Fréttablaðið - 20.12.2014, Page 64

Fréttablaðið - 20.12.2014, Page 64
20. desember 2014 LAUGARDAGUR| HELGIN | 64 LAUGARDAGSDJAMM, LAKKRÍS OG LATI HUGSJÓNAMAÐURINN BESTA NAMMIÐ 1. sæti Þristur Það er eitthvað við þessa blöndu (lakkrís, karamella og súkkulaði) sem gleður bragðlaukana mína út í hið óendanlega. Þetta er líka eina nammið sem gerir kaffi virkilega gott. Það segir manni bara hversu rosalega gott þetta nammi er. 2.-3. sæti Síríus-súkkulaði með hnetum og rúsínum 2.-3. sæti Fylltar lakkrísreimar BESTA SUNDLAUGIN 1. sæti Vesturbæjarlaug Vesturbær Reykjavíkur er eitt- hvert notalegasta bæjarstæði landsins og þar er líka að finna bestu sundlaugina. Vesturbæjarlaugin er ótrúlega sjarmerandi, mátulega lítil og þægileg. Gufan heimsfræg, ekki síst hjá samkynhneigðum, og heitu pottarnir eru þeir bestu sem völ er á þegar maður þarf að láta amstur dagsins líða úr sér. Samt þyrfti helst að bæta við einum þagnarpotti þar sem samræður eru bannaðar vegna þess að bullið sem vellur upp úr sumum fastagestum er klikkaðra en það sem heyrist í símatíma Útvarps Sögu. BESTI MACKINTOSH-MOLINN 1. sæti Bleiki molinn Ég get ekki lýst þeirri ör- væntingu sem fyllir mitt hjarta þegar ég gramsa í Mackintosh- skálunum í jólaboðunum og bleiku molarnir eru búnir! Þeir klárast alltaf fyrst! Það sannar að þeir eru bestir! 2. sæti Fjólublái molinn 3. sæti Græni þríhyrningurinn BESTA ÍSLENSKA ÁSTARLAGIÐ 1. sæti Tvær stjörnur Megas Tvær stjörnur er einfaldlega einn fallegasti íslenski texti sem hefur verið saminn. Hver ein- asta setning er svo rík og mögnuð að ég fæ gæsahúð af að lesa hann. Þetta er líka ekki bara ástarlag, það tekur á ást, lífinu, söknuði, sorg, minningum og einhvers konar uppgjöri og sátt við liðinn tíma … og allt í örfáum erindum. Alveg stórkostlegt! 2. sæti Skólaball 3. sæti Þú átt mig ein BESTA ÍSLENSKA JÓLALAGIÐ 1. sæti Ef ég nenni Helgi Björnsson Fólk elskar það eða hatar. Angurvær flutningur Helga kveikir í mér og ég er sjúklega meðvirk með þessum lata og fátæka manni sem textinn er um. Textinn er annars algjört rugl en þetta kemur mér alltaf í jólaskap. Mitt uppáhalds íslenska jólalag, Klárt mál! 2. sæti Þú komst með jólin til mín 3. sæti Jólahjól FALLEGASTA BYGGINGIN 1. sæti Harpa Ég á erfitt með að segja frá fallegustu byggingunni að mínu mati án þess að fá smá samviskubit. Mikið hefur verið rætt um byggingu þessa og þá oftar en ekki í neikvæðum tón, þá sérstaklega þegar litið er til kostnaðar og þess ástands sem ríkti í þjóðfélaginu þegar hún var byggð. Þessi bygging er að sjálfsögðu Harpan í Reykjavík. Stórglæsileg bygging sem kemur til með að þjóna listum og menningu um ókomna tíð. Ef þér finnst hún ljót þá ertu bara ekki að horfa á hana rétt. Það kom bara ein bygging upp í hugann strax og það er Harpa. Stórkostlegt listaverk sem að auki hýsir fordómalaust allar tegundir tónlistar. Er búinn að fara á alls konar tónleika allt frá argasta pönki og niður í klassík. Svo er líka gott að borða þar. Fallegasta bygging á Íslandi er án nokkurs vafa Harpa. Mér er alveg sama hvað fólki finnst um hvernig að byggingunni var staðið og kostnaðarhliðina. Þetta er fallegasta bygging Íslandssögunnar og við eigum að vera stolt af henni Hörpu okkar. 2. sæti Hallgrímskirkja 3. sæti Sundhöll Reykjavíkur BESTA ÍSBÚÐIN 1. sæti Brynjuís Ég borða aldrei ís, enda er hann dísætur, fitandi og meinóhollur, nema þegar ég er á Akureyri og þá kemur Brynja drottning vitaskuld ein til greina. Ísinn þar er ferskur og svalandi, uppskriftin er æðisleg. Og svo er nostalgían kringum Brynju-ísinn vitaskuld óvið- jafnanleg og til háborinnar fyrirmyndar … fyrir okkur Akureyringa. 2. sæti Valdís 3. sæti Ísbúð Vesturbæjar BESTI DAGURINN TIL AÐ DJAMMA Lífi ð á Vísi hefur undanfarnar vikur tekið saman sumt af því sem Íslendingum fi nnst best með hjálp valinkunnra álitsgjafa. Ýmislegt hefur verið kannað, allt frá því hvaða nammi er best undir tönn til þess hvaða sundlaug er notalegast að baða sig í. Íslend- ingar elska sinn lakkrís og nóg af honum, þeir fíla að leyfa lötum Helga Björns koma sér í jólaskapið og fi nnst fátt betra en að gúff a í sig núðlum. Frétta- blaðið tók saman það sem Íslendingar elska. 2. sæti Sundlaugin á Hofsósi 3. sæti Sundlaug Seltjarnarness 1. sæti Laugardagur Laugardagur er skíturinn! Fleira fólk, fleiri vinir lausir því þeir eiga frí á sunnudögum þannig að þá er meira stuð. Þá er maður vel útsofinn og hefur tíma til að undirbúa kvöldið. Fínt að skella sér í miðbæinn og græja föt fyrir djammið. Svo er ekkert betra en að starta kvöldinu með einum eða tveimur kokteilum, dinnerpartíi í góðra vina hópi og enda svo á Irish Coffee áður en haldið er út í nóttina. Svo hefur maður allan sunnudaginn til að liggja fyrir framan sjónvarpið og ná upp fyrri styrk. Á föstudögum vil ég frekar taka því rólega og slaka á eftir vinnuvikuna, laugardagur er því skemmtilegri til skemmtunar. Hvað virka daga varðar þá læt ég þá vera. 2. sæti Mánudagur, þriðjudagur og miðvikudagur 3. sæti Fimmtudagur 4. sæti Föstudagur 5. sæti Sunnudagur BESTI SKYNDIBITASTAÐURINN 1.sæti Noodle Station Þótt mér finnist þeir vera búnir að hækka verðið sitt aðeins of mikið breytir það því ekki að þetta er eitt af því allra besta sem ég fæ. Enginn biðtími, fæ mér kjúklingasúpu og „extra spicy“ og það er einhver „x factor“ í bragðinu sem lætur mann langa í meira og meira. Ég er orðinn sjúklega svangur núna. Afgreiðslan er svo hröð að það tekur því ekki að drepa á bílnum, þjónustan er frábær– brosin ósvikin, verðið gott og súpurnar sjóðandi heitar og sjúklega góðar. 2. sæti Hamborgarabúllan 3. sæti KFC 4.-6.sæti Bæjarins bestu 4.-6. sæti Eldofninn 4.-6. sæti Roadhouse FRÉTTABLAÐ IÐ /G VA
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.