Fréttablaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 64
20. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 64
LAUGARDAGSDJAMM,
LAKKRÍS OG LATI
HUGSJÓNAMAÐURINN
BESTA NAMMIÐ
1. sæti
Þristur
Það er eitthvað
við þessa blöndu
(lakkrís, karamella og
súkkulaði) sem gleður
bragðlaukana mína út í
hið óendanlega. Þetta
er líka eina nammið sem gerir kaffi virkilega
gott. Það segir manni bara hversu rosalega
gott þetta nammi er.
2.-3. sæti
Síríus-súkkulaði með
hnetum og rúsínum
2.-3. sæti
Fylltar lakkrísreimar
BESTA SUNDLAUGIN
1. sæti
Vesturbæjarlaug
Vesturbær Reykjavíkur er eitt-
hvert notalegasta bæjarstæði
landsins og þar er líka að finna bestu
sundlaugina. Vesturbæjarlaugin
er ótrúlega sjarmerandi, mátulega
lítil og þægileg. Gufan heimsfræg, ekki síst hjá samkynhneigðum, og heitu
pottarnir eru þeir bestu sem völ er á þegar maður þarf að láta amstur
dagsins líða úr sér. Samt þyrfti helst að bæta við einum þagnarpotti þar sem
samræður eru bannaðar vegna þess að bullið sem vellur upp úr sumum
fastagestum er klikkaðra en það sem heyrist í símatíma Útvarps Sögu.
BESTI MACKINTOSH-MOLINN
1. sæti
Bleiki molinn
Ég get ekki
lýst þeirri ör-
væntingu sem fyllir mitt
hjarta þegar ég gramsa í Mackintosh-
skálunum í jólaboðunum og bleiku molarnir
eru búnir! Þeir klárast alltaf fyrst! Það sannar
að þeir eru bestir!
2. sæti
Fjólublái molinn
3. sæti
Græni þríhyrningurinn
BESTA ÍSLENSKA
ÁSTARLAGIÐ
1. sæti
Tvær stjörnur Megas
Tvær stjörnur er einfaldlega
einn fallegasti íslenski texti
sem hefur verið saminn. Hver ein-
asta setning er svo rík og mögnuð að
ég fæ gæsahúð af að lesa hann. Þetta
er líka ekki bara ástarlag, það tekur á
ást, lífinu, söknuði, sorg, minningum
og einhvers konar uppgjöri og sátt
við liðinn tíma … og allt í örfáum
erindum. Alveg stórkostlegt!
2. sæti
Skólaball
3. sæti
Þú átt mig ein
BESTA ÍSLENSKA
JÓLALAGIÐ
1. sæti
Ef ég nenni Helgi Björnsson
Fólk elskar það eða hatar.
Angurvær flutningur Helga
kveikir í mér og ég er sjúklega
meðvirk með þessum lata og
fátæka manni sem textinn er
um. Textinn er annars algjört
rugl en þetta kemur mér alltaf í
jólaskap. Mitt uppáhalds íslenska
jólalag, Klárt mál!
2. sæti
Þú komst með jólin til mín
3. sæti
Jólahjól
FALLEGASTA BYGGINGIN
1. sæti
Harpa
Ég á erfitt með að segja frá fallegustu
byggingunni að mínu mati án þess að
fá smá samviskubit. Mikið hefur verið rætt um
byggingu þessa og þá oftar en ekki í neikvæðum
tón, þá sérstaklega þegar litið er til kostnaðar og
þess ástands sem ríkti í þjóðfélaginu þegar hún
var byggð. Þessi bygging er að sjálfsögðu Harpan
í Reykjavík. Stórglæsileg bygging sem kemur til
með að þjóna listum og menningu um ókomna
tíð. Ef þér finnst hún ljót þá ertu bara ekki að
horfa á hana rétt.
Það kom bara ein bygging upp í hugann
strax og það er Harpa. Stórkostlegt
listaverk sem að auki hýsir fordómalaust
allar tegundir tónlistar. Er búinn að fara á alls
konar tónleika allt frá argasta pönki og niður í
klassík. Svo er líka gott að borða þar.
Fallegasta bygging á Íslandi er án nokkurs
vafa Harpa. Mér er alveg sama hvað fólki
finnst um hvernig að byggingunni var staðið
og kostnaðarhliðina. Þetta er fallegasta bygging
Íslandssögunnar og við eigum að vera stolt af
henni Hörpu okkar.
2. sæti
Hallgrímskirkja
3. sæti
Sundhöll Reykjavíkur
BESTA ÍSBÚÐIN
1. sæti
Brynjuís
Ég borða aldrei ís, enda er
hann dísætur, fitandi og
meinóhollur, nema þegar ég er
á Akureyri og þá kemur Brynja
drottning vitaskuld ein til greina.
Ísinn þar er ferskur og svalandi,
uppskriftin er æðisleg. Og
svo er nostalgían kringum
Brynju-ísinn vitaskuld óvið-
jafnanleg og til háborinnar
fyrirmyndar … fyrir okkur
Akureyringa.
2. sæti
Valdís
3. sæti
Ísbúð Vesturbæjar
BESTI DAGURINN TIL AÐ DJAMMA
Lífi ð á Vísi hefur undanfarnar vikur tekið saman
sumt af því sem Íslendingum fi nnst best með hjálp
valinkunnra álitsgjafa. Ýmislegt hefur verið kannað,
allt frá því hvaða nammi er best undir tönn til þess
hvaða sundlaug er notalegast að baða sig í. Íslend-
ingar elska sinn lakkrís og nóg af honum, þeir fíla
að leyfa lötum Helga Björns koma sér í jólaskapið
og fi nnst fátt betra en að gúff a í sig núðlum. Frétta-
blaðið tók saman það sem Íslendingar elska.
2. sæti
Sundlaugin á Hofsósi
3. sæti
Sundlaug Seltjarnarness
1. sæti
Laugardagur
Laugardagur er skíturinn!
Fleira fólk, fleiri vinir lausir
því þeir eiga frí á sunnudögum
þannig að þá er meira stuð.
Þá er maður vel útsofinn og hefur
tíma til að undirbúa kvöldið. Fínt
að skella sér í miðbæinn og græja
föt fyrir djammið. Svo er ekkert
betra en að starta kvöldinu með
einum eða tveimur kokteilum,
dinnerpartíi í góðra vina hópi og
enda svo á Irish Coffee áður en
haldið er út í nóttina. Svo hefur
maður allan sunnudaginn til að
liggja fyrir framan sjónvarpið og
ná upp fyrri styrk.
Á föstudögum vil ég frekar
taka því rólega og slaka á
eftir vinnuvikuna, laugardagur er
því skemmtilegri til skemmtunar.
Hvað virka daga varðar þá læt ég
þá vera.
2. sæti
Mánudagur,
þriðjudagur og
miðvikudagur
3. sæti
Fimmtudagur
4. sæti
Föstudagur
5. sæti
Sunnudagur
BESTI SKYNDIBITASTAÐURINN
1.sæti
Noodle Station
Þótt mér finnist þeir vera
búnir að hækka verðið
sitt aðeins of mikið breytir það
því ekki að þetta er eitt af því
allra besta sem ég fæ. Enginn
biðtími, fæ mér kjúklingasúpu
og „extra spicy“ og
það er einhver „x
factor“ í bragðinu
sem lætur mann
langa í meira og
meira. Ég er orðinn
sjúklega svangur núna.
Afgreiðslan er svo hröð að
það tekur því ekki að drepa á
bílnum, þjónustan er frábær– brosin
ósvikin, verðið gott og súpurnar
sjóðandi heitar og sjúklega góðar.
2. sæti
Hamborgarabúllan
3. sæti
KFC
4.-6.sæti
Bæjarins bestu
4.-6. sæti
Eldofninn
4.-6. sæti
Roadhouse
FRÉTTABLAÐ
IÐ
/G
VA