Fréttablaðið - 08.12.2014, Qupperneq 44
8. desember 2014 MÁNUDAGUR| LÍFIÐ | 24
Hvolpurinn Þór vakti athygli á
samfélagsmiðlum fyrir skömmu
þegar hann lagðist í ferðalag
frá Þórshöfn til Reykjavíkur.
Dýrahjálp Íslands deildi mynd-
um af ferðalagi Þórs en hann
er í leit að framtíðarheimili.
Hvolpurinn er sem stendur í fóstri
hjá Þórunni Tryggvadóttur sem
starfar sem sjálfboðaliði hjá Dýra-
hjálp og hefur þar umsjón með
fósturheimilum.
„Hann vantaði heimili og ég
ákvað að fara í málið,“ segir
Þórunn sem er fyrir með tvær
Golden Retriv er-tíkur á heimilinu.
„Hann var alveg pollrólegur í flug-
inu, ótrúleg hetja.“
Þór verður þriggja mánaða gam-
all tólfta desember næstkomandi.
„Hann er alveg ofboðslega ljúfur
og góður hvolpkjáni.“
Dýrahjálp Íslands er sjálfboða-
liðafélag sem finnur samastað
fyrir heimilislaus dýr og rekur
jafnframt athvarf sem tekur við
dýrum í leit að heimili.
„Fyrir okkur er mikilvægast
að velja heimili sem hentar dýr-
inu vel. Það eru mörg heimili sem
eru mjög góð en kannski eitt sem
hentar best fyrir þetta dýr.“
Þórunn segir að yfirleitt gangi
vel að finna dýrunum athvarf.
„Það gengur alltaf mjög hratt fyrir
sig þegar maður er með ung dýr,
hvolpa eða kettlinga.“
Hægt er að skrá sig sem sjálf-
boðaliða á heimasíðu Dýra hjálpar.
Meðal annars er hægt að vera með
fósturheimili fyrir dýr sem eru
á milli heimila. „Ég var fóstra í
fyrsta skipti í fyrra en sá hundur
fór reyndar aldrei frá mér,“ segir
Þórunn sem tók ástfóstri við tíkina
Þyrlu og veitti henni framtíðar-
heimili.
Ferðalag Þórs vakti athygli
á Facebook og Twitter og hafa
þegar borist nokkrar fyrir spurnir
um hvolpinn. „Það voru margir
sem vildu hjálpa, nokkrir búnir
að leggja pening inn á reikning
fyrir Þór. Við tökum gjald fyrir
heilsufarsskoðun, geldingu og
svoleiðis og við erum búnar að
safna fyrir því.“ Þór er blanda
af íslenskum fjárhundi, Labra-
dor og Pointer. „Hann er alveg
með Labrador-útlitið og er alveg
svartur með hvítt á bringunni,“
segir Þórunn en hún verður með
Þór í fóstri þar til framtíðar-
heimili finnst fyrir hvolpinn.
Áhugasamir geta skoðað þau dýr
sem eru í leit að framtíðarheim-
ili á heimasíðu Dýrahjálpar, dyra-
hjalp.is.
gydaloa@frettabladid.is
Hvolpurinn Þór tók
fl ugið frá Þórshöfn
Ferðalagið vakti athygli á samfélagsmiðlum og leitar Þór nú að framtíðarheimili.
LJÚFUR Þórunn segir Þór afskaplega ljúfan og góðan. MYND/SUNNA SIGRÍÐUR
„Í rauninni byrjaði þetta þegar ég
átti eldri dóttur mína árið 2011, þá
fór ég að gera hárböndin,“ segir
Hilda Björg Stefánsdóttir, graf-
ískur hönnuður, sem nýverið hóf
sölu á hárböndum fyrir börn undir
nafninu AMIE.
„Svo átti ég yngri dóttur mína
árið 2013 og fór að gera hár böndin
þá líka. Ég fékk alveg mikið af
„kommentum“ á böndin þegar við
fórum á ballettæfingar og svona.“
Í kjölfarið ákvað Hilda að gera
eitthvað meira með hárböndin.
„Ég fór svona að hugsa að það
væri kannski gaman að gefa þetta
í gjafir og gera eitthvað meira með
þetta.“
Hárböndin fást í þremur mis-
munandi litum. Á böndunum eru
marglitar þæfðar ullarkúlur og
mögulegt er að óska eftir sér-
stökum litum og samsetningum.
Hugmyndin kviknaði þegar Hilda
skoðaði gömul myndaalbúm. Þar
rakst hún á myndir af frænku sinni.
„Ég man eftir að frænka mín var
rosalega mikið með svipuð bönd,
hún er orðin 24 ára í dag,“ segir
Hilda og bætir við að það skipti
líka máli að hárböndin séu þægileg.
„Maður fer líka bara að hugsa þegar
hárið er allt úti um allt hjá börn-
unum. þetta er mjúk teygja og þær
geta verið með þetta allan daginn.“
Hárböndin selur Hilda á Facebook/
amie.rvk en mun á næstunni opna
vefverslun Amie-rvk.com. - gló
Grafískur hönnuður
gerir barnahárbönd
Hilda Björg Stefánsdóttir gerir hárbönd með
þæfðum ullarkúlum fyrir börn. Byrjaði árið 2011.
FÍNAR Hilda með dætrum sínum og lítilli vinkonu sem allar eru með hárböndin.
MYND/BÍG
- ÞORSKUR
„ÞESSI SJÚKLEGA GÓÐI“
FRÁ STYKKISHÓLMI
EKTA HVALUR
„SÁ EINI SANNI“
LÍFIÐ