Fréttablaðið - 06.11.2014, Síða 72
6. nóvember 2014 FIMMTUDAGUR| SPORT | 56
Yngri leikmenn
þurfa líka að slá þá eldri
út. Ég vil sjá meiri
grimmd frá þeim.
Aron Kristjánsson,
landsliðsþjálfari
FÓTBOLTI Páll Kristjánsson, for-
maður KV, segir að liðið hafi varla
áhuga á að taka annað eins tíma-
bilð í 1. deild karla og það gerði
í sumar. KV féll úr 1. deildinni í
haust og segir Páll að sú spurning
hafi vaknað hjá sér hvort hann
hafi í raun áhuga á því að keppa
að því að komast aftur upp úr 2.
deildinni.
„Markmiðið er auðvitað að ná
árangri en miðað við hvernig sum-
arið var þá veltir maður því fyrir
sér hvort það sé einhver vilji til
þess að fara aftur upp í 1. deild-
ina,“ segir Páll.
KV stóðst ekki kröfur sem KSÍ
gerir til liða í 1. deild en fékk und-
anþágu til að spila í deildinni síð-
asta sumar. Hins vegar er óvíst
hvernig KSÍ tæki á máli KV ef
liðið kæmist aftur upp úr 2. deild-
inni. Þar að auki uppfyllti félagið
ekki mannvirkjakröfur sem varð
til þess að KV varð að spila heima-
leiki sína á gervigrasvellinum í
Laugardal.
„Ég veit ekki hvort ég nenni að
standa í öðrum eins ágreiningi
við KSÍ og við gerðum og spila
okkar heimaleiki í öðrum bæjar-
hluta með tilheyrandi kostnaði.
Það fór því í gegnum hugann af
hverju maður er að standa í þessu
þegar það stríðir í raun gegn til-
gangi félagsins að koma því upp
um deild. Við erum ekki í þessu til
að berjast um þriðja sætið,“ segir
Páll.
Hann tekur þó skýrt fram að
það sé enginn uppgjafartónn í for-
ráðamönnum KV. „Við verðum í 2.
deildinni og munum taka slaginn.
Það stendur alls ekki til að hætta
starfseminni,“ segir Páll og bætir
við að hann eigi ekki von á að KSÍ
mæti sjónarmiðum félagsins í
framtíðinni.
„KSÍ hefur borið fyrir sig að
svona lagað sé alltaf ákvörðun
knattspyrnuhreyfingarinnar og
þeir verði að fylgja vilja hennar.
En ég er ekki sammála því. Það er
ákvörðun stjórnar að veita undan-
þágur og hún kaus að að taka á
þessu á þennan máta. Þeir hjá KSÍ
eru örugglega manna fegnastir að
við fórum niður.“
KV náði átján stigum á sínu
fyrsta tímabili í 1. deildinni og
vann til að mynda ÍA á Skipaskaga.
Félagið fagnaði tíu ára afmæli sínu
fyrr á þessu ári. - esá
Hvatinn til að ná árangri ekki til staðar
Formaður KV segist hafa velt því fyrir sér hvort liðið ætti að draga sig út úr keppni í 2. deild karla.
FORMAÐUR OG ÞJÁLFARI Páll
Kristjánsson hjá KV. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL
FÓTBOLTI Landsliðsmaðurinn Kári Árnason er tæpur fyrir
næsta leik Rotherham í ensku B-deildinni vegna meiðsla á tá.
„Ég veit meira eftir myndatöku á morgun [í dag] en ég hef þó
ekki miklar áhyggjur af þessu,“ segir Kári en hann hefur verið
fastamaður í vörn íslenska landsliðsins. Ísland mætir Belgíu
í vináttulandsleik á miðvikudag og svo Tékklandi í undan-
keppni EM 2016 fjórum dögum síðar. Hann á ekki von á
öðru en að geta gefið kost á sér í verkefnin.
Kári fékk skurð fyrir ofan annað augað í leik Rother-
ham og Reading á mánudagskvöld og þurfti fimm
spor til að loka skurðinum.
Ísland trónir sem kunnugt er á toppi síns
riðils í undankeppninni með fullt hús stiga að
loknum þremur umferðum. Kári hefur tekið
þátt í nánast öllum leikjum liðsins síðan
Lars Lagerbäck tók við því. - esá
Kári í myndatöku vegna támeiðsla
HANDBOLTI Stefan Kretzschmar, fyrr-
verandi landsliðsmaður Þýskalands,
lofar mjög starf Dags Sigurðssonar
með þýska landsliðinu nú í upphafi
undankeppni EM 2015. Hann segir
sjálfstraust liðsins mun meira og
að 28-24 sigur liðsins á Austurríki á
dögunum hafa verið stórt skref fram
á við eftir vandræðagang landsliðsins
síðustu árin.
„Dagur herti þær skrúfur sem
þurfti að herða og byggði upp nýjan
liðsanda,“ skrifaði Kretzschmar í
pistli sem birtist á vefsíðu Sport1-
sjónvarpsstöðvarinnar.
„Loksins sýndi liðið okkar að það
hefur taugar til að vinna mikilvægan
leik. Liðið hefur ekki verið sann-
færandi á slíkum stundum á síðustu
árum. Leikmenn voru tilbúnir að
taka leikinn í sínar hendur og sýndu
allt það sem einkennir gott lið. Svo
virðist sem það sé á réttri leið.“
Þýskaland missti af Ólympíuleik-
unum 2012 sem og Evrópumeistara-
mótinu 2014. Það féll einnig úr leik
í undankeppni HM 2015 en komst
inn eftir að Alþjóðahandknattleiks-
sambandið, IHF, ákvað að afturkalla
keppnisrétt Eyjaálfu líkt og frægt er
orðið.
- esá
Kretzschmar hrósar Degi í hástert
DAGUR Fékk hrós frá gamalli lands-
liðskempu í Þýskalandi. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
ÚRSLIT
DOMINO’S-DEILD KVENNA
KR - BREIÐABLIK 53-48
KR: Björg Guðrún Einarsdóttir 14/7 fráköst, Þor-
björg Andrea Friðriksdóttir 11/6 fráköst, Bergþóra
Holton Tómasdóttir 8, Simone Jaqueline Holmes
6, Sólrún Sæmundsdóttir 5, Helga Einarsdóttir
4/10 fráköst, Anna María Ævarsdóttir 3.
Breiðablik: Unnur Lára Ásgeirsdóttir 13/9 fráköst,
Arielle Wideman 10/15 fráköst/7 stoð Jóhanna
Björk Sveinsdóttir 7/8 fráköst, Berglind Karen
Ingvarsdóttir 6, Kristbjörg Pálsdóttir 5, Elín Sóley
Hrafnkelsdóttir 5, Guðrún Edda Bjarnadóttir 2.
SNÆFELL - HAMAR 76-39
Snæfell: Kristen Denise McCarthy 17/7 fráköst,
Hildur Sigurdardottir 16/12 fráköst/5 stoðsend-
ingar, Gunnhildur Gunnarsdóttir 9/11 fráköst,
Hugrún Eva Valdimarsdóttir 8/14 fráköst, Rebekka
Rán Karlsdóttir 8, María Björnsdóttir 7/7 fráköst,
Berglind Gunnarsdóttir 6/6 stoðsendingar, Alda
Leif Jónsdóttir 5/5 stolnir.
Hamar: Andrina Rendon 14/7 fráköst, Þórunn
Bjarnadóttir 13/5 stoðsendingar, Salbjörg Ragna
Sævarsdóttir 10/6 fráköst, Kristrún Antonsdóttir 2.
KEFLAVÍK - GRINDAVÍK 106-57
Keflavík: Carmen Tyson-Thomas 29/18 fráköst,
Sara Rún Hinriksdóttir 13/14 fráköst, Marín
Laufey Davíðsdóttir 12/4 fráköst, Birna Ingibjörg
Valgarðsdóttir 11, Hallveig Jónsdóttir 11/7 fráköst,
Sandra Lind Þrastardóttir 10, Thelma Dís Ágústs-
dóttir 9, Ingunn Embla Kristínardóttir 4, Lovísa
Falsdóttir 3, Bríet Sif Hinriksdóttir 2.
Grindavík: Petrúnella Skúladóttir 14, Guðlaug
Björt Júlíusdóttir 10, Pálína Gunnlaugsdóttir 10,
María Ben Erlingsdóttir 8, Ingibjörg Jakobsdóttir
5/7 stoðsendingar, Jeanne Lois Figeroa Sicat 2,
Hrund Skuladóttir 2, Elsa Katrín Eiríksdóttir 2,
Ásdís Vala Freysdóttir 2, Lilja Ósk Sigmarsdóttir 2.
VALUR - HAUKAR 84-85
Valur: Joanna Harden 35/4 fráköst, Guðbjörg
Sverrisdóttir 24/5 fráköst/3 varin skot, Kristrún
Sigurjónsdóttir 9, Fanney Lind Guðmundsdóttir
8/5 fráköst/3 varin skot, Ragna Margrét Brynjars-
dóttir 4/16 fráköst/3 varin, Ragnheiður Benónís-
dóttir 2/11 fráköst, Margrét Ósk Einarsdóttir 2.
Haukar: LeLe Hardy 36/25 fráköst/7 stolnir, Sylvía
Rún Hálfdanardóttir 16/14 fráköst, Dagbjört
Samúelsdóttir 15, Sólrún Inga Gísladóttir 8, Inga
Rún Svansdóttir 4, Guðrún Ósk Ámundadóttir 2,
María Lind Sigurðardóttir 2, Auður Ólafsdóttir 2.
STAÐAN
Keflavík 6 5 1 552-397 10
Haukar 6 5 1 441-406 10
Snæfell 6 5 1 442-373 10
Valur 6 3 3 469-453 6
Grindavík 6 3 3 412-429 6
Breiðablik 6 1 5 364-435 2
KR 6 1 5 333-423 2
Hamar 6 1 5 336-433 2
MEISTARADEILD EVRÓPU
E-RIÐILL
MANCHESTER CITY - CSKA MOSKVA 1-2
0-1 Seydou Doumbia (2.), 1-1 Yaya Toure (7.), 1-2
Seydo Doumbia (34.).
BAYERN MÜNCHEN - ROMA 2-0
1-0 Franck Ribery (38.), 2-0 Mario Götze (64.)
Staðan: Bayern 12 stig, Roma 4, CSKA 4, City 2.
F-RIÐILL
PSG - APOEL 1-0
1-0 Edinson Cavani (1.).
AJAX - BARCELONA 0-2
0-1 Lionel Messi (36.), 0-2 Lionel Messi (76.).
Staðan: PSG 10 stig, Barcelona 9, Ajax 2, Apoel 1.
G-RIÐILL
SPORTING LISSABON - SCHALKE 4-2
0-1 Islam Slimani, sjm (17.), 1-1 Mouhamadou-
Naby Sarr (26.), 2-1 Jefferson (52.), 3-1 Nani
(72.), 3-2 Dennis Aogo (88.), 4-2 Slimani (90.+1)
MARIBOR - CHELSEA 1-1
1-0 Agim Ibraimi (50.), 1-1 Nemanja Matic (73.)
Staðan: Chelsea 8 stig, Schalke 5, Sporting 4,
Maribor 3.
H-RIÐILL
SHAKHTAR DONETSK - BATE 5-0
1-0 Darijo Srna (19.), 2-0 Alex Teixeira (48.), 3-0
Luiz Adriano, víti (58.), 4-0 Luiz Adriano (82.),
5-0 Luiz Adriano (90.+2).
ATHLETIC BILBAO - PORTO 0-2
0-1 Jackson Martinez (56.), 0-2 Y. Brahimi (73.)
Staðan: Porto 10 stig, Shaktar 8, BATE 3, Athletic
1.
SPORT
HANDBOLTI Aron Kristjánsson,
landsliðsþjálfari í handbolta,
segir að það hafi verið eitt af stóru
markmiðum sínum þegar hann tók
við starfinu fyrir tveimur árum að
auka breiddina í landsliðinu. Til
þess að það geti orðið að veruleika
og auðveldað þar með kynslóða-
skiptin sem fram undan eru þurfi
mun meira fjármagn en Hand-
knattleikssamband Ísland hefur
úr að spila í dag.
Eins og Fréttablaðið benti á
á mánudaginn er meðalaldur
íslenska landsliðsins hár og fram-
lag yngri leikmanna ekki mikið.
Það kom í ljós í grátlegu tapi
Íslands í Svartfjallalandi í undan-
keppni EM 2015 á sunnudag.
Aron segir að hann hafi tekið við
góðu búi þegar hann gerðist lands-
liðsþjálfari í ágúst árið 2012. „En
það voru fáir menn að spila í lið-
inu og þörf fyrir að auka breidd-
ina enda hafði það setið á hakanum
í mörg ár,“ segir Aron við Frétta-
blaðið.
„Það hef ég reynt að gera. Ég
hef gefið yngri leikmönnum tæki-
færi og verið með æfingaverkefni
fyrir þá. En það sem hefur vant-
að er leikjaverkefni. Vandamálið
er af fjárhagslegum toga því HSÍ
hefur ekki getað orðið við beiðnum
mínum um fleiri æfingaleiki fyrir
landsliðið.“
Ísland lék þrjá æfingaleiki gegn
Portúgal í júní fyrir leikina gegn
Bosníu í undankeppni HM 2015.
Þrátt fyrir að Ísland hafi tapað
fyrir Bosníu segir Aron að leik-
irnir gegn Portúgal hafi sýnt að
slíkra leikja er þörf.
„Leikir sem þessir stytta þau
skref sem yngri leikmenn þurfa að
taka þegar kemur að því að sýna
sig á stóra sviðinu.“
Meiri samkeppni frá þeim yngri
Aron sér ekki eftir þeim ákvörð-
unum sem hann hefur tekið á síð-
ustu tveimur árum né heldur vali
á leikmönnum í síðasta landsliðs-
verkefni.
„Ég valdi reynslumikla menn og
tel að það hafi verið rétt. Ég gat
heldur ekki séð að það þessir elstu
og reynslumestu leikmenn okkar
hafi verið slakir í þessu verkefni,“
segir Aron og bætir við:
„Yngri leikmennirnir þurfa líka
að slá þá eldri út. Ég vil sjá meiri
grimmd frá þeim – að þeir nýti sín
tækifæri til að taka sætið af þeim
eldri og skapi þannig samkeppni í
landsliðinu.“
Aron bendir á að það hafi verið
mikið um meiðsli hjá lykilmönnum
landsliðsins og að það hafi skapað
svigrúm fyrir yngri leikmenn – til
dæmis í stöðu vinstri skyttu. „Þar
hafa menn fengið mikil tækifæri
en ef til vill ekki náð að svara kall-
inu,“ segir hann.
Heyrðum í viðvörunarbjöllunum
Aron varar þó við of mikilli nei-
kvæðni og biður um raunsæja
gagnrýni. „Menn fara að velta
ýmsu fyrir sér þegar áföllin dynja
yfir og óneitanlega hafa viðvörun-
arbjöllurnar verið að hringja. Við
erum vel meðvitaðir um það enda
hefur ekki vantað viljann til að
bregðast við vandanum. Við höfum
gert eins mikið og kostur er en það
þarf að fórna meiri fjármunum til
þess að sinna því sem skyldi.“
Eins og fjallað var um í Frétta-
blaðinu í síðustu viku er HSÍ einn-
ig í vandræðum með aðstöðu sína
í Laugardalshöll sem stenst ekki
lengur alþjóðlegar kröfur. Aron
segir það enn einn flötinn á vanda-
málinu.
„Laugardalshöllin er barn síns
tíma. Áhorfendur eru allt of fáir,
umgjörðin er til vandræða, pláss-
ið ekki nægilegt og svo framvegis.
Þegar það blasir við er erfitt fyrir
íþróttina að þróast áfram,“ segir
Aron.
„Ef við miðum við önnur lönd þá
þarf einfaldlega meiri pening frá
ríkisvaldinu fyrir afreksíþróttir.
HSÍ hefur verið með öfluga bak-
hjarla og styrktaraðila í gegn-
um tíðina en það þarf meira til,
hvaðan sem það kemur. Miðað við
hvernig fjármununum hefur verið
eytt finnst mér í góðu lagi að bæta
í styrki fyrir afreksíþróttirnar
okkar.“ eirikur@frettabladid.is
Þurfum mun meira fj ármagn
Aron Kristjánsson segir að viljann hafi ekki vantað til að auðvelda yfi rvofandi kynslóðaskipti íslenska lands-
liðsins. Rót vandans liggi í takmörkuðum fj árráðum og kallar hann eft ir auknum stuðningi ríkisvaldsins.
ÚRBÓTA ER ÞÖRF Aron Kristjánsson landsliðsþjálfari segir erfitt að hlúa að framtíðarmönnum íslenska handboltalandsliðsins
miðað við núverandi fjárhagsumhverfi handboltahreyfingarinnar á Íslandi. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM