Dagblaðið Vísir - DV - 21.12.2012, Side 64
Samstaða
um
fátækt!
Vigdís ekki með
gervijólatré
n Fleiri Framsóknarmenn setja
upp gervijólatré um hátíðarnar, en
stuðningsmenn annarra flokka,-
samkvæmt könnun MMR. Það
gerir Vigdís Hauksdóttir þing-
maður flokksins hins vegar ekki.
Nokkrum dögum áður en könnun-
in var birt sagði hún vinum sínum
á samskiptasíðunni Facebook frá
því að hún væri búinn að setja upp
furutré. „Ég bara sver það hvað
furan okkar er falleg – með köngl-
um,“ skrifaði hún. Það þarf svo
sem ekki að koma á óvart að Víg-
dís velji sér lifandi
tré en hún starfaði
um árabil sem
blómaskreyt-
ir áður en hún
settist aftur á
skólabekk og
nam lögfræði.
Engin jólakort
frá Samstöðu
n „Nú er því miður staðan sú að
kostnaðurinn við að senda jóla-
kort er orðinn það hár að við
neyðumst til að sleppa því þetta
árið,“ segir Birgir Örn Guðjóns-
son, formaður stjórnar Sam-
stöðu, flokks lýðræðis og vel-
ferðar. Flokkurinn mun því ekki
senda út jólakort í ár. „Ég vona að
ég geti óskað sem flestum gleði-
legra jóla í persónu og ykkur hin-
um munum við fjölskyldan senda
jólakveðju á einhvern hátt. Mér
þykir þetta afskaplega sorglegt
og ég vona svo sannarlega að
aðstæður verði breyttar að ári
liðnu.“ Samstaða hyggur á fram-
boð í öllum kjördæmum landsins
í næstu alþingiskosningum, en
að sögn forsvars-
manna flokksins
er hann hvorki til
vinstri né hægri,
heldur er um
„nýja hugsun í
stjórnmálum“ að
ræða.
Egill Helga farinn
að eldast
n Svo virðist sem aldurinn sé far-
inn að færast yfir þáttastjórnand-
ann og samfélagsrýninn Egil Helga-
son. „Nú er ég að verða gamall,“
segir Egill í nýlegri stöðu-
uppfærslu á Facebook
en samkvæmt því sem
þar kemur fram virð-
ist hann vera farinn
að heyra illa. „Ung-
ur maður sagði við
mig áðan
að hann
ætlaði að
fara upp í
Kringlu og
ná sér í sim-
kort. Ég hváði
og spurði hvort
hann ætlaði að
ná sér í sund-
kort.“ Þess má
til gamans geta
að Egill er 53
ára.
K
alkúnninn hefur aldrei verið
betri en akkúrat núna. Eina
kvörtunin sem hefur borist
okkur er sú að hann hafi ver-
ið of safaríkur,“ segir Þórarinn Örn
Ævarsson, framkvæmdastjóri IKEA,
en í eldhúsi fyrirtækisins er boðið
upp á kalkún yfir hátíðarnar.
Athyglisvert er að verðið hefur
staðið í stað síðustu fjögur árin, þrátt
fyrir að neysluverð á mat hafi hækkað
um 20 prósent. Kalkúnaskammtur-
inn hefur alla tíð verið á 990 en ýmis-
legt hefur verið lagt á sig til þess að
halda þessu verði.
„Þetta er fjórða árið sem við erum
með kalkún. Fyrst keyptum við hann
tilbúinn og niðurskorinn og keyptum
fyllingu úti í bæ,“ segir Þórarinn. Um
500 kíló voru þá keypt inn af kjötinu.
Vegna mikillar eftirspurnar var leik-
urinn endurtekinn árið eftir. Verðið
var þó búið að hækka svo IKEA-
menn ákváðu að skera sjálfir kjötið
til að stemma stigu við verðhækkun-
inni. „Þannig náðum við verðinu að-
eins niður,“ segir Þórarinn. Árið eftir
hækkaði kalkúnninn enn, og því var
frekari aðgerða þörf: „Þá ákváðum
við að byrja að gera fyllinguna sjálfir.“
Í ár hafði svo kalkúnninn hækkað
enn meira í verði. „Við ákváðum
að flytja hann sjálf inn, hráan. Við
krydduðum hann sjálf og elduðum,“
segir Þórarinn og niðurstaðan lét ekki
bíða eftir sér: „Hann hefur aldrei ver-
ið safaríkari,“ segir hann um kalkún-
inn sem er enn á 990 krónur. Í ár voru
um 3,8 tonn af kalkúni keypt. Þegar
hafa selst um 17 þúsund skammtar.
En hvað gerir kalkúninn svona
safaríkan? „Hann er nú eiginlega
smjörsoðinn,“ segir Þórarinn. „Við
setjum bringurnar í plastpoka með
smjöri og ýmsum kryddblöðum. Svo
er bundið fyrir pokann og kalkúnn-
inn soðinn í honum. Smjörið kemst
ekkert í burtu og smýgur á endanum
inn í kalkúninn.“
Tæp fjögur tonn af kalkún í IKEA
n Leggja ýmislegt á sig til þess að halda verðinu í 990 krónum
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80jólablað 21.–27. dEsEmbEr 2012 148. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Í poka Þórarinn afhjúpar leyndarmálið á
bak við safaríka kalkúninn í IKEA.
Föndurlist óskar landsmönnum
gleðilegra jóla og farsældar á
nýju ári. Þökkum viðskiptin.
www.fondurlist.is - Sími: 553 1800
Það hefur aldrei verið
auðveldara að spara
Óskum öllum gleðilegra jóla,
þökkum fyrir viðskiptin á
árinu sem er að líða.
Minnum á flugeldatilboð
á síðunni milli
jóla og
nýárs
Ert þú að hlusta?
Jólarásin.is
Minnum á beinar útsendingar
frá Njarðvíkurkirkju um jólin og
áramótin beint á Jólarásinni