Dagblaðið Vísir - DV - 12.11.2012, Blaðsíða 23
Fólk 23Mánudagur 12. nóvember 2012
A
uður Jónsdóttir hefur gefið út
bókina Ósjálfrátt. Í bókinni
segir af Eyju, ungri konu sem
giftist drykkfelldum karli sem
er tuttugu árum eldri og flyst í sjáv-
arþorp vestur á landi. Auður notar
eigin lífsreynslu í skriftir og sagði frá
því í viðtali við DV árið 2010 að hún
hefði gifst drykkfelldum manni af
hreinni meðvirkni.
„Mig minnir að ég hafi rankað
við mér þegar ég var 25 ára. Þá bjó
ég með vinkonu minni sem benti
mér á að ég væri farin að biðjast af-
sökunar í öðru hverju orði, en ég
hafði einmitt flutt til hennar stuttu
eftir að ég hætti í sambúð með
manni sem ég hafði flutt inn með
bara af því að því ég kunni ekki við
að móðga hann. Svo það lá eigin-
lega í augum uppi að ég væri með-
virk upp fyrir haus.“
Giftist vegna
meðvirkni
Spilaði með
bjöllukórnum
K
atrín Jakobsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra,
hlýddi á píanóleikarann Vík-
ing Heiðar spila í Hörpu á
fimmtudagskvöld og lofaði hann á
fésbókarsíðu sinni á föstudag. Sjálf
spilaði hún með bjöllukórnum sama
dag og lýsti einnig frammistöðu
sinni.
„Mikið var nærandi að hlusta á
Víking Heiðar í gær, sjálf þreytti ég
frumraun mína á þessu sviði í gær
þegar ég kom fram með bjöllukórn-
um og tókst að halda takti með mik-
illi einbeitingu (datt að vísu einu
sinni út þegar hugur minn hvarflaði
í átt að gjaldmiðlamálum, viss um
að Víkingur Heiðar var ekki að hugsa
um gjaldmiðla þegar hann var að
spila í gær),“ skrifaði ráðherrann.
n Leiddi hugann að gjaldmiðlamálum
n Lýður skrifar um dauðasyndirnar sjö
É
g var búinn að ganga með
þessa hugmynd í maganum
lengi,“ segir sjónvarpsmaður-
inn Logi Bergmann Eiðsson
sem er að senda frá sér sína
fyrstu bók, Handbók hrekkjalómsins.
Vísindaleg skemmtibók
Logi er afar stoltur af frumraun sinni
sem rithöfundur. „Ég er búinn að
stúdera þessi fræði mikið og hef til
að mynda alltaf verið sjúklega mik-
ill áhugamaður um aprílgabb. Í
bókinni skoða ég alls kyns vinkla í
þessu, hvaða reglur gilda, hvað má
og hvað má ekki. Svo eru þarna frá-
sagnir af mínum uppáhaldshrekkj-
um auk þess sem ég fékk fullt af liði
til að segja mér frá sínum uppáhalds-
hrekk. Þetta er nánast vísindalegt en
samt hugsað sem skemmtibók sem
ég vona að fólk flissi yfir.“
Logi tekur nú í fyrsta skipti þátt í
jólabókaflóðinu. „Ég er mjög stoltur
af þessari bók og þá sérstaklega
þegar ég fékk fyrsta eintakið í hend-
urnar. Það verður samt dálítið fyndið
að taka þátt í jólabókaflóðinu. Ég veit
ekkert hvað ég er að gera; verð að
mæta á upplestra, halda útgáfupartí
og annað. En þetta verður allt bara
skemmtilegt.“
Bannað að fara í fýlu
Logi viðurkennir að hafa alltaf verið
mjög hrekkjóttur sjálfur. „Ég held að
allir geti fallist á það að ég er svaka-
lega hrekkjóttur. Hrekkir þurfa ekk-
ert alltaf að vera flóknir, bara fyndn-
ir. Það er grundvallarregla. Mínir
upp áhaldshrekkir eru þeir sem eru
blanda af góðri hugmynd, réttum
viðbrögðum og réttri tímasetningu.
Þetta þarf allt að fara saman. Það er
auðvelt að ætla að hrekkja fólk með
því til dæmis að taka dótið þess og
fela það en ef það er ekkert meira í
því verður það ekkert f yndið. Hrekk-
urinn verður að segja eitthvað um
karakterinn. Það verður að vera eitt-
hvað undir eða að eitthvað hafi gerst
á undan.“
Hann segir hrekkjalóma verða
að fara eftir nokkrum grundvallar-
reglum. „Stóra málið er að einelti er
aldrei fyndið. Reglan er sú að ef ein-
hver biður þig um að hrekkja sig ekki
þá verður þú að fylgja því. Ef ég stend
upp frá tölvunni í vinnunni og er far-
inn í kaffi og bið fólk um að láta tölv-
una mína í friði á meðan verður fólk
að virða það. Sjálfur virði ég slíkt;
þetta er lögmál þess sem hrekkir.
Þetta eru ákveðin fræði sem verða ör-
ugglega kennd í háskólanum eftir tvö,
þrjú ár.“
Logi segist sjálfur taka gríni og
neitar því að hann verði reiður þegar
hann er hrekktur. „Mér finnst mjög
skemmtilegt þegar ég er hrekktur og
finnst allt of lítið gert af því. Ef þú gerir
grín að fólki verður þú sjálfur að geta
tekið gríni. Það er ekkert glataðra en
að vera týpan sem gerir grín en verð-
ur svo klumsa og fúll þegar gert er
grín að honum. Ég bregst allavega við
þegar ég er hrekktur og get alveg blót-
að mönnum en það er aldrei meira en
það. Í versta falli þykist ég hafa húmor
fyrir hrekknum. Það er líka lykilatriði,
það má aldrei fara í fýlu.“ n
„EinElti Er
aldrEi fyndið“
n Logi Bergmann Eiðsson skrifar bók um hrekki
Úr Handbók hrekkjalómsins
A
dolf Ingi Erlingsson,
íþróttafréttamaður á Ríkis-
útvarpinu, var um tíma for-
maður Samtaka íþrótta-
fréttamanna og þurfti að sinna
ýmsum skyldum á erlendum vett-
vangi. Einhverju sinni var hann
sendur á ráðstefnu til Dubai. Þar
þekkti hann einhvern spaða sem
bauð honum gistingu á rosa fínu
hóteli með gasalega fínum golf-
velli. Og Dolli þurfti svolítið að
sýna okkur þetta, sem er alveg gott
og blessað, nema hann bara hætti
ekki. Hann talaði um þetta út í eitt
og sýndi okkur myndir af hótelinu
og vellinum. Og það var orðið ljóst
að hér þurfti að gera eitthvað.
Ég vissi nafnið á hótelinu og
fann númerið og hringdi:
L: Góðan daginn. Erlingsson heiti
ég og á bókað á hótelinu hjá ykkur
í kvöld og næstu daga.
Starfsmaður í móttöku: Já það
passar.
L: Eins og þú sennilega veist þá er
mars mikilvægur mánuður í hin-
um heiðnu trúarbrögðum okkar.
Þá vottum við guðunum virðingu
okkar með því að sýna nægjusemi
og neita okkur um munað.
S: Já. Einmitt.
L: Þess vegna er gríðarlega mik-
ilvægt þegar ég kem í kvöld, eftir
langt ferðalag, að ég freistist ekki
til að njóta nútímaþæginda. Því er
mjög mikilvægt
að í herberginu
mínu verði ekk-
ert rúm.
S: Já alveg sjálf-
sagt. Við tökum
það út áður en
þú kemur.
Grínið var
að sjálfsögðu
að þegar Dolli
kæmi, eftir tólf
tíma ferðalag, og gengi inn á fína
herbergið, á fína hótelinu, með
fína golfvellinum væri ekkert rúm
í herberginu! Starfsfólk á hótelum
er alltaf að fá undarlegar beiðnir
og því var þetta ekkert mál.
Þegar Dolli mætir svo á hótel-
ið, undir morgun og algjörlega bú-
inn á því, er herbergið ekki tilbúið.
Honum er sagt að bíða smá stund.
Og hann bíður býsna lengi. Svo fer
hann að athuga hvort herbergið sé
ekki að verða tilbúið og fær svarið:
„Jú. Bara fimm mínútur enn.
Það er aðeins flóknara en við héld-
um að ná rúminu út.“
Dolli vissi ekki hvaðan á sig
stóð veðrið en var fljótur að leggja
saman tvo og tvo. En næst þegar
hann fór til útlanda, þá hélt hann
því mest fyrir sjálfan sig fyrir brott-
för.
Kafli úr bókinni
Úr Handbók hrekkjalómsins.
LOGI BERGMANN EIÐSSON
LO
G
I BERG
M
A
N
N
EIÐ
SSO
N
H
REK
K
JA
LÓ
M
SIN
S
Það er algjör misskilningur að innra með
Loga Bergmann Eiðssyni búi settlegur fréttaþulur
í snyrtilegum jakkafötum.
Nei, hans innra sjálf hefur alla tíð verið í meira lagi uppátækjasamt og hrekkjóttara en gengur og gerist.Með aldrinum hefur hann náð að temja örlítið í sér hrekkvísina, þroska hana og þróa, og hrekkir nú
samborgara sína af fáheyrðri alúð og umhyggju
í þeirra garð. Þeir kunna líka
að meta það. Flestir.
Í þessari bók leiðir Logi lesendur í allan
sannleika um hrekki, hvað má og hvað ekki, gefur góðar hugmyndir og segir sögur af þeim hrekkjum
sínum sem hann er stoltastur af.
Ekki má svo gleyma játningum og
frægðarsögum þekktra og minna þekktra
hrekkjalóma sem sinna margvíslegum hlutverkum í daglega lífinu, allt frá því að stjórna lögreglunni
til þess að stjórna landinu - og allt þar á milli.
Hrekkjóttur Þeir gerast
ekki hrekkjóttari en Logi
Bergmann sem heldur því
fram að sjálfur kunni hann
að taka gríni.
Úr stjórnlagaráði
á ritvöllinn
D
raumsýn hefur gefið út skáld-
söguna Svarta túlípana eftir
Lýð Árnason lækni.
Um er að ræða fyrstu
skáldsögu Lýðs sem er læknir, liðs-
maður Dögunar og fyrrverandi full-
trúi í stjórnlagaráði. Bókin er gefin
út af bókaforlaginu Draumsýn. Um-
fjöllunarefni hennar er dauðasynd-
irnar sjö og hvernig þær stýra lífi
söguhetjanna. Lýður hefur skrifað
handrit að nokkrum kvikmyndum
og leikstýrt, einnig gefið út nokkrar
smásögur ásamt því að hafa skrifað
aragrúa greina um þjóðfélagsmál.
Í tilefni útgáfunnar var efnt til út-
gáfuhófs í Iðu bókabúð á fimmtu-
dag í síðustu viku. Fjölmennt var
í hófinu og mættu nokkrir fé-
laga hans úr stjórnlagaráði, meðal
annars Þorvaldur Gylfason og Gísli
Tryggvason. Í hófinu sagði Lýður frá
tilurð bókarinnar og las upp valda
kafla.
Skrifar út frá eigin reynslu Auður Jóns-
dóttir hefur gefið út bókina Ósjálfrátt.
Lýður les Læknir
og fyrrverandi full-
trúi stjórnlagaráðs
gerist rithöfundur.