Fréttablaðið - 08.12.2014, Síða 10

Fréttablaðið - 08.12.2014, Síða 10
8. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 10 HEYRNARSTÖ‹IN Beltone First gengur með iPhone 5s, iPhone 5c, iPhone 5, iPad Air, iPad (4. kynslóð), iPad mini með Retina, iPad mini og iPod touch (5. kynslóð) með iOS eða nýrra stýrikerfi. Apple, iPhone, iPad og iPod touch eru vörumerki sem tilheyra Apple Inc, skráð í Bandaríkjunum og öðrum löndum. UMHVERFISMÁL „Það er ekki komin niðurstaða en menn eru með á því að við þessu þarf að gera eitthvað,“ segir Björn Ingimarsson, bæj- arstjóri Fljótsdalshéraðs, sem rætt hefur við útvarpsstjóra um miklar ljóstruflanir frá langbylgjumastr- inu á Eiðum. Héraðsbúar hafa kvartað undan miklum styrkleika og krampa- kenndu blikki flugöryggis- ljósanna í lang- bylgju mastrinu nánast frá því það var form- lega tekið í notkun fyrir fimmtán árum. Bæjar yfirvöld hafa fengið fjöl- margar kvart- anir í áranna rás og tekið undir þær allar en úrbætur hafa látið á sér standa. Fyrir nítján mánuðum óskuðu bæjaryfirvöld eftir að útvarps- stjóri kæmi austur til fundar. Af því varð aldrei en fyrir tíu dögum hitti Björn bæjarstjóri loks Magn- ús Geir Þórðarson útvarpsstjóra í Reykjavík. „Það er ákveðin krafa um hvernig þessi ljós þurfi að vera og það sem við erum að kanna núna er hvort það er hægt að fá flug- málayfirvöld til að samþykkja ein- hverja mildari útfærslu. Þeir eru allir af vilja gerðir að bregðast við því,“ segir Björn sem kveður fund- inn með útvarpsstjóra hafa verið ágætan. „Það er verið að skoða hvort við finnum ekki leið sem gæti orðið ásættanleg.“ Björn segist einnig hafa rætt við starfsmann Isavia um að finna lausn. „Ljós sem lýsir einfald- lega stöðugt væri betri kostur en þetta,“ segir bæjarstjórinn. Sem fyrr segir er vandamálið ekki nýtt af nálinni. „Ljósin eru iðulega ekki í takti og auk trufl- unar við fólk er þetta ástand óþolandi ljósmengun,“ bókaði umhverfis ráð Austur-Héraðs árið 2004 eftir árangurslausar ábend- ingar til RÚV árin á undan. Sagt var frá því í DV í mars 2004 að gluggar á fjósum væru byrgðir svo að kýr mjólkuðu. „Þetta er eins og diskótek,“ lýsti Sigurður Ragnarsson, þáverandi formaður umhverfisráðs sveitarfélagsins. „Þetta er bara eins og hjá vit- leysingum,“ sagði Þórhallur Páls- son, arkitekt á Eiðum, sem sendi kvörtunarbréf til útvarpsstjóra fyrir þremur árum. Ljósin væru hreinlega stórfurðuleg í sínum krampakennda takti. Í framhaldi af samtali við Þór- hall í Fréttablaðinu var rætt við Kristján Benediktsson, verkfræð- ing hjá Ríkisútvarpinu. Hann sagði ljósin vera frá bandarísku fyrirtæki og að í þeim væri hönn- unargalli. „Ameríkani sem hjálp- aði okkur að læra á ljósin og gera við þau sagði að fyrirtækið hefði takmarkaðan áhuga á því að búa til betri ljós því það væru svo góð við- skipti í kringum viðhaldið,“ sagði Kristján við Fréttablaðið 1. des- ember 2011. gar@frettabladid.is Eiðamastursleiftrin á borð útvarpsstjóra Bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs hitti loks útvarpsstjóra til að ræða áralangt ónæði af bilanagjörnum öryggisljósum á langbylgjumastrinu á Eiðum. Íbúar eru uppgefnir á blikkljósum sem iðulega tapa takti og senda krampakennd leiftur yfir Héraðið. Í MASTRINU Ekki er hlaupið að því að gera við öryggisljós sem vara eiga flugmenn við hinu 220 metra háa langbylgjumastri á Eiðum. MAGNÚS GEIR ÞÓRÐARSON KASAKSTAN, AP Francois Hollande, forseti Frakklands, fékk góðar móttökur þegar hann var boðinn velkominn til Astana, höfuðborgar Kasakstans, fyrir helgi. Hollande er hér ásamt Nursultan Nazarbayev, forseta Kasakstans. Kasakskur hermaður býður forsetana velkomna með glæsibrag og virðist sem Hollande kunni vel að meta viðtökurnar. Hollande, sem er þriðji forseti Frakklands til að heimsækja Kasakstan, var í tveggja daga heimsókn í landinu. - glp Hermaður býður forsetana velkomna með glæsibrag: Forseti Frakklands heillaður VELKOMINN Francois Hollande er í tveggja daga heimsókn í Kasakstan. NORDICPHOTOS/AFP EFNAHAGSMÁL Fjármálaeftirlitið og Seðlabankinn endurnýjuðu í byrjun mánaðarins samstarfs- samning sinn og gengu um leið frá samkomulagi um framkvæmd lausafjáreftirlits lánastofnana. „Markmið samstarfssamn- ingsins er að formbinda sam- vinnu og upplýsingaskipti stofn- ananna og samhæfa viðbrögð við kerfisáhættu á vettvangi fjármálastöðugleikaráðs,“ segir í tilkynningu stofnananna. - óká FME og SÍ starfa saman: Lagi komið á samvinnuna VIÐSKIPTI Starfsmenn í fullu starfi hjá IKEA í Svíþjóð fá í ár 27 þúsund sænskar krónur eða tæplega hálfa milljón íslenskra króna í bónus sem greiddur verð- ur þegar þeir fara á eftirlaun. Starfsmenn IKEA í Garða- bæ fá ekki þessar greiðslur því verslunin tilheyrir ekki IKEA- keðjunni. Að sögn framkvæmda- stjóra rekstrarfélags IKEA fengu þeir hins vegar 5 prósenta kaup- hækkun 1. nóvember. - ibs Lífeyrisgreiðslur IKEA: Hálf milljón í eftirlaunabónus Ljós sem lýsir einfald- lega stöðugt væri betri kostur en þetta. Björn Ingimarsson, bæjarstjóri Fljótsdalshéraðs. SAMFÉLAGSMÁL Í gær voru ljósin tendruð á staðgengli Óslóartrés- ins á Austurvelli en upprunalega tréð skaddaðist í óveðri því er gekk yfir landið fyrir rúmri viku. Ljósin eru ekki eina skrautið sem prýðir tréð en að auki má þar sjá jólaóróa Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra (SLF). Órói þessa árs hefur fengið nafnið Giljagaur og er sá níundi í röð styrktarfélagsins. Að þessu sinni var það Linda Björg Árna- dóttir sem hannaði óróann og Bubbi Morthens samdi kvæði sem flutt var við athöfnina af Matthíasi Löve, nemanda í Hagaskóla. Sala á Giljagaur hófst á föstu- dag og stendur yfir í tvær vikur. Upplýsingar um söluaðila um allt land má finna á heimasíðunni jolaoroinn.is en jafnframt er hægt að kaupa óróann á skrifstofu SLF að Háaleitisbraut 13. Þar er einnig hægt að nálgast óróa fyrri ára. Allur ágóði af sölu óróans renn- ur til verkefna í þágu fatlaðra barna og ungmenna. - jóe Líkt og fyrri ár prýðir jólaórói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra Óslóartréð: Giljagaur er jólaórói ársins 2014 HÖNNUÐUR OG SKÁLD Linda og Bubbi lögðu hönd á plóg. MYND/SLF MENNING Jólasýning Árbæjarsafns var opnuð í gær en hún verður opin fram að jólum. Á sýningunni er undirbúningur jólanna sýndur eins og hann var hér áður fyrr. Sýningin hefur farið fram í aldarfjórð- ung og er ómissandi í jólaundirbúningi margra. Meðal þess sem boðið er upp á er að skera laufabrauð, búa til tólgar- kerti á gamla mátann og jólasveinar verða á vappi. Hangikjöt og skata eru á boðstólum sem og aðrar jólalegar veitingar. - jóe Jólasýningin hófst í gær og verður opin á aðventunni til jóla: Jólahald fyrri ára á Árbæjarsafni FRÉTTABLAÐ IÐ /VILH ELM GRÝLUSONUR Líklegt er að jólasveinn þessi, eða bræður hans, verði á vegi gesta árlegrar jólasýningar Árbæjarsafns.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.