nota
eitt og sér eða samhliða öðrum Neostrata-vörum.
Hlaupið er í handhægum umbúðum sem fara vel
í vasa eða tösku.
Sheer hydration
SPF 15
Létt og olíulaust húðkrem
sem bæði jafnar húðina og
kemur í veg fyrir sjáanleg
öldrunarmerki á húð. Kremið
hentar húð sem er í eðli sínu
feit eða viðkvæm fyrir röku
loftslagi. Phytotal, sem er
náttúruleg blanda, hjálpar til
við að minnka fitu í húðinni, án
þess að erta hana. Inniheldur
einnig NeoGlucosamine, en
það er vísindalega sannað að
NeoGlucosamine hjálpar til við
að minnka sjáanlega dökka
öldrunarbletti og
graftarbólur og
um leið bætir
það áferð húðar-
innar og gerir
hana stinnari.
Fjölvirk UVA/
UVB-sólarvörn
ver húðina
gegn
öldrun.
Kremið er
væntanlegt
í sólar-
varnarstuðli
SPF-35.
Clarifying facial cleanser
Bakteríueyðandi, freyðandi og
rakagefandi húðhreinsir sem
inniheldur hvorki sápu né ilmefni.
Húðhreinsinn má nota á allar
húðgerðir. Hann er sérstaklega góður
fyrir feita og bólótta húð, hæfir einnig
vel húð sem þolir ekki sápu. Clarifying
facial cleanser inniheldur bakteríu-
eyðandi efni (triclosan), mýkjandi
jurtakraft (chamomile), auk PHA-sýru
(4% gluconolactone) en hún er nátt-
úrulegt andoxunarefni sem gefur
húðinni góðan raka.
Neostrata-vörur eru góðar við umhirðu húðar sem
hætt er við rósroða, með öflugum efnum sem vinna
gegn sýnilegum einkennum öldrunar á viðkvæmri og
auðertri húð.
Neostrata við
rósroða
Facial cleanser - pha 4
Þessi hreinsir hentar jafnt fyrir
venjulega húð og þeirri sem hætt
er við rósroða. Inniheldur hvorki
olíu né sápu og hreinsar húðina
án þess að þurrka hana. Mildur en
áhrifaríkur húðhreinsir sem gefur
húðinni raka. Hreinsar húðina og
fjarlægir farða án þess að raska
eðlilegri húðfitu. Hæfir öllum
húðgerðum, einnig við-
kvæmri og þurri húð.
Bio-hydrating
cream - pha 15
Bio-hydrating cream-
PHA 15 vinnur gegn
ótímabærri öldrun
húðarinnar, gefur húðinni
endingargóðan raka og
næringu og yfirbragð
hennar verður mýkra,
frísklegra og jafnara. Enn
fremur getur regluleg
notkun dregið úr fínum
línum. Bio-hydrating cream
inniheldur háan styrk af
PHA-sýru (15% gluconolac-
tone) auk E-vítamíns.
Neostrata-vörur fyrir venjulega húð henta öllum húð-
gerðum og fólki á öllum aldri. Þessar vörur er hægt að
nota ásamt húðslípun, leysigeislameðferð og öðrum
húðaðgerðum sem krefjast þess að húðin fái bestu
hugsanlega umhirðu.
Neostrata fyrir
venjulega húð
Bionic Face
Cream - pha 12
Bionic Face Cream - PHA 12
vinnur gegn ótímabærri öldrun
húðar, endurnýjar húðfitu og
yfirbragð húðarinnar verður
mýkra og frísklegra. Hentar mjög
vel eftir sterka sýrumeðferð,
húðslípun og leysigeislameðferð.
Regluleg notkun getur dregið
úr fínum línum og gefur húðinni
jafnara yfirbragð. Bionic Face
Cream inniheldur tvær PHA-
sýrur (8% gluconolactone, 4%
lactobionic acid) auk E-vítamíns.
Þetta eru þrjú andoxunarefni
sem gefa húðinni góðan raka og
vernda hana gegn sindurefnum.
Daytime Protection
Cream spf 23 - pha 10
Rakagefandi, olíulaust krem
sem gefur húðinni góðan
raka og veitir vörn gegn
UVA- og UVB-geislum sólar.
Daytime Protection Cream
inniheldur tvær PHA-sýrur
(8% gluconolactone, 2%
lactobionic acid) auk
E-vítamíns sem nærir
húðina og mýkir. Enn fremur
verndar E-vítamín húðina
gegn skemmdum af völdum
útfjólublárra geisla. Gefur
húðinni heilbrigt og ferskt
útlit.
Facial cleanser - pha 4
Inniheldur hvorki olíu né sápu og hreinsar
húðina án þess að þurrka hana. Mildur en
áhrifaríkur húðhreinsir sem gefur húðinni
raka. Hreinsar húðina og fjarlægir farða án
þess að raska eðlilegri húðfitu. Hæfir öllum
húðgerðum, einnig viðkvæmri og þurri húð.