Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Blaðsíða 6
6 Fréttir 21.–27. desember 2012 Jólablað
Stórskuldug vídeóleiga
n Skuldaði 850 milljónir króna n Tók 300 milljóna gengislán
V
ídeóleigan Bónusvídeó í Lág-
múla skuldaði tæplega 850
milljónir króna þegar félagið
var tekið til gjaldþrotaskipta.
Skiptum er lokið á félaginu og fund-
ust engar eignir upp í kröfurnar, sem
námu nákvæmlega 844.821.872 krón-
um. Þetta kemur fram í tilkynningu í
Lögbirtingablaðinu.
Bónusvídeó var tekið til gjaldþrota-
skipta þann 30. júní 2009 samkvæmt
úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur og
lauk skiptum á búinu þann 14. des-
ember.
Á vef Viðskiptablaðsins kemur fram
að skuldastöðu félagsins megi að stóru
leyti rekja til þess að vídeóleigan fékk
300 milljóna króna gengistryggt lán frá
Íslandsbanka árið 2007. Þetta lán tvö-
faldaðist við hrun íslensku krónunnar
árið 2008. Á sama tíma hafa viðskipti
neytenda við vídeóleigur minnkað
umtalsvert með tilkomu stafrænnar
leigu á myndefni í gegnum internetið
og niðurhali á kvikmyndum í gegnum
netið.
ingi@dv.is
Fáðu greinar í heild sinni
á DV.is og vefáskrift
af prentútgáfu DV
* Verðið er 790 kr. fyrstu
3 mánuðina, en 1.790 kr. eftir það.
fyrir 790 kr.
á mánuði *
Sjáðu
meira
Nærri 850 milljóna þrot
Bónusvídeó skuldar nærri
850 milljónir. Skiptum er
lokið á félaginu eftir að Hér-
aðsdómur Reykjavíkur setti
félagið í þrot árið 2009.
Lést í eldsvoða
í Grundarfirði
Karlmaður lést í eldsvoða í
Grundarfirði aðfaranótt miðviku-
dags. Neyðarlínunni barst tilkynn-
ing um eldsvoðann sem þá hafði
breiðst út í íbúðarhúsi í bænum
rétt fyrir klukkan þrjú um nóttina.
Slökkvilið var þegar kallað út og
sent á staðinn. Mikill eldur var
í húsinu og reykkafarar fundu
manninn látinn. Hann bjó einn í
húsinu. Húsið er stórskemmt en
lögreglurannsókn stendur nú yfir.
Allt tiltækt slökkvilið á svæðinu tók
þátt í að ráða niðurlögum eldsins.
Smygl og brask
með sætuefni
Með tilliti til þess að þegar og ef
sykurskattsfrumvarp stjórnvalda
gengur í gegn þurfi að greiða 42 þús-
und krónur fyrir hvert kíló af sætu-
efnum er ástæða fyrir tollyfirvöld að
breyta áherslum sínum til að sporna
við braski og smygli á slíkri munað-
arvöru. Guðbjörn Gunnarsson, yf-
irtollvörður og bloggari, bendir á að
frumvarp stjórnvalda um stórauknar
álögur á matvæli og drykki sem ekki
samræmast manneldissjónarmið-
um hafi ekki aðeins í för með sér að
sykur hækki í verði heldur og sætu-
efni hvers kyns. Þannig færu vöru-
gjöld á eitt einasta kíló af sætuefnum
í 42 þúsund krónur eða sem nemur
tvöföldu gjaldi sem sett er á tóbak.
„Vörugjaldið á hvert kíló af sætu-
efnum færi því upp í 42.000 kr. Sem
innheimtumaður ríkisins hef ég inn-
heimt mikið af gjöldum um ævina,
eða að minnsta kosti átt hlutdeild
í þeirri toll- og skattheimtu. Aldrei
áður hef ég séð slíka skattlagningu
á nokkurn hlut, nema hugsanlega
hvað varðar áfengi eða tóbak,“ seg-
ir hann.
A
fkoma íslenskra sjávarút-
vegsfyrirtækja (EBIDTA) var
umtalsvert betri á síðasta ári
en talið var í útreikningum
um veiðigjöld, eða tæplega
80 milljarðar króna í stað 72 milljarða.
Þessi tala kom fram í riti Hagstofunn-
ar um hag veiða og vinnslu sem út
kom á fimmtudagsmorgun. Þá kem-
ur fram að hreinn hagnaður sjávar-
útvegarins hafi numið tæplega 60
milljörðum króna í fyrra eða 22,6 pró-
sentum af heildartekjum.
Afkoma sjávarútvegarins batnaði
um tæplega 26 prósent á milli ára en
árið 2010 hafði hún numið 64 millj-
örðum króna. Á heimasíðu atvinnu-
vega- og nýsköpunarráðuneytisins,
sem stýrt er af Steingrími J. Sigfús-
syni, kemur fram að EBIDTA sjávarút-
vegarins hafi ekki verið hærri í langan
tíma og að niðurstaðan um afkomuna
sýni að spáin sem veiðigjöldin byggðu
á hafi verið undir þessari niðurstöðu.
„Niðurstaðan nú sýnir að sú spá var
talsvert undir raunniðurstöðu,“ segir
á heimasíðunni.
263 milljarða tekjur
Heildartekjur útgerðarinnar námu
263 milljörðum króna í fyrra. Á móti
þessum tekjum var ýmiss konar
kostnaður við aðföng til dæmis olía,
18 milljarðar króna, og hráefni, 13
milljarðar króna. Þá var launakostn-
aður útgerðarinnar tæpir 80 millj-
arðar króna.
Eftir að búið er að reikna út
allan þennan kostnað af rekstri ís-
lenskra sjávarútvegsfyrirtækja, laun,
olíu, kostnað við veiðarfæri, fjár-
magnskostnað, vaxtakostnað, hrá-
efniskostnað og annað slíkt, stendur
hins vegar eftir að hreinn hagnað-
ur útgerðarinnar í fyrra nam tæpum
sextíu milljörðum króna.
Þá segir í töflu yfir eignir og skuld-
ir allra sjávarútvegsfyrirtækja að
heildareignirnar nemi 547 milljörð-
um króna en að á móti þessum eign-
um séu rúmlega 443 milljarða króna
skuldir. Eiginfjárstaða sjávarútvegar-
ins er því jákvæð um 104 milljarða
króna og nemur eiginfjárhlutfallið
19,1 prósenti. Athygli vekur að eigin-
fjárstaða sjávarútvegarins batnar til
muna á milli áranna 2010 og 2011, fer
úr tæplega 29 milljörðum árið 2010 og
upp í rúmlega 104 milljarða króna.
Veiðigjöld áætluð 12,5
til 13 milljarðar
Á heimasíðu ráðuneytis Steingríms J.
Sigfússonar segir að búist sé við því
að árið 2012 hafi verið gott í sjávar-
útvegi, líkt og árið í fyrra: „Árið
2012 verður að líkindum einnig gott
rekstrarár fyrir sjávarútveginn. Gengi
ISK hefur haldist veikt, þorskkvót-
inn var aukinn talsvert og veiðar og
vinnsla á uppsjávarfiski hafa geng-
ið vel á árinu. Á móti hefur verð á
erlendum mörkuðum lækkað, ekki
síst á botnfiskafurðum. Á heildina
litið eru þó afkomuhorfur góðar fyrir
sjávar útveginn árið 2012. Til upplýs-
ingar er veiðigjald á árinu 2012/2013
áætlað um 12,5–13,0 milljarðar
króna.“
Miðað við afkomu sjávarútvegar-
ins í fyrra, og áætluð veiðigjöld fyrir
árið 2012/2013, ætti sjávarútvegur-
inn að greiða um það 15 prósent af
EBIDTA-hagnaði sínum í veiðigjöld,
umrædda 12,5 til 13 milljarða króna.
Þá má áætla, ef árið í ár hefur verið
jafngott og í fyrra, að hreinn hagnað-
ur sjávarútvegarins yrði 48 eða 47,5
milljarðar króna, eftir að veiðigjöldin
hafa runnið til ríkisins. Spurningin
er sú hvort útgerðarfyrirtækin gætu
staðið undir slíkri greiðslu eða ekki. n
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
60 milljarða hagn-
aður af útgerðinni
n Eiginfjárstaða sjávarútvegarins batnar um 75 milljarða á milli ára„Niðurstaðan nú
sýnir að sú spá var
talsvert undir raunniður-
stöðu.
Frumvörpunum mótmælt Fjölmenn
mótmæli voru á Austurvelli í sumar þar sem
útgerðarmenn og einhverjir af starfsmönnum
útgerðarfélaga mótmæltu frumvörpum ríkis-
stjórnarinnar um veiðigjöld og stjórn fiskveiða.