Fréttablaðið - 06.11.2014, Page 44
FÓLK|TÍSKA
Jennifer er einstaklega hæfileikarík. Hún er 45 ára kvikmyndaleikkona, söngkona, dansari, fatahönn-uður og dómari í American Idol-sjónvarpsþættin-
um. Jennifer hefur gefið út sjö hljómplötur og hefur
unnið til margvíslegra verðlauna fyrir tónlistarflutning.
Jennifer hefur verið í allnokkrum samböndum
en er einstæð tveggja barna móðir í dag. Sam-
bönd hennar hafa jafnan vakið athygli, enda
herrarnir þekktir, Ojani Noa, Cris Judd, Sean
Combs, Ben Affleck og Marc Anthony. Börn
hennar, Max og Emme, eru tvíburar fæddir árið
2008. Jennifer segist hafa lært mikið um sjálfa
sig á meðan hún skrifaði bókina en um sama
leyti var hjónaband hennar og Marcs Anthony
til átta ára að leysast upp. Hún viðurkennir að
skilnaðurinn hafi verið mjög erfiður. „Ég hélt
ég væri sterk stelpa úr Bronx-hverfinu en ann-
að hefur komið í ljós,“ sagði Jennifer í viðtali
við hina þekktu fréttakonu Mariu Shriver í
þættinum Today á NBC-sjónvarpsstöðinni.
Jennifer sagði að eftir skilnaðinn hefði hún
sökkt sér á kaf í skemmtanabransann og reynt
af öllum mætti að ná góðum árangri þar.
Gagnrýnendur segja að Jennifer Lopez hafi
aldrei litið betur út. Myndir sem teknar voru
af henni um helgina á gala-hátíð í Los Angeles í
síðum, flegnum og glitrandi Gucci-kjól hafa birst
um allan heim. Á gala-kvöldinu var leikstjórinn
Quentin Tarintino heiðraður. Ekki er langt síðan
Jennifer var umtöluð og gagnrýnd fyrir nýtt tón-
listarmyndband með laginu Booty þar sem rass-
inn er í aðalhlutverki. Eitt er víst að hún er ekkert
feimin við að sýna líkamann hálfnakinn. Hún er
ríkasta leik- og söngkona af suðuramerískum ættum
í Hollywood.
J-LO SKRIFAR UM SANNA ÁST
JÁTNINGAR Jennifer Lopez var að senda frá sér bókina „True Love“ en í henni segir hún frá lélegu sjálfsmati sínu, erfiðleikum í
samböndum og hræðslu við að vera ein. Aðdáendur hennar eiga líklega erfitt með að skilja slíkar játningar þar sem söngkonan er
þekkt fyrir djarfleika á sviði og er óhrædd við að sýna nekt.
AMERICAN
IDOL
Á leið í Idolið
í Los Angeles
fyrir nokkrum
dögum.
Í VIÐTALI
Á leið í viðtal
í fyrradag á
NBC-sjón-
varpsstöð-
inni í New
York.
Í NEW
YORK
Þessi mynd
var einnig
tekin í fyrra-
dag í Soho-
hverfi í New
York.
ÓFEIMIN
Jennifer Lopez
hefur verið gagnrýnd
fyrir myndband með
nýjasta laginu Booty
þar sem rassinn er í
aðalhlutverki.
Í GUCCI-KJÓL
Jennifer vakti at-
hygli um síðustu
helgi í þessum
glitrandi kjól á
heiðurshátíð í
Los Angeles.
MYNDIR/GETTY
KLÆDD
Þarna er J-Lo
á leið í upp-
töku á Amer-
ican Idol en
heldur meira
klædd en
venjulega.
Hinir heimsfrægu tónlistamenn
Lady Gaga og Tony Bennett
verða andlit H&M-verslanakeðj-
unnar fyrir jólin. Þetta heiðurs-
par gaf nýlega út hljómplötuna
Cheek to Cheek sem þegar hefur
vakið mikla athygli. Bæði Lady
Gaga og Tony Bennett komu til
Íslands árið 2012. Bennett var
með vel heppnaða tónleika í
Hörpu en Lady Gaga kom til að
taka við alþjóðlegri viðurkenn-
ingu úr Lennon-Ono friðarsjóðn-
um. Það var Yoko Ono sem
afhenti viðurkenninguna.
Tony Bennett, sem er 88 ára
að aldri, hefur á undanförnum
árum gert plötur með ýmsum
heimsfrægum yngri söngvurum.
Má þar nefna söngkonuna Amy
Winehouse en það var síðasta
hljómplata söngkonunnar áður
en hún lést.
Auglýsingar fyrir hljómplötu
Bennetts og Lady Gaga urðu for-
ráðamönnum H&M innblástur
til að horfa til þess glamúrs og
skemmtanalífs sem var í kringum
1940. Jólatískan ber keim af þess-
um tíma. Aldrei áður hefur H&M
notað andlit manns á níræðis-
aldri í auglýsingum.
LADY GAGA OG
TONY BENNETT Í
AUGLÝSINGUM H&M
FRÆG OG FLOTT Þau Lady Gaga og Tony Bennett í H&M-fötum. MYND/H&M
Hin frábæru útdregnu verðlauna hlið
frá fáanleg á Íslandi
Að vernda barnið á heimilinu er forgangsverkefni
allra foreldra og mikilvægt er því að geta
takmarkað aðgang barna að vissum stöðum
eins og að stigum og eldhúsi og jafnvel utandyra.
Útdregna hliðið frá Dreambaby er einstaklega létt og
endingargott. Hliðið er hannað til að passa í op sem
er allt upp í 140cm á breidd. Hliðið fæst annað hvort
í svörtu eða hvítu og rúllast upp þegar það er ekki í
notkun svo það tekur ekkert óþarfa pláss.
Einnig bíður dreambaby upp á margar gerðir
af skápa- og skúffu læsingum, hornhlífar,
gúmmímottur í baðið, gardínu- og rafmagns-
snúrustyttir, flatskjás og hillufestingar, baðsæti
og ýmsilegt fleira.
Dreambaby bíður upp á ýmsar
lausnir til að vernda börn fyrir
slysum í heimahúsum.
Kíkið á okkur á facebook undir Dreambaby öryggisvörur
https://www.facebook.com/DreambabyOryggisvorur