Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Síða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Síða 4
E ignarhaldsfélag sem stofnað var og stýrt af séra Sigurði Helga Guðmundssyni, fram­ kvæmdastjóra hjúkrunar­ heimilisins Eirar frá 1993 til 2011, seldi heimilinu hjúkrunar­ gögn fyrir milljónir króna árlega hluta tímabilsins sem hann stýrði því. Sig­ urður Helgi var á tímabilinu einnig prestur í Víðistaðakrikju í Hafnarfirði. Hlutafélagið sem sá Eir fyrir hjúkr­ unargögnunum heitir Ars ehf. og var stofnað árið 1988. Eir hefur fengið fjárframlög frá ríkinu frá stofnun fé­ lagsins – í fyrra nam sú upphæð rúm­ lega 1.500 milljónum króna. Í tilkynningu um stofnun Ars, sem barst fyrirtækjaskrá ríkisskatt­ stjóra árið 1988, kemur fram að Sig­ urður Helgi hafi stofnað félagið ásamt hafnfirska apótekaranum Almari Grímssyni og Rúnari Brynjólfssyni. Konur þeirra voru sömuleiðis skráð­ ar sem stofnendur. Sigurður Helgi var fyrsti stjórnarformaður félagsins. Hver hluthafi, meðal annars Sigurður Helgi, skráði sig fyrir hlutafé upp á 100 þúsund krónur á nafnvirði. Tilgang­ ur félagsins var í stofngögnum þess sagður vera „heildsala og innflutning­ ur á hjúkrunargögnum, hreinlætis­ vörum, lyfjum og lækningavörum.“ Stöð 2 greindi frá því, fyrst fjöl­ miðla, í þar síðustu viku að Eir væri tæknilega gjaldþrota og þyrfti að ráð­ ast í fjárhagslega endurskipulagningu til að bjarga rekstrinum frá þroti og til að verja hagsmuni eldri borgaranna sem fjárfest hafa í íbúðum í gegn­ um félagið. Sú vinna stendur nú yfir á vegum Eirar. Síðan Eirarmálið komst í hámæli hefur Vilhjálmur Þ. Vil­ hjálmsson, stjórnarformaður Eirar og tímabundinn arftaki Sigurðar Helga í starfi meðan eftirmaður hans var fundinn, stigið til hliðar sem stjórnar­ formaður. Ýmislegt bendir hins vegar til að fjárhagserfiðleika og óráðsíu innan Eirar megi rekja mörg ár aftur í tímann og kemur nafn hlutafélagsins Ars þá meðal annars upp. Morgupósturinn segir frá Dagblaðið Morgunpósturinn greindi frá því árið 1995, undir fyrirsögninni „Yfirmennirnir kaupa lyf og hjúkr­ unargögn hjá sjálfum sér“, að Eir hefði um árabil keypt hjúkrunargögn af Ars og lyf hjá Almari Grímssyni í Apóteki Hafnarfjarðar. Meðal þess sem keypt var af Ars voru sérstakar bleiur fyrir eldri borgara. Þessi viðskipti við Ars námu rúmum 11 milljónum króna árið 1994, að sögn Morgunpóstsins, á meðan lyfjakostnaður nam 10 millj­ ónum króna. Í viðtali Morgunpóstsins við Sigurð Helga sagði hann Ars vera félag sem ynni að því að ná sem hagstæðustum samningum um kaup á sjúkragögn­ um fyrir Eir. „Ars er okkar innkaupa­ samband og vinnur fyrir okkur við að leita eftir sem bestu verði á hjúkrunar­ gögnum.“ Þá sagði Sigurður Helgi að Ars kæmi honum ekkert við „persónu­ lega“. Sigurður Helgi var hins vegar einn af stofnendum Ars og var stjórn­ armaður í félaginu allan líftíma þess. Hagnaður hljóp á milljónum Hagnaður Ars hljóp yfirleitt á milljón krónum eða meira á hverju ári þann tíma sem félagið starfaði. Hagnaður­ inn var til dæmis um 1.600 þúsund árið 2002. Þessi hagnaður hljómar kannski ekki hár í dag en til saman­ burðar má nefna að forstjóralaun Sig­ urðar Helga hjá Eir námu 140 þúsund krónum á mánuði árið 1994. Því var um að ræða hagnað sem nam marg­ földum forstjóralaunum á þessum árum. Árið 2002 átti félagið eignir upp á ríflega fjórar milljónir króna. Þegar þarna var komið sögu voru upphaflegir hluthafar Ars hins vegar ekki í hluthafahópnum nema að litlu leyti. Almar Grímsson var sá eini af stofnendum félagsins sem ennþá átti hlut í því með um 11 prósent hluta­ fjárins. Hjúkrunarheimildið Skjól, Hrafnista í Hafnarfirði og Reykjavík og Eir voru komin inn sem hluthaf­ ar. Einkaaðilarnir sem stofnuðu félag­ ið voru því komnir út úr því og í stað­ inn voru stofnanirnar sem þeir stýrðu komnar inn sem hluthafar þess. Félaginu slitið Ars var slitið í árslok 2005, samkvæmt tilkynningu um félagsslit sem send var til ársreikningaskrár í desember það ár. Félagið átti þá eignir upp á ríf­ lega tvær milljónir króna sem greidd­ ar voru út til hluthafa félagsins. DV hefur heimildir fyrir því að málefni þessa félags, Ars, séu aðeins eitt mál af nokkrum sem benda til aðstöðubrasks, óráðsíu eða slælegs rekstrar hjá Eir á síðastliðnum tutt­ ugu árum. Þannig mun trygginga­ kostnaður félagsins til dæmis hafa verið allt of hár, í kringum 50 prósent, um margra ára skeið vegna þess að forsvarsmönnum félagsins láðist að endursemja um þær við Trygginga­ miðstöðina, vinir og vandamenn forsvarsmanna Eirar hafi verið ráðnir þangað í vinnu auk þess sem rekstrar­ kostnaður vegna stjórnenda félagsins hafi farið fram úr hófi. n seldi eir hjúkrunar- gögn fyrir milljónir 4 Fréttir 12. nóvember 2012 Mánudagur Ráðuneytið í sambandi við stúlkurnar n Tvær táningsstúlkur handteknar með kókaín í Prag Í slenska utanríkisráðuneytið hefur verið í sambandi við íslensku tán­ ingsstúlkurnar tvær sem hand­ teknar voru í Prag í Tékklandi fyrir helgi. Þær hafa verið úrskurð­ aðar í allt að sjö mánaða gæsluvarð­ hald. Stúlkurnar voru teknar með átta kíló af kókaíni af tékkneskum tollvörðum. Efnin voru falin í ferða­ töskum stúlknanna tveggja. Í mynd­ bandi sem birt hefur verið í tékk­ neskum fjölmiðlum sést hvernig efnunum var komið fyrir í klæðn­ ingu á töskunum. Ekki er talið að þær hafi sjálfar skipulagt fíkniefnasmyglið og bein­ ist grunur lögreglunnar að banda­ rískum manni sem staddur var hér á landi fyrr á árinu. Ökumaður beið í bifreið fyrir utan flugvöllinn í Prag þegar flugvél stúlknanna lenti þar. Stelpurnar voru að koma frá Sao Paulo í Brasilíu þegar þær voru gripnar með efnin eftir milli­ lendingu í Þýskalandi. Ríkisút­ varpið greinir frá því að efnin hafi í raun uppgötvast í Þýskalandi en að yfir völd hafi hleypt þeim áfram til Tékklands undir eftirliti. Þá greinir fréttastofan einnig frá því að stúlk­ urnar eigi báðar sakaferil að baki hér á Íslandi en ekki kemur fram hvort þær hafi áður tengst fíkniefna­ málum. Stúlkurnar eiga yfir höfði sér þunga fangelsisrefsingu verði þær fundnar sekar um innflutning fíkni­ efnanna. Einnig má búast við því að rannsókn málsins taki nokkra mánuði og að stúlkurnar þurfi að dúsa í fangelsi í Tékklandi á rann­ sóknartímanum. „Já, ég mótmæli“ „Sjómenn fara út í hvaða veður sem er og berjast við náttúröfl sem eru óútreiknanleg og okkur óskilj­ anleg! Þeir vinna í bleytu, kulda og oft og tíðum stórhættu en kvarta aldrei! Sjómenn eru foreldrar sem að missa af fyrsta orðinu, fyrsta skrefinu, fyrsta skóladeginum, mörgum afmælisdögum og svo má lengi telja,“ ritar Guðrún Lilja Hólmfríðardóttir sjómannskona í aðsendri grein á DV.is. Hún er ekki sátt við að laun eiginmanns síns, sem og sjómanna allra, verði lækkuð. Útgerðarmenn hafa far­ ið fram á allt að fimmtán pró­ senta launalækkun á sjómenn vegna hækkunar á veiðigjaldi. Kjaradeila útgerðamanna og sjó­ manna er í hnút því á móti kröfu útgerðarmanna um launlækk­ un hafa sjómenn krafist launa­ leiðréttingar vegna afnáms sjó­ mannaafsláttar.„Já, ég mótmæli að leggja líf mannsins míns og allra annarra sjómanna í hættu fyrir þau skammarlegu laun sem laun sjómanna eru að verða,“ skrifar Guðrún Lilja. Ætlaði að henda sér í höfnina Talsverður erill var hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu aðfaranótt sunnudags. Tveir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um ölvun við akstur og tveir til viðbótar voru teknir grunaðir um akstur undir áhrifum fíkniefna. Þeir voru látnir lausir að lokinni blóð­ og skýrslu­ töku. Rétt fyrir klukkan þrjú aðfara­ nótt sunnudags var tilkynnt um mann sem ætlaði að henda sér í höfnina. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að maðurinn hafi fundist stuttu síðar við Austur­ bakka þar sem hann var kominn upp að mitti í sjóinn. Lögreglu­ menn björguðu manninum á þurrt og var hann síðan fluttur á slysa­ deild til skoðunar og aðhlynningar. Rétt fyrir klukkan fjögur var ekið á gangandi vegfaranda í Bankastræti. Maðurinn meiddist ekki alvarlega en kenndi sér meins á fæti. Ökumaðurinn var á bak og burt þegar lögreglu bar að. Þá var tilkynnt um tvær líkams árásir, í öðru tilfellinu var dyravörður í Keiluhöllinni sleginn í andlitið en meiðsl hans voru minniháttar. Þá var maður sleginn á Ingólfstorgi um klukkan hálf sjö að morgni sunnudags og var hann fluttur á slysadeild til skoðun­ ar – ekki er vitað um gerandann í málinu. Tveir með fyrsta vinning Tveir stálheppnir einstaklingar voru með allar tölur réttar í lottóinu á laugardag og hlýtur hvor um sig um 28,5 milljónir króna. Miðarnir voru seldir á N1 á Ártúnshöfða og á Víkurbraut í Grindavík. Sjö voru með fjór­ ar tölur réttar auk bónustölu og fær hver um sig tæpar 180 þús­ und krónur. Enginn var með fimm tölur réttar í Jókernum. n Viðskipti upp á milljónir árlega n Sigurður sagðist ekki tengjast félaginu Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Báðum megin við borðið Séra Sigurður Helgi Guðmundsson var stofnandi og stjórnarmaður í einkahlutafélaginu Ars sem seldi Eir hjúkrunargögn fyrir milljónir króna árlega. Sigurður Helgi var fram- kvæmdastjóri Eirar í tæp tuttugu ár. „Ars er okkar inn- kaupasamband og vinnur fyrir okkur við að leita eftir sem bestu verði á hjúkrunargögnum. Efnin falin Í myndbandi sem tékkneskir fjölmiðlar hafa birt sést hvernig efnin voru falin í klæðningu á ferðatöskum stúlknanna.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.