Víkurfréttir


Víkurfréttir - 29.11.2012, Síða 14

Víkurfréttir - 29.11.2012, Síða 14
AÐVENTA • fimmtudagurinn 29. nóvember 2012 • VÍKURFRÉTTIR14 lífið á bretlandseyjum „Ekki hafði ég heyrt mikið um borgina þegar ég og unnusta mín fluttumst hingað í haust. Í rauninni vissi ég hreinlega ekki að hún væri til. Það kom svo í ljós að Bath er sögufræg borg þar sem Rómverjar ríktu á dögum krists. Hér er eini staðurinn á Englandi þar sem heitt vatn er í jörðu og aðalsmerki bæjarins eru rómversku böðin sem hafa staðið í miðju borgar- innar frá því um 100 árum fyrir komu frelsarans. Eins og sannur ferðamaður kíkti ég í heimsókn á umræddan baðstað og var afar forvitnilegt enda er staðurinn á heimsminjaskrá UNESCO, eins og borgin reyndar öll. Það var merkilegt að velta því fyrir sér að þarna var komin þessi fína sundlaug og heitir pottar á þessum tíma, þegar maður hugsar til þess að skólasund á Íslandi var stundað í sjó lengi framan af 20. öld, þrátt fyrir töluvert af heitu vatni í jörðu. Þeir voru svo sannarlega með þetta Rómverjarnir. Bath telst þó varla sem borg. Hér búa jú um 80 þúsund manns en þetta er bara svo lítið og krúttlegt að maður hugsar um Bath sem bæ, enda er mikill bæjarbragur hérna. Byggingar hérna eru flestar gamlar og fallegar. Mikið er byggt upp í hinar bröttu hlíðar sem umlykja bæinn en þær eru allt að 280 metra háar og setja sannarlega mikinn svip á umhverfið hérna. Það getur verið hressandi að taka gönguferð upp hlíðarnar og þá er útsýnið alveg þess virði, þó enska þokan sé stundum með leiðindi og hindri manni sýn. Maður getur ímyndað sér að hérna sé æðislegt að vera á sumrin. Hér er afar gróðursælt og veður mjög stillt, a.m.k hefur veðrið leikið við okkur hérna í haust og hér snjóar nánast aldrei. Rok þekkist varla heldur. Nú er hins vegar að hefjast jólavertíðin eins og heima á Íslandi og hér er mikið lagt upp úr því að gera stemninguna sem mesta. Eins Undanfarna mánuði hefur blaðamaður Víkurfrétta, Eyþór Sæmundsson, haldið sig á Bretlandseyjum þar sem hann stundar nám. Eyþór hefur búið í borginni Bath á Suðvestur-Englandi, en borgin sú er þekkt sem ferðamannaborg enda ákaflega falleg og aðeins steinsnar frá höfuðborginni London. Eyþór setti saman stuttan pistil um lífið í Bath en bærinn er fullur af jólaanda um þessar mundir enda eru borgarbúar þekktir fyrir skemmti- legan jólamarkað og huggulegheit í þeim efnum. Eyþór við rómversku böðin Jólamarkaðurinn iðar af lífi en það mætti þó skipta rigningunni út fyrir snjó. Hér böðuðu sig bæði karlar og konur saman til forna. Af ein- hverjum ástæðum var það svo bannað. Hér horfir enginn á fótbotla, Rugby er númer 1, 2 og 3. Jólatréð mætti alveg vera veglegra. Líflegt götulíf.

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.