Fréttablaðið


Fréttablaðið - 08.12.2014, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 08.12.2014, Qupperneq 14
8. desember 2014 MÁNUDAGURSKOÐUN HALLDÓR FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is AÐSTOÐARFRÉTTASTJÓRI: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is VIÐSKIPTI: Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Erla Björg Gunnarsdóttir erla@frettabladid.is MENNING: Friðrika Benónýsdóttir fridrikab@frettabladid.is VÍSIR: Kolbeinn Tumi Daðason, kolbeinntumi@365.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚTLITSHÖNNUN: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI: Sævar Freyr Þráinsson ÚTGEFANDI OG AÐALRITSTJÓRI: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson sme@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÁ DEGI TIL DAGS Stjórnarandstaðan hefur sameinast um breytingartillögur við fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar. Það er tilraun til að stöðva nokkrar verstu tillögur ríkisstjórn- arinnar og meirihluta fjárlaganefndar sem margar hverjar vega að grunngildum sam- félagsins sem áralöng sátt hefur ríkt um. Nemendur 25 ára og eldri eiga að halda rétti sínum til að stunda nám í framhalds- skólum, bæta á kjör öryrkja og eldri borg- ara, ekki á að ganga á rétt atvinnulausra til bóta, útvarpsgjald á að vera óskert og renna allt til RÚV eins og lög gera ráð fyrir. Í tillögunum er líka að finna mörg önnur réttlætis- og mannréttindamál. Einnig eru tillögur um framkvæmdir á ferðamanna- stöðum og til annarrar atvinnuuppbygg- ingar. Í tillögum stjórnarandstöðunnar er lagt til að Landspítalinn fái fjármagn til að sinna nauðsynlegu viðhaldi á húsnæði. Lagt er til að rekstur spítalans verði styrktur svo hægt sé að vinna á biðlistum sem lengjast enn vegna læknaverkfalls og að komið verði til móts við vanda BUGL. Ef fjárlög taka ekki breytingum nú í desember þá mun kostnaðarþátttaka sjúklinga hafa aukist um 1.900 milljónir króna í tíð sitjandi ríkis- stjórnar og það án þess að nein stefnumark- andi umræða hafi farið fram. Þetta er gert þrátt fyrir að næstum 4% landsmanna hafi neitað sér um heilbrigðisþjónustu vegna mikils kostnaðar árið 2012. Sambærilegt hlutfall á Norðurlöndum er nærri núlli og þangað eigum við að stefna. Leynt og ljóst er verið að færa kostnað frá ríkinu til sjúklinga. Það er ekki gert í nauðvörn til að ná mikilvægu markmiði um hallalaus fjárlög. Þetta gerist núna þegar staða ríkissjóðs batnar ár frá ári og meðan að ríkisstjórnin tekur ákvarðanir sem leiða til minni tekna af auðlindum landsins. Þessa þróun þarf að stöðva strax. Annars fylgir enn meiri ójöfnuður og misskipting í kjölfarið. Náum samstöðu um tillögu sameinaðrar stjórnarandstöðu um að hækka ekki gjöld á sjúklinga og tryggjum heilbrigðisþjónustu allra óháð efnahag. Tveir milljarðar í nýja sjúklingaskatta FJÁRMÁL Oddný G. Harðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar ➜ Ef fjárlög taka ekki breytingum nú í desember þá mun kostnaðar- þátttaka sjúklinga hafa aukist um 1.900 milljónir króna í tíð sitjandi ríkisstjórnar og það án þess að nein stefnumarkandi umræða hafi farið fram. Þetta er gert þrátt fyrir að næstum 4% landsmanna hafi neitað sér um heilbrigðisþjónustu vegna mikils kostnaðar árið 2012. Gleymdi Davíð Geir? „Þannig sátu Ólafur Ragnar Gríms- son og Jón Sigurðsson báðir sem ráðherrar í ríkisstjórn án þess að eiga sæti á þingi þegar það gerðist. En báðir voru þeir flokksformenn og þurfti enginn að efast um stjórn- málalega ábyrgð þeirra, enda reyndi hvorugur þeirra að skjóta sér undan henni,“ þannig skrifar Davíð Oddsson í leiðara Morgunblaðsins af því tilefni að utanþingsráðherrann, Ólöf Nordal, sest nú í ráðherrastól. Davíð nefnir þáverandi formennina Jón og Ólaf Ragnar en gleymir, eða sleppir, að nefna fyrrverandi formann Sjálfstæðisflokksins, Geir Hallgrímsson, sem náði ekki kjöri til Alþingis þrátt fyrir að vera þá formaður Sjálf- stæðisflokksins. Ekki hrifinn af Gylfa og Rögnu Davíð Oddsson fer einnig nokkrum orðum um þau Rögnu Árnadóttur og Gylfa Magnússon, sem sátu um tíma í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur. „Þeir [ráðherrarnir] virtust stundum líta svo á að þar sem þeir sætu hvorki í umboði almennings né þingsins í ríkisstjórn væru þeir þar með ábyrgðarlausir af pólitískum athöfnum þeirrar ríkisstjórn- ar sem þeir sátu í. Virtust þeir telja sig gegna einhvers konar embættismanna- hlutverki þar og að pólitískir gerningar, sem framdir voru á ábyrgð ríkisstjórnarinnar og þingmeirihlutans, sem hún studdist við, væru þeim óviðkomandi, þótt þeir sætu við ríkisstjórnarborðið þar sem ákvarðanir voru stimplaðar.“ Ekki nema von að spurt sé Svandís Svavarsdóttir vill svör frá Bjarna Benediktssyni vegna sölu Landsbankans í Borgun, hvers vegna söluferlið hafi verið lokað, hvort það hafi verið athugað að greiðslan sé sú hæsta mögulega og hvort uppi séu áform um að selja einnig 38 prósenta eignarhlut Landsbankans í greiðslukortafyrirtækinu Valitor. Og ef svo sé hvort það verði einnig sett í lokað söluferli. Skal nú engan undra. Víst er að bankanum hefur ekki með nokkru móti tekist að svara, svo fólk nái að skilja svörin, hvers vegna ákveðið var að hafa söluna með þeim hætti sem gert var. Kannski tekst fjármálaráðherra betur. sme@frettabladid.is L ekamálinu svokallaða er næstum lokið. Opinberu valdi var misbeitt til að brjóta á einstaklingum og flestir þeirra sem tengdust málinu, beint eða óbeint, hafa þurft að axla ábyrgð, bæði pólitískt og með dómi. Reyndar er ekki útséð með hvort einhverjir embættismenn verða einnig dregnir ofan í díkið en tíminn mun leiða það í ljós. En það er því miður sorglega einfeldningslegt að halda að slíkt muni ekki koma fyrir aftur. Það sem gerði lekamálið sérstakt var að tjón einstaklinganna sem urðu fyrir lekanum var svo bersýni- legt og augljóst. Mun algengara er hins vegar að opinbert vald sé misnotað þannig að einhver hafi af því hagnað; fjárhagslegan, efnislegan eða pólitískan. Framtíðartjón þeirra sem verða fyrir barðinu á slíkri misbeitingu; missa af stöðu, embætti, verkefni og svo framvegis, er hins vegar yfirleitt óljóst og illmælanlegt. Lekamálið mun ef til vill ekki gerast með sama hætti og á sama skala í nánustu framtíð, en slík misbeiting opinbers valds er því miður algeng og líklegast mun algengari en við höldum. Þannig var það einmitt síðasta verk forsætisráðherra sem dómsmálaráðherra að setja reglugerð um lögregluumdæmi lögreglustjóra, um að sveitarfélagið Horna- fjörður skuli teljast til umdæmis lögreglustjórans á Austurlandi. Sigmundur færði þannig lögregluna á Höfn úr Suðurkjördæmi í Norðausturkjördæmi – sitt kjördæmi. Formaður Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga, sagði ráðstöf- unina lykta af „gamaldags hreppapólitík“ í fréttum Stöðvar tvö um helgina. „Þetta er ákvörðun sem gengur gegn allri vinnu sem unnin hefur verið, hann þarf að útskýra hana,“ sagði Unnur Brá Konráðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður alls- herjarnefndar Alþingis, í samtali við Fréttablaðið. Þeir sem hafa tjáð sig um málið segja mikla vinnu standa að baki ákvörðuninni að hafa lögregluna á Höfn í Suðurkjördæmi. Undirbúningur hefur staðið yfir frá sumri og flutningurinn var til kominn vegna frum- kvæðis frá innanríkisráðuneytinu. Vegna þessa var búið að fast- setja vaktir lögreglu og hjúkrunarfólks, lögreglustjóri Suðurlands heimsótti bæjarstjórn í haust og ræddi fyrirkomulagið, skipurit, almannavarnir og fleira varðandi löggæsluna. Nýr innanríkisráð- herra hyggst skoða málið og taka í kjölfarið sjálfstæða ákvörðun um hvort afturkalla eigi reglugerð Sigmundar. Misbeiting opinbers valds getur þannig einfaldlega birst í því að ákvarðanir eru teknar án þess að að baki þeim standi fagleg vinna sérfræðinga og frekar að hvatar þeirra séu pólitískir, stjórnmálamönnum til hagsbóta. Þannig fá þeir sem eru inn undir hjá stjórnmálamönnum sínu framgengt, aðrir ekki. Málið er ekki þannig vaxið að allt fari á hliðina eins og gerðist í lekamálinu. Enginn mun hljóta af því persónulegan skaða. Hins vegar kristallast í því pólitík sem árið 2014 á ekki að sjást. Hreppapólitík er réttnefni. Stjórnmálamenn eru kjörnir í sínum kjördæmum og ekkert er að því að þeir reyni að beita sér fyrir því að þeirra sveitir njóti sanngirnis og ekki sé á þær hallað. Ráðherrar hafa hins vegar í gegnum tíðina beitt sér miskunnar- og grímulaust fyrir sérhagsmunum kjördæma sinna með sama hætti og forsætisráðherra gerði í sæti dómsmálaráðherra. Það er gamaldags pólitík sem á ekki að sjást og ef lekamálið á að hafa kennt okkur eitthvað þá er það það að misbeiting opinbers valds til hagsbóta fyrir ráðherra er ólíðanleg. Misbeiting opinbers valds er sorglega algeng: Gamaldags pólitík Fanney Birna Jónsdóttir fanney@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.