Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Page 16

Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Page 16
16 Neytendur 12. nóvember 2012 Mánudagur Varaðu þig á jólaseríunum n Neytendastofa setur 6–12 sölubönn á jólaseríur á hverju ári N eytendastofa mun á næstu dögum og vikum, í samstarfi við Aðalskoðun hf., fara í árlegt markaðseftirlitsátak á jólaljósaseríum. Á heimasíðu Neytendastofu er fjallað um málið og þar kemur fram að röng notkun eða óvandaðar jólaljósaseríur geti valdið bruna og slysum. Skoðaðar verða bæði jólaljósaseríur sem ætl- aðar eru til innanhúss- og utan- hússnotkunar. Það verður til dæm- is að koma skýrt fram ef ljósaserían er aðeins ætluð til innanhússnotk- unar – það getur verið lífshættulegt að nota slíka seríu utandyra. Jólaljósaseríur sem aðeins eru ætlaðar til innanhússnotkun- ar eiga að vera með viðvörun á ís- lensku. Ef serían kemur í umbúð- um sem ætluð er til að geyma hana í – milli þess sem hún er notuð – á viðvörunin að vera á umbúðunum, sem dæmi. Jólaljósaseríum fylgja einnig almennar leiðbeiningar sem eiga að vera á íslensku eða öðru Norðurlandamáli, öðru en finnsku, eða ensku. Neytendastofa hefur að jafnaði sett 6 til 12 sölu- bönn á jólaljósaseríur árlega ásamt því að beina hátt í 20 tilmælum til fyrirtækja um að gera úrbætur á merkingum á jólaseríum. Neyt- endastofa hvetur innflytjendur og seljendur ljósakeðja til að hafa þessa hluti á hreinu. Neytend- ur geta einnig komið ábending- um á framfæri á heimasíðu Neyt- endastofu. Gott að hafa í huga: n Ekki láta loga á ljósunum á jóla- trénu yfir nótt n Hentu gömlu jólaljósunum sem eru úr sér gengin n Aldrei nota inniljós utandyra og öfugt n Gættu þess að brennanleg efni séu ekki nálægt kertaljósum n Varaðu þig á óvönduðum jóla- ljósum n Notaðu alltaf perur af réttri stærð og gerð n Mundu að óvarinn rafbúnaður getur valdið raflosti einar@dv.is Algengt verð 251,6 kr. 260,5 kr. Algengt verð 251,4 kr. 260,5 kr. Höfuðborgarsv. 251,3 kr. 260,4 kr. Algengt verð 251,6 kr. 260,7 kr. Algengt verð 253,9 kr. 260,7 kr. Melabraut 251,4 kr. 260,5 kr. Eldsneytisverð 11. nóv. BeNsíN Dísilolía Ódýr bröns n Grillhúsið fær lof fyrir frábær- an bröns og góða þjónustu. Viðskiptavinur segist hafa fengið vel úti- látinn bröns á 1.590 krónur. „Það er tölu- vert ódýrara en á flestum öðrum stöðum bæjarins. Af- greiðslukonurn- ar voru einstak- lega almennilega og vildu allt fyrir okkur gera.“ Of flókið n Sushisamba fær lastið að þessu sinni. „Maturinn þar er góður en mér finnst mat- seðillinn eiginlega of flókinn, sér í lagi þegar stærri hópar koma saman. Ég fór þangað um daginn með hópi af fólk. Okkur fannst of langt gengið í hafa þetta fjölbreytt og fannst ruglingslegt að panta, til dæm- is of mikið af kryddi og sósum. Þetta er ekki einfalt eins og mér finnst að sushi eigi að vera og útskýringar afgreiðslufólksins voru helst til óskýrar,“ segir við- skiptavinur. DV hafði samband við veitinga- staðinn og fékk eftirfarandi svar: „Okkur langar bara að þakka lesandanum fyrir komuna á Sushisamba og að hrósa matn- um, einnig erum við þakklátir fyrir allar ábendingar sem við fáum. Við erum með um 70 rétti á matseðlinum hjá okkur sem er mjög fjölbreyttur, það er mikið úrval af sósum og kryddi. Einnig langar okk- ur að benda þeim á sem langar að fræðast meira um sushi-ið okkar að við bjóðum upp á mjög skemmti- leg sushi-nám- skeið undir handleiðslu sushi-sérfræðinga Sus- hisamba og hvetjum alla til að kynna sér það enda frábært námskeið sem verið er að bjóða upp á.“ Lof og last Sendið lof eða last á neytendur@dv.is skiptir allt máli Það þarf að huga að mörgu þegar jólaseríur eru annars vegar. n Ekki gefa tryggingafélögunum peningana þína n Athugaðu hvað önnur félög hafa að bjóða n Einn sparaði sér 130 þúsund krónur Þ ú getur sparað tugi þús- unda á ári með því að skipta um tryggingafélag eða með því að biðja félag- ið þitt að gera þér nýtt til- boð. Margir gera þau mistök að fá tryggingar hjá ákveðnu félagi þegar það hefur búskap og gleymir svo að láta endurskoða þær reglulega eða athuga hvort önnur félög bjóði betur. Þetta getur leitt til þess að fólk greiði tryggingar sínar og háu verði. Fólk er aldrei of oft minnt á að óska eftir tilboðum í tryggingar sínar. Félögin lækka iðgjöld DV hafði samband við Hákon Há- konarson hjá Tryggingavaktinni sem veitti upplýsingar um hvern- ig fólk skal bera sig að þegar kem- ur að tryggingum, hvenær þurfi að huga að þessu og hvað skuli varast. Hann hvetur fólk til að gera þetta árlega því það muni alltaf fá ein- hvern afslátt en bendir þó á að upphæðin fari eftir árferði. Niður- staðan geti einnig orðið sú að tryggingafélagið sem fólk tryggir nú þegar hjá lækki sínar tryggingar til að halda í viðskiptavininn og fólk getur því haldið áfram að tryggja hjá því félagi. Hvenær: Persónutryggingum, svo sem líf- og sjúkdómatryggingum, má segja upp hvenær sem er en það er af- markaður tími sem þú hefur til að ganga í þessi mál hvað varðar eignatryggingar. Á þeim er aðal- gjalddagi einu sinni á ári og segja þarf upp tryggingum sínum í síð- asta lagi 2 vikum fyrir þann dag. Ef það er ekki gert ertu bundinn tryggingafélagi þínu næsta árið eða þar til næsti aðalgjalddagi kemur. „Það getur verið skynsamlegt, ef þú hefur skamman tíma, að segja tryggingunum upp og fara svo í að leita eftir nýjum tilboðum. Hitt er þó skynsamlegra að fá til- boð frá öllum félögunum og skoða hvað er í boði. Fólk þarf því að vera meðvitað um hvenær gjalddaginn er á þeirra tryggingum til að geta sagt þeim upp í tíma. Hvernig: Einfaldast er að tala við ráðgjafa hjá sínu félagi og fá yfirlit yfir sín mál. Þá skal spyrja ráðgjafann hvað félagið sé tilbúið að gera og hvort það geti lækkað iðgjöldin. Eins skal hafa samband við önnur félög og biðja þau um að gera þér tilboð. Þá bjóða þau upp á að slíkt sé gert á heimasíðum sínum en þar eru umsóknir sem hægt er að fylla út á netinu. „Oft segjast félögin ekkert geta gert til að lækka tryggingarnar fyrr en viðskiptavinurinn fer til annarra félaga og fær tilboð. Þá eru félögin tilbúin að bjóða sambærilegar eða jafnvel lægri tryggingar. Það er mjög algengt.“ Hafa skal í huga: Í fyrsta lagi þarf fólk að vera fullvisst um að það sé rétt tryggt og síðan þegar það fær nýtt tilboð að um sambærilega vernd sé að ræða. Til dæmis þarf að skoða hvort heim- ilisverndin sé sú sem fólk þarf og hvort hún sé sú sama í nýju tilboði. „Fólk getur lent í því að fá lak- ari vernd en einnig að hún hafi ekki verið rétt í upphafi og það getur verið stórmál. Ráðgjafarnir setja stundum inn lakari vernd án þess að geta þess til að fá viðskiptavin- inn til sín. Svo er líka mikilvægt að vera með á hreinu hvers virði inn- búið er og muna eftir öllum föt- um, skartgripum og fleiru. Ef þú átt verðmæta hluti þarftu að muna eftir því að geta þeirra sérstaklega. Innbústryggingar eru iðulega of lágar.“ Tryggingafélögin bjóða upp á eins árs afslátt fyrir nýja viðskipta- vini. Hákon segir að fólk gæti í Fáðu tilboð og sparaðu tugi þúsunda Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.