Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Qupperneq 6
É
g vann við að nudda á daginn
en ég vann líka við að steypa,
mála þök og fleira í húsunum
þeirra,“ segir Sun Fulan, sem
undirbýr nú að koma til Íslands til
þess að stefna fjarskyldri frænku
sinni, Línu Jia, fyrir íslenskum dóm-
stólum. DV hefur fjallað töluvert um
mál Sun Fulan sem sakar Línu um
að hafa borgað sér alltof lág laun
fyrir alltof mikla vinnu en hún vann
fyrir hana í tæp fjögur ár en fór aftur
heim til Kína í byrjun þessa árs.
DV hefur komist í samband við
Sun Fulan í gegnum mág hennar
sem túlkar fyrir hana þar sem hún
talar hvorki ensku né íslensku og býr
í Kína. Í samtali við DV segist hún
leita leiða til að koma til Íslands.
Hún hefur áhyggjur af Nan Li, ung-
um manni sem vann fyrir Línu hluta
þess tíma sem hún var hér, en hún
segir að Lína og eiginmaður henn-
ar, Wei Zhang, hafi verið afar ströng
við hann.
Skuggavera í íbúðinni
DV fjallaði um það á dögunum að
lögregla hefði haft afskipti af manni
sem hafðist við í íbúð í eigu dóttur
Línu og Wei við Hverfisgötu í Reykja-
vík. Miklar framkvæmdir hafa verið
í íbúðinni í á annað ár og hafa þær
valdið ónæði fyrir aðra íbúa hússins.
Samkvæmt heimildum DV hefur
kínverskur maður unnið þar myrkr-
anna á milli við að gera íbúðina upp,
oftast einn, en stundum með Wei
Zhang. Maðurinn er þó hálfgerð
skuggavera því að hann hefur ekki
sést yfirgefa íbúðina en það heyrist
reglulega frá honum.
Þegar DV mætti á staðinn fyrir
um tveimur vikum til að freista þess
að ná tali af honum var lögreglan á
staðnum á sama tíma til að kanna
ábendingu um að hugsanlega væri
maðurinn þar gegn vilja sínum.
Lögreglan virðist þó ekki hafa að-
hafst meira í málinu og fulltrúar
lögreglu neita að tjá sig um málið.
Heimildir DV herma að maðurinn
sé enn í íbúðinni. Verið er að breyta
íbúðinni og fjölga herbergjum sem
leigð verða út en fjölskyldan á annað
hús á Hverfisgötu 102b þar sem her-
bergi eru einnig leigð út. Heimildir
herma að nú þegar hafi einhver her-
bergi verið leigð út en þó sé íbúðin
ekki tilbúin að fullu.
Ströng við Nan Li
Ekki er vitað hvort maðurinn sem
um ræðir sé fyrrnefndur Nan Li
sem Sun hefur áhyggjur af. Þegar
hún yfirgaf landið var hann enn
með hjónunum og hún segir hann
hafa unnið fyrir þau, meðal annars
við endurbætur á húsnæði í þeirra
eigu. „Þau voru mjög ströng við
Nan Li. Þau læstu dyrunum að her-
berginu hans, sem kom í veg fyrir
að hann hefði samskipti við heim-
inn fyrir utan. Við vorum reið yfir
því hvernig þau komu fram við okk-
ur. Þrátt fyrir það vorum við hrædd
við að berjast á móti, af því að við
höfðum enga peninga – við áttum
að fá launin áður en við færum aft-
ur til Kína, þannig við fengum engin
laun á venjulegum tíma. Við kunn-
um heldur ekki mikið í ensku eða
landafræði. Frænka mín tók vega-
bréfin af okkur og 1.000 dollara af
Nan Li sem hann hafði með sér til
landsins,“ skrifar Sun í bréfi sem
hún sendi til Útlendingastofnun-
ar, Sendiráðs Íslands í Kína, lög-
reglunnar og Félags Kínverja á Ís-
landi og er dagsett í febrúar á þessu
ári og DV hefur undir höndum.
Nuddaði á tveimur stöðum
„Ég var að nudda fólk á tveimur
stöðum, einn staðurinn var stofan
hennar Línu Jia en hinn staðurinn
var hótel sem Lína Jia á,“ segir Sun
aðspurð hvort hún hafi nuddað á
fleiri en einum stað meðan hún
var hér á landi. Hinn staðurinn
sem hún talar um er Hverfisgata
102b þar sem eru leigð út herbergi
og Lína hefur nuddaðstöðu líka.
Sun hefur fengið hjálp frá Ís-
lendingum hér á landi sem vinna
nú að því að reyna koma henni
til landsins til þess að hún geti
látið reyna á mál sitt fyrir íslensk-
um dómstólum. Sun segist hafa
unnið sleitulaust á nuddstofu
Línu í Kópavogi í 14–15 tíma á
dag, borið út blöð, séð um heim-
ilisstörf auk þess að vinna við
að gera upp fasteignir fyrir þau
hjónin án þess að fá fyrir það
mannsæmandi laun. n
6 Fréttir 12. nóvember 2012 Mánudagur
Óþolandi þöggun
n Umfjöllun um Facebook-bann Hildar Lilliendahl á erlendri síðu
H
atar Facebook konur, eða bara
femínista, spyr pistlahöfund-
urinn Trista Hendren á vef-
síðunni Elephant Journal,
en þar fjallar hún meðal annars
um ítrekaðar refsingar sem íslenski
femínistinn Hildur Lilliendahl hef-
ur sætt. DV greindi frá því fyrir
skemmstu að undirskriftalista hefði
verið ýtt úr vör þar sem þess er kraf-
ist að Facebook hætti að hefta mál-
frelsi Hildar.
Í pistlinum fer Trista yfir víðan
völl, en hún greinir þar frá fleiri
dæmum um að konum eða kvenna-
hreyfingum hafi verið gerð refsing
fyrir að birta myndir sem notend-
um Facebook þykja ósæmilegar eða
fjalla um efni sem fer fyrir brjóstið
á fólki. Í stuttri athugasemd sem
Hildur sendi Tristu segir Hildur ekki
koma til greina að leyfa stórfyrirtæki
eins og Facebook að þagga niður í
sér: „Ég hefði getað farið í kring um
reglurnar, ég hefði getað birt þessi
skjáskot á öðrum stað og sett tengil
á þau á Facebook, en ég neita að láta
þagga niður í mér. Ég ætla ekki að
fylgja reglum sem misbjóða mér.“
Sem kunnugt er var Hildur sett í
30 daga bann á Facebook á dögunum
fyrir að birta skjáskot af athugasemd
sem hún fékk senda í athugasemda-
kerfi DV.is. Í athugasemdinni kvaðst
annar notandi Facebook ætla að
keyra yfir hana á bíl og bakka svo aft-
ur yfir hana. Viðkomandi aðili kvart-
aði yfir því að Hildur endurbirti orð
hans, líkt og margir sem birtust í um-
deildu myndaalbúmi hennar, Karlar
sem hata konur, gerðu á sínum tíma.
astasigrun@dv.is
n Sun Fulan vill vita hvað varð um Nan Li n Lögregla tjáir sig ekki um málið
Áhyggjufull
vegna nan li
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Hverfisgata 50 Hér uppi á annarri hæð er íbúðin sem maðurinn er sagður halda til í. Ekki er vitað hvort um Nan Li sé að ræða og lögreglan
neitar að tjá sig um málið. Sun, til vinstri á myndinni, segir að hann hafi verið enn með hjónunum þegar hún yfirgaf landið.„Þrátt fyrir það vor-
um við hrædd við
að berjast á móti, af því að
við höfðum enga peninga
Staðföst „Ég neita að láta þagga niður í mér,“ segir Hildur
Metvelta á
íbúðamarkaði
Samtals var 552 kaupsamning-
um um íbúðarhúsnæði þinglýst
í október síðastliðnum. Þetta er
mesti fjöldi samninga sem sést
hefur síðan í desember 2007.
Greining Íslandsbanka fjallaði
um þetta á vef sínum á föstudag
en veltan nam 16,4 milljörðum
króna og er einnig mesta velta
sem verið hefur í einum mánuði
síðan fyrir hrun.
Um er að ræða 30 pró-
senta aukningu frá september-
mánuði og 40 prósenta aukn-
ingu sé miðað við sama mánuð
árið 2011. Að mati Greiningar
Íslands banka virðist aukið líf
vera að færast í íbúðamarkaðinn
eftir tiltölulega rólega undan-
farna mánuði.
Í frétt Greiningar er bent á að
á þriðja fjórðungi þessa árs hafi
kaupsamningum um íbúðar-
húsnæði á höfuðborgarsvæðinu
fækkað um 0,5 prósent eftir að
hafa fjölgað afar mikið sam-
fellt síðustu tíu ársfjórðunga
þar á undan. Samhliða þessum
minnkandi umsvifum hefur
hægst á verðhækkun íbúðarhús-
næðis á höfuðborgar svæðinu.
Undanfarna 12 mánuði hafa
íbúðir í fjölbýli hækkað í verði
um sjö prósent en í upphafi
þessa árs nam hækkunin 9,2
prósentum á þennan mæli-
kvarða.
„Athyglisvert verður að fylgj-
ast með því hvort þessi þróun
haldi áfram á næstu mánuð-
um eða hvort sú lægð sem ein-
kenndi markaðinn á þriðja árs-
fjórðungi verði aftur einkenni
hans á næstunni. Fyrr í vikunni
(síðustu viku, innskot blaða-
manns) var fjallað um það í
fréttum að fasteignasjóðir hafi
að undanförnu keypt talsvert
magn af íbúðum og gætu þær
hreyfingar verið að baki þessari
metveltu á íbúðamarkaði í
október að hluta til. Undan-
farið ár hafa verið settir á fót
nokkrir fasteignasjóðir sem fjár-
festa í bæði atvinnu- og íbúðar-
húsnæði á höfuðborgarsvæð-
inu. Hér er um að ræða þróun
sem að stærstum hluta skýrist
af breyttu fjárfestingaumhverfi
í skjóli gjaldeyrishafta,“ segir í
frétt Greiningar Íslandsbanka.
Endaði
á hvolfi
Bílvelta varð á Mýrarleiti
skammt sunnan Húsavíkur á
sunnudagsmorgun. Tvennt var
í bílnum, karl og kona, og slas-
aðist ekki í veltunni. Mjög hált
var á þessum slóðum þegar
óhappið varð og rann bíllinn í
hálkunni áður en hann endaði
utan vegar á hvolfi. Fólkið var á
leið til Reykjavíkur en lögreglu-
menn frá Húsavík óku fólkinu til
Húsavíkur þar sem það hugðist
sækja sér aðra bifreið til að
halda för sinni áfram.