Fréttablaðið - 08.12.2014, Síða 42

Fréttablaðið - 08.12.2014, Síða 42
8. desember 2014 MÁNUDAGUR| MENNING | 22 www.postur.is PAKKINN ÞINN Komdu jólapökkunum til okkar og við komum þeim í réttar hendur hratt og örugglega. er í traustum höndum H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA – 1 4 – 2 4 9 8 BÆKUR ★★★★ ★ Leitin að Blóðey Guðni Líndal Benediktsson VAKA-HELGAFELL Leitin að Blóðey er fyrsta bók Guðna Líndal Benediktssonar, en hún hreppti íslensku barnabóka- verðlaunin í ár. Undirrituð var ekki viss um í hvers konar ferða- lag hún var að leggja þegar hún hóf lestur þessar- ar bókar en fljót- lega kom í ljós að það var mikil skemmtiför. Bókin er saga í sögu. Hún hefst á því að hinn sjö ára gamli K r istjá n er sendur í hátt- inn og hann er alls kost- ar óánægður m e ð þ a ð . Fljótlega stingur afi höfðinu inn u m h e r - bergisdyrn- ar og býðst til að segja honum sögu. Afi lætur Krist- ján lofa að segja ekki nokkrum manni frá því sem hann ætlar að trúa honum fyrir, en sagan fjallar um ævintýrin sem afi sjálfur lenti í þegar hann þurfti að bjarga ömmu frá afskap- lega ljótum og leiðinlegum seið- skratta. Afi er mikil hetja í sög- unni og þarf að berjast við alls kyns óvættir en það gengur ágæt- lega, enda hreystimenni mikið. Sagan er vel skrifuð og fyrst og fremst brjálæðislega fyndin. Ég hló margoft upphátt – dátt og lengi. Persónusköpun er til fyrir- myndar, bæði sú sem er í höndum afa – en hann segir frá alls konar furðuverum sem hann mætir á ferðum sínum – og svo er afi sjálfur frábær karakter. Sagan er lipurlega framsett og augljóst er að höfundur hefur afar gaman að því að skrifa hana, það skín í gegn og sagnagleðin smitar lesandann. Hún er þétt og heild- stæð, þótt sögumaður komi sífellt inn alls kyns útúrdúr- um sem eru hver öðrum fyndnari. Ivan Cappelli gerði myndirnar sem prýða kápuna og upphaf hvers kafla. Ljóst er að hann hafði jafngaman af teiknistarfinu og höfundur af sagnagerð- inni og leyf- ir ímyndunar- aflinu að leiða sig áfram. Ég vona að við fáum að heyra fleiri sögur af honum afa, en ef ekki þá er þetta a l l avega b ók sem mun klár- lega verða lesin margoft á hverju heimili. Vel heppnuð frumraun hjá Guðna. Halla Þórlaug Óskarsdóttir NIÐURSTAÐA: Bráðfyndin saga með frábærum persónum sem ætti að höfða bæði til barna og foreldra þeirra. Svakalega fyndið ímyndunarafl TÓNLIST ★★★ ★★ Jólaóratóría Bachs Kór Neskirkju FLUTT Í NESKIRKJU FÖSTUDAGINN 5. DESEMBER EINSÖNGVARAR HALLVEIG RÚNARS- DÓTTIR, ÞORBJÖRN RÚNARSSON, JÓHANNA HALLDÓRSDÓTTIR OG HRÓLFUR SÆMUNDSSON. STJÓRNANDI STEINGRÍMUR ÞÓRHALLSSON Á mörkunum var að hin smágerða Neskirkja hentaði fyrir stórtónleika á föstudagskvöldið, það var svo loft- laust. Á dagskránni var stytt útgáfa Jólaóratóríunnar eftir Bach. Langa útgáfan, sem er í sex hlutum, tekur um þrjá klukkutíma í flutningi, en hér var sleppt fjórða og fimmta hluta. Það var eins gott. Loftið var orðið býsna þungt í kirkjunni undir það síðasta og ósennilegt er að nokk- ur hefði lifað af einn klukkutíma í viðbót. Ég sá fyrir mér forsíðu- frétt Fréttablaðsins: „Létust vegna súrefnisskorts á tónleikum í Nes- kirkju.“ Huga verður betur að loft- ræstingu á svona löngum tónleik- um þarna. Kannski þarf einhver að opna útidyrnar af og til á meðan á tónleikunum stendur. Hljómburðurinn í Neskirkju er líka ekki sérlega góður. Hann er dálítið þurr, sem var e.t.v. orsök þess að kór kirkjunnar var ansi hvellur fyrst framan af. Kvenradd- irnar voru hvassar, og enn hvassari fyrir þær sakir að það vantaði nokk- uð upp á að botninn væri ásættan- legur. Ekki heyrðist nægilega vel í körlunum og tenórarnir voru allt að því aumkunarverðir þegar þeir voru í aðalhlutverki. Þeir voru svo mjóróma. Almennt lagaðist heildar- hljómurinn þó eftir því sem á leið og kórnum til hróss verður að segjast að hann kunni hlutverk sitt og söng af öryggi og mikilli tilfinningu. Hljómsveitin var ekki gallalaus. Fiðlurnar voru oft ekki hreinar og tréblásturinn var væskilslegur. En pákur og orgel var flott og trompet- arnir voru framúrskarandi. Það eru einmitt trompetarnir sem skipta svo miklu máli í Jólaóratóríunni. Lúðra- blásturinn í upphafi setur tóninn fyrir allt verkið. Svo maður gat verið þakklátur fyrir að trompet- leikararnir klikkuðu ekki. Einsöngvararnir stóðu sig flest- ir ágætlega. Altsöngkonan Jóhanna Halldórsdóttir átti erfitt með sína rullu, hver svo sem ástæðan var. Feilnóturnar voru einfaldlega of margar, söngurinn var frekar flökt- andi. En Þorbjörn Rúnarsson tenór var glæsilegur í hlutverki guð- spjallamannsins sem segir frá því sem gerist. Hrólfur Sæmundsson var líka magnaður í bassahlutverk- inu og Hallveig Rúnarsdóttir sópr- an söng afar fallega. Söngurinn var svo skær að það var nánast eins og hún væri með helíumfyllta blöðru við höndina. Þrátt fyrir þá vankanta sem hér hafa verið tíundaðir voru tón- leikarnir oft skemmtilegir. Stein- grímur Þórhallsson stjórnaði af röggsemi og gríðarlegri innlifun, hann greinilega hreif flytjendurna með sér. Fyrir bragðið einkenndist flutningurinn af gleði og einlægni, sem var smitandi. Jónas Sen NIÐURSTAÐA: Ekki fullkomnir tónleikar, en sönggleðin var grípandi. Ekki gallalaus Jólaóratóría STJÓRNANDINN „Steingrímur Þórhallsson stjórnaði af röggsemi og gríðarlegri innlifun, hann greinilega hreif flytjendurna með sér.“ FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Árlegir aðventutónleikar Kvenna- kórs Garðabæjar verða í Digra- neskirkju í Kópavogi á miðviku- dagskvöldið, 10. desember, og hefjast klukkan 20. Efnisskrá tón- leikanna verður að vanda hátíð- leg og margar sígildar jólaperlur munu hljóma. Leikkonan Katla Margrét Þor- geirsdóttir verður sér stakur gestur á þessum aðventutón- leikum. Kórstjóri Kvennakórs Garðabæjar og listrænn stjórn- andi er Ingibjörg Guðjónsdóttir sópransöngkona og píanóleikari kórsins er Sólveig Anna Jóns- dóttir. Aðventutónleikarnir eru einn af hápunktum starfsársins en ár hvert stendur kórinn fyrir öflugri menningardagskrá. Þar ber hæst, auk aðventutónleikanna, vortón- leika kórsins auk Haustvöku eða Góugleði. Kórinn syngur einnig við margvísleg tækifæri árið um kring. Í tilefni af tíu ára afmæli kórsins árið 2010 kom út geisla- diskurinn Jólasöngur sem inni- heldur sextán íslensk og erlend jólalög. Sígildar jólaperlur í Digraneskirkju Kvennakór Garðabæjar heldur aðventutónleika sína í Digraneskirkju á miðvikudagskvöldið. KVENNAKÓR GARÐABÆJAR Aðventutónleikarnir eru einn af hápunktum starfs- ársins. MENNING

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.