Víkurfréttir - 29.11.2012, Qupperneq 8
AÐVENTA • fimmtudagurinn 29. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR8
Heilsusamlegar jólagjafir
Nú styttist óðum í jólin og margir farnir að huga
að jólagjöfum og fleiru tengt
jólahaldinu og því langaði
mig til að koma með
sniðugar hugmyndir í
jólapakkana sem allar
hafa það sameiginlegt
að tengjast heilsunni.
Bækur falla yfirleitt
vel í kramið hjá flestum en undan-
farið hafa komið út margar mjög
góðar bækur eins og Heilsuréttir
fjölskyldunnar, Happ Happ Húrra,
Eldað með Ebbu í Latabæ, Heilsu-
súpur og salöt eftir Auði Heilsu-
kokk, Ljúfmeti og lækningajurtir,
Eftirréttabók eftir Sollu Eiríks og
Ung á öllum aldri eftir Guðrúnu
Bergmann. Þarna er að finna ýmsan
fróðleik og uppskriftir sem hvetja okkur til
heilsusamlegri lífsstíls. Það er
einnig sniðugt að velja saman
nokkra hluti í litla bastkörfu
eins og gott jurtate eða lífrænt
kaffi, hollt súkkulaðikonfekt
og lífræna heilsusafa. Lífrænar
snyrti- og húðvörur koma að
góðum notum og er vegleg
gjöf. Svo er líka gaman að gefa
heimagerðar hollar smákökur
eða heimagert konfekt og setja í fallega
krús og skreyta með slaufu. Það hefur líka
tíðkast að gefa gjafakort í nuddi og spa eða
öðrum heilsumeðferðum sem auka heilsu
og vellíðan. Það er sem sagt úr ýmsu að velja
ef þið viljið gleðja einhvern með heilsusam-
legri jólagjöf
Heilsukveðja, Ásdís grasalæknir.
www.facebook.com/grasalaeknir.is
www.pinterest.com/grasalaeknir
Ásdís
grasalæknir
skrifar
hEIlsUhoRNIÐ
Bolur 3.990,-
Buxur 11.990,- Skyrta 7.990,-
jólapakkann
Tilvalið í
handa honum
Úlpa kr. 15.990,- Peysa 8.990,- Peysa - 10.990,-
Hafnargötu 29 - 230 Reykjanesbæ s. 660 1757
facebook.com/krummaskud
TIL SÖLU!
Staðurinn hefur verið í góðum
rekstri í 24 ár. Leyfi er fyrir 140
manns, sæti fyrir 60 og auðvelt að
bæta við sætum.
Barinn á sér fastan sess í hugum
Grindvíkinga og hafa frægustu
skemmtikraftar landsins stigið þar
á stokk.
Kanturinn Bar-Matkrá-PUB. Já, þessi rótgróni bar er til sölu.
Áhugasamir hafið samband: solvik.restaurant@gmail.com, Árni 770-6368.
Jólaljós
TILKYNNING FRÁ KIRKJUGARÐI NJARÐVÍKUR
Byrjað verður að kveikja á jólaljósum
laugardaginn 1. desember kl. 13.00
Opnunartímar:
Þriðjudaga frá kl. 17:30 - 19:00 (4., 11. & 18.des.)
Fimmtudaga frá kl. 17:30 - 19:00 (6., 13. & 20. des.)
Laugardaga frá kl. 13:00 - 17:00 (1., 8., 15. & 22. des.)
Síðasti opnunardagur er 22. des.
í Kirkjugarði
Njarðvíkur
Ég tel mig knúinn til að gera athugasemd við forsíðufrétt
Víkurfrétta í síð-
asta blaði um aðal-
fund FSS. Þar er
fullyrt að ég hafi
dæmt aðalfundinn
ólöglegan vegna
mótframboðs og er
látið í það skína að
ég hafi gert það vegna eigin hags-
muna. Þetta er alrangt, ég dæmdi
aðalfundinn aldrei ólöglegan.
Aðalfundinum var frestað og ekki
að minni tillögu heldur kom til-
laga um frestun innan stjórnar
FSS. Það var gert til að gefa fólk-
inu sem kom óvænt á fundinn
kost á því að ganga í félagið til að
geta kosið á aðalfundi. Ef aðal-
fundurinn hefði verið dæmdur
ólöglegur hefði ekki verið hægt að
halda framhaldsaðalfundinn sem
var haldinn 20. þ.m. heldur hefði
Athugasemd við
frétt um aðalfund FSS
þurft að boða til nýs aðalfundar.
Í fréttinni er einnig fjallað um
væntanlegt brotthvarf mitt frá
Markaðsstofu Suðurnesja þar sem
ég hef gegnt stöðu framkvæmda-
stjóra frá byrjun. Bara svo það sé á
hreinu þá tilkynnti ég stjórn Mark-
aðsstofunnar í september sl. að
ég vildi hætta sem framkvæmda-
stjóri og leitað yrði að nýjum fram-
kvæmdastjóra sem fyrst. Þetta til-
kynnti ég einnig SSS, en að láta þá
vita tengdist því að ég hef unnið
að því ásamt stjórn MS að Heklan
yrði stór aðili að Markaðsstofunni.
Okkur tókst að ná þessari breyt-
ingu fram og er Heklan nú með
meirihlutann í stjórn Markaðsstofu
Suðurnesja.
Mér þótti miður að félagar mínir úr
fyrri stjórn, þau Helga Ingimundar-
dóttir, Reynir Sveinsson og Óskar
Sævarsson voru ekki kjörin í nýja
stjórn FSS. Þau þekkja Reykjanesið
betur en flestir aðrir og hafa starfað
í samtökunum áratugum saman.
Það var ómetanlegt fyrir mig þau
10 ár sem ég var formaður að hafa
þau mér við hlið. Með þeim og
fleirum hefur FSS unnið stórvirki
í uppbyggingu ferðaþjónustunnar
á Suðurnesjum. Á meðal verkefna
sem FSS hefur unnið að á síðustu
10 árum er m.a. stofnun Markaðs-
stofu Suðurnesja, uppbyggingin við
Gunnuhver, endurgerð aðgengis að
Garðskagavita, uppsetning sjón-
skífu á Keili, hlaðin náttúrulaug
við Reykjanesvita, stofnun 100 gíga
garðsins, stikun 17 fornra þjóðleiða
á Reykjanesinu og gönguleiðakort,
aðild að stofnun ReykjanesGeop-
ark, ráðstefna um geotourism og
frumhönnun að þjónustuhúsinu
Valan við Valahnúk. Á vegum
Markaðsstofunnar hefur svo verið
unnið að fjölda verkefna. Vil ég
þakka öllu því góða fólki sem ég hef
unnið með fyrir frábært samstarf.
Að lokum vil ég óska nýrri stjórn
FSS velfarnaðar í störfum sínum
fyrir ferðaþjónustuna á Suður-
nesjum.
Kristján Pálsson
vf.is
Metan er innlendurog umhverfisvænn
orkugjafi sem er
helmingi ódýrari
en bensín.
Nýttu þér kostimetans með
Volkswagen.
K. Steinarsson – Njarðarbraut 13420 5000 - heklakef@heklakef.is
Das Auto.
Opið allan
sólarhringinn
Fitjum
NÝTTMorgunverðar-matseðillAðeins í boði áSubway Fitjum
14. tölublað • 32. árgangur • Fimmtudagurinn 7. apríl 2011
Mjódd - Salavegur - Hverafold - Akureyri - Höfn - Grindavík - Reykjanesbær Skráðu þig á póstlistann á www.netto.is
989kr/stk.
Tilboðsverð! 339kr/stk.
Tilboðsverð!
Easy
ÞvoTTaEfni
aloE vEra
2.7 kg
Easy
MýkingarEfni
2 l
| www.flytjandi.is | sími 525 7700 |
VIÐ ERUM DAGLEGA Á FERÐINNI MEÐ VÖRUR UM ALLT LAND
Víkurfréttir ehf.Grundarvegur 23 - 260 ReykjanesbærSími 421 0000 - Póstur: vf@vf.isAfgreiðslan er opin virka daga kl. 09-17
Það er háspenna í körfuboltanum í Reykjanesbæ þessa dagana. Keflavík og KR eigast við í undan-
úrslitum Iceland Express-deildar karla í körfuknattleik og staðan í viðureign liðanna er 2:2.
Oddaleikur verður í viðureign liðanna í KR-heimilinu í Reykjavík í kvöld. Spennan er ekki minni
í úrslitaviðureign Keflavíkur og Njarðvíkur í kvennaboltanum. Þar er staðan reyndar orðin 2:0
fyrir Keflavík eftir tvo æsispennandi háspennuleiki. Keflavíkurstúlkur geta orðið Íslandsmeistarar
kvenna með sigri á Njarðvíkurstúlkum í Keflavík annað kvöld, föstudagskvöld. VF-mynd: HBB
Æsispennandi
körfuknattleikir
- sjá nánar á bls. 23
Víkurfréttir
Krossmóa 4a, 4. hæð,
260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000
Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin
virka daga kl. 09-17
Auglýsingasíminn
er 421 0001
FIMMTUdagUrInn 22. nóveMber 2012 • 46. TölUblað • 33. árgangUr
Holtsgötu 52 - 260 Reykjanesbæs. 420 5000 - Fax: 421 5946
WWW.N1.IS
ÞÚ FÆRÐ VETRARDEKKINHJÁ N1!
Opið: virka daga 11-18
Heilsuform Reykjanesbæ, Krossmóum
VINSÆLASTI ORKUDRYKKUR Á ÍSLANDI Í DAG!
R E Y K J A N E S BÆ
n Breytingar í Ferðamálasamtökum Suðurnesja (FSS) og hjá Markaðsstofu Suðurnesja. Fá meira fré frá SSS:
n D-listinn aftur til valda í Garði með L-lista:
S ævar Baldursson var kos-inn nýr formaður Ferða-málasamtaka Suðurnesja á fjölmennum aðalfundi sam-takanna sl. þriðjudag. Sem kunnugt er urðu mikil átök á aðalfundi þann 24. október sl. þegar þáverandi formaður, Kristján Páls-son, sleit fundi og lýsti hann ólöglegan eftir að Sævar bauð sig fram gegn honum.Aðalfundurinn var því haldinn á ný í fyrra-dag og mættu hátt í 50 manns. Kristján Páls-son lýsti því yfir í upphafi fundar að hann gæfi ekki kost á sér áfram sem formaður Ferðamálasamtaka Suðurnesja. Sævar var sá eini sem bauð sig fram til for anns og var því sjálfkjöri n. Fjórir stjórnarmenn gáfu áfram kost á sér í stjórnina, þar af þrír sem hafa starfað náið með Kristjáni mörg undanfarin ár, þau Reynir Svei sson, Óskar Sævarsson og Helga Ingimundardóttir. Í
stjórnarkjörinu voru þau öll felld. Í staðinn voru kosin í stjórn þau Brynhildur Krist-jánsdóttir í Vitanum Sandgerði, Sigurbjörn Sigurðsson í Kaffi Duus, Bjarni Geir Bjarna-son frá Upplifum Reykjanes, Hartmann Kárason frá Bláa lóninu sem einnig sat áður í stjórn, og Þorsteinn Gunnarsson frá Upp-lifðu Grindavík. Þá tilnefna SSS einnig einn aðila í stjórn.
Fram kom á fundinum að Ferðamálasamtök Suðurnesja, Markaðsstofa Suðurnesja og Heklan – Atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, hafa skrifað undir viljayfirlýsingu þar sem fram kemur að Heklan yfirtekur Markaðs-stofu Suðurnesja frá og með 1. janúar nk.Kristján Pálsson segir að frá því að Mark-aðsstofan var stofnsett fyrir fjórum árum hafi stjórn hennar unnið að því að fá sveitar-félögin inn í reksturinn til að styrkja þessa grunnstoð ferðaþjónustunnar fjárhagslega og efla markaðsstarfið í ferðaþjónustunni.
Markaðsstofan hefur sinnt verkefnum sem lúta að markaðssetningu ferðaþjónustunnar eins og bæklingaútgáfu, rekstri heimasíð-unnar visitreykjanes.is, upplýsingamið-stöðvar í Flugstöð Leifs Eiríksso ar og Upplýsingamiðstöðvar Suðurnesja auk þess að taka þátt í ráðstefnum og samstarfi við opinbera aðila eins og markaðsstofur lands-hlutanna, Ferðamálastofu og Íslandsstofu. Kristján segist fagna þessum tímamótum í starfseminni sem tryggi rekstur þessarar einingar ferðaþjónustunnar til framtíðar.Á bæjarstjórnarfundi í Reykjanesbæ í vik-unni kom fram að stjórn Sambands sveitar-félaga á Suðurnesjum, SSS, samþykkti á síðasta fundi sínum að auka fjármagn til Markaðsstofu Suðurnesja.Kristján Pálsson hefur starfað sem fram-kvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurnesja undanfarin ár og mun láta af því starfi við yfirtöku Heklunnar.
Stjórnarbylting í FSS
M eirihlutinn í Garði er að falla. Bæjarráðsfundi, sem vera átti nú í morgun, fimmtudagsmorgun, hefur verið frestað. Fulltrúar D-lista og fulltrúi L-lista eru að mynda nýjan meirihluta, sam-kvæmt heimildum Víkurfrétta. Samkvæmt sömu heimildum verður Magnús Stefánsson áfram bæjarstjóri.D-listinn missti meirihluta sinn í vor þegar Kolfinna S. Magnúsdóttir myndaði nýjan meirihluta með fulltrúum N- og L-lista. Nú er sá meirihluti að
falla þar sem fulltrúi L-lista er að ganga til nýs meirihlutasam-starfs við D-listann.Davíð Ásgeirsson, bæjarfulltrúi L-listans í Garði, segir að vegna áherslumuns í stjórnunarað-ferðum hafi hann ákveðið að fara í viðræður við D-listann um myndun nýs meirihluta í Garði.
Enginn fundur hefur farið fram í L-listanum um málið. Sá fundur fer fram nk. laugardag. Einar Jón Pálsson, oddviti D-listans, vildi ekki tjá sig um málið þegar eftir því var leitað í gær.
Meirihlutinn í
Garði fellur aftur
Kvikmyndatónlist var allsráðandi á tónleikum lúðrasveita Tónlistarskóla Reykjanesbæjar í Stapanum í fyrrakvöld en þá komu fram um sjötíu nemendur frá 9 ára aldri. Einbeitingin skein úr andlitum þessara ungu stúlkna þegar þær blésu í flautur undratóna með gömlu stórmyndinni um Mary Poppins.
VF-mynd/pket.
Sævar
Baldursson