Fréttablaðið - 08.12.2014, Page 22

Fréttablaðið - 08.12.2014, Page 22
FÓLK|HEIMILI Túngata 14 í Reykjanesbæ er fastur viðkomustaður margra bæjarbúa og utanbæjarmanna vikurnar fyrir jólin enda húsið með eindæmum skraut- legt og litfagurt. Húsið er kallað Jólahús barnanna á þessu tímabili enda skreytt með þarfir yngsta aldurshópsins í huga að sögn eiganda þess og yfirskreytingar- meistara, Hallbjörns Sæmundssonar. Húsið stendur í gamla bænum í Keflavík og var byggt árið 1926. Það er rautt á lit með hvítu þaki og nokkuð jólalegt í útliti og því sérstaklega heppilegt undir skrautlegar jólaskreytingar. „Ég byrjaði að skreyta húsið fyrir um sextán árum. Upphaflega var þetta hóf- legt en skrautið varð meira með hverju árinu sem leið. Ég hef smíðað eitthvað sjálfur og keypt annað en ég legg minni áherslu á jólaljósin en þeim mun meiri á ýmsar fígúrur enda skreyti ég með þarfir barna í huga. Þau hafa miklu meira gaman af ýmsum fígúrum en fallegum jólaljósum enda koma þau mikið hingað, ekki síst í hópum frá leikskólum bæjar- ins.“ Það eru þó ekki bara yngsta kyn- slóðin sem hrífst af húsi Hallbjörns. „Hér er nánast stanslaus umferð allan sólarhringinn vikurnar fyrir jólin. Margir taka myndir og þegar bláu ljósin eru sem mest heldur maður stundum að það sé kviknað í. Hingað koma ekki bara leikskólahópar heldur bæjarbúar á öllum aldri og ekki síst eldri borgarar. Margar rútur frá höfuðborgarsvæðinu stoppa hér við en margir heimsækja Reykjanesbæ á þessum árstíma enda mörg falleg jólahús hér. Bærinn breytist í hálfgerða paradís á þessum árstíma. Það er líka gaman að heyra um fólk sem heimsækir húsið árlega. Ég ræddi til dæmis við ömmu í fyrra sem mætir hingað á hverju ári með barnabörnin sín úr Reykjavík.“ Mikil vinna felst í því að setja upp skrautið en hún hefst vanalega um miðjan nóvember. „Þetta er mjög tíma- frekt verkefni sem krefst vandvirkni. Það þýðir ekkert að henda þessu upp hingað og þangað heldur þarf að vanda vel til verks. Ég set skrautið upp einn og vil enga hjálp við það. Sjálfur er ég orðinn löglegt gamalmenni og orðin svolítið full- orðinn fyrir þetta príl en ef ég get þetta ekki einn þá er kominn tími til að hætta þessu.“ ■ starri@365.is FÍGÚRUR FYRIR KRAKKANA JÓLAHÚS Fjöldi fólks leggur leið sína í Reykjanesbæ fyrir jólin enda mörg falleg jólahús í bænum. Eitt þeirra er Jólahús barnanna en eigandi þess skreytir húsið árlega með þarfir yngstu barnanna í huga. GLAÐLEGT Hallbjörn skreytir Jólahúsið með þarfir barnanna í huga. MYND/VÍKURFRÉTTIR MIKIÐ SKREYTT Stanslaus umferð er fyrir utan Jólahúsið vikurnar fyrir jólin. MYND/VÍKURFRÉTTIR SKREYTIR Hallbjörn Sæmundsson undirbýr skreytingar á Jólahúsi barnanna í Reykjanesbæ. MYND/VÍKURFRÉTTIR SPORTÍS MÖRKIN 6 108 REYKJAVÍK S:520-1000 SPORTIS.IS GRÍPTU GÆSINA SETTU ALVÖRU GÆÐI Í JÓLAPAKKANN! CITADEL KENSINGTON kr.129.990.- kr.129.990.-

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.