Fréttablaðið - 20.12.2014, Blaðsíða 148
20. desember 2014 LAUGARDAGUR| SPORT | 120
FÓTBOLTI Þrátt fyrir stanslausar
áhyggjur af hita og svita bæði
áhorfenda og leikmanna á HM í
Katar árið 2022 eru heimamenn
pollrólegir. Þeir efast ekki um að
þeir geti efnt öll sín loforð.
Þeir ætla að bjóða til mik illar
sýningar og sýna heiminum að
þeir kunni að skemmta sér. Á
sínum forsendum samt. Knatt-
spyrnuunnendur munu ekki geta
hoppað um rallölvaðir á baðföt-
um. Svo er enn óljóst hversu vel-
komið samkynhneigt fólk verður.
Katarar ætla að bjóða heim inum
upp á flottustu og nýtískulegustu
knattspyrnuleikvanga heims.
Katar á nóg af peningum og verð-
ur hvergi til sparað.
Einstakir vellir
Það verða byggðir átta til tólf vell-
ir. Það á eftir að ákveða endan-
lega tölu. Opnunarleikurinn sem
og úrslitaleikurinn mun þó fara
fram á Lusail-vellinum sem verð-
ur magnaður.
„Án þess að vera of áberandi
með peningana okkar þá verða
þessir vellir einstakir í sögu arki-
tektúrs. Það er svo langt í mótið
að ekki er útilokað að áhorfendur
geti séð endursýningu á atvikum á
spjaldtölvu fyrir framan sætið sitt.
Tæknin breytist hratt og við vilj-
um ekki byggja eitthvað strax sem
verður svo úrelt þegar mótið byrj-
ar,“ segir Tamim el-Abed, verk-
efnastjóri mótsins, en sjá má hluta
af þeim völlum, sem á að byggja,
hér á síðunni.
Aldrei heitara en 28 gráður
Hitinn er aðalumræðuefnið í kring-
um mótið en ekki verður hægt að
spila knattspyrnu í hitanum. Kat-
arar lofuðu að byggja velli þar sem
hægt væri að stýra hitanum. Þeir
ætla að standa við það.
„Leikvangarnir verða kældir,
skemmtisvæði fyrir áhorfendur
verða líka kæld og biðröðin á völl-
inn síðustu 1.500 metrana verð-
ur einnig með kælingu,“ segir el-
Abed.
Hitinn á völlunum á að vera í
kringum 26 gráður og mun aldrei
fara upp fyrir 28 gráður. Orkan í
þessar loftræstingar verður feng-
in úr sólarveri.
Áfengi á ákveðnum svæðum
Doha er ekki Ríó de Janeiro þar
sem stúlkur spranga um á bikiní
með kokkteil í hendinni. Aðeins
er hægt að fá áfengi á völdum
hótelum í borginni. Konur frá
Katar fá aldrei aðgang að þess-
um börum.
„Það verður hægt að fá áfengi
á ákveðnum svæðum. Áfengi er
ekki hluti af okkar trú eða hefð.
Fólk mun ekki geta keypt sér bjór
á hverju horni en það verður veitt-
ur einhver aðgangur.“
Konur í landinu klæðast búrkum
þar sem lítið sést í þær. Þær konur
sem ætla að sækja landið heim á
HM þurfa ekki að klæðast slíkum
fatnaði.
„Það er bara ætlast til þess að
fólk klæði sig við hæfi. Sé sóma-
samlega til fara. Það gengur ekki
að vera í bikiní,“ segir Deepa Puv-
anik frá Indlandi en hún hefur
farið á völlinn í Doha.
Fá hommar og lesbíur að mæta?
Mannréttindasamtök hafa miklar
áhyggjur af því hvernig staða sam-
kynhneigðra verður á þessu móti.
Hvort samkynhneigðu fólki verði
yfirhöfuð hleypt inn í landið. Stjórn-
völd í landinu eiga enn eftir að taka
á því.
„Við erum að fara yfir þessi mál.
Við getum aðlagað okkur og tekið
á móti alls konar fólki án þess að
menning okkar tapist,“ sagði Salah
bin Ghanem bin Nasser al-Ali
íþróttamálaráðherra.
Það er enn langt í mótið og eflaust
á mikið eftir að ganga á. Til að
mynda á enn eftir að taka endanlega
ákvörðun um tímasetningu mótsins
en nýjasta nýtt er að upphaf þess
verði fært fram í byrjun maí.
DÝRASTA ÍÞRÓTTAMÓT SÖGUNNAR
Katarar ætla að eyða stjarnfræðilegum upphæðum í að byggja fl ottustu og tæknilegustu knattspyrnuleikvanga heims fyrir HM
2022. Mótið er líka umdeilt. Áfengi verður í boði í takmörkuðu magni og ekki er enn ljóst hvort samkynhneigðir fái að mæta.
LUSAIL-VÖLLURINN Hér verður opnunar- og úrslitaleikurinn spilaður. EKKERT AÐ ÞESSU Lusail-völlurinn lítur vel út að utan sem innan.GLÆSILEGT Innan á Lusail-vellinum. Hér verður ekki heitara en 28 gráður.
ALLT FYRIR GULLSTYTTUNA Katarar ætla sér að endurskrifa HM-söguna með ótrúlega glæsilegu móti á leikvöngum sem eiga
sér enga líka. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Henry Birgir
Gunnarsson
henry@frettabladid.is
VELLIRNIR Í KATAR MUNU EIGA SÉR FÁAR HLIÐSTÆÐUR Í HEIMINUM
LUSAIL-VÖLLURINN AÐALVÖLLURINN Á HM 2022 VERÐUR EINSTAKUR AÐ ÖLLU LEYTI
AL-KHOR-VÖLLURINN AL-RAYYAN-VÖLLURINN AL-SHAMAL-VÖLLURINN
AL-WAKRAH-VÖLLURINNDOHA PORT-VÖLLURINNSPORTS CITY-VÖLLURINN