Víkurfréttir - 28.11.2013, Qupperneq 16
fimmtudagurinn 28. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR16
Margir taka ákvörð-
un um að snúa fjár-
málum heimilisins
úr mínus í plús. Þau
finna sig knúin til að
bæta aðstæðurnar
til að losna undan
álagi og stressi sem
getur fylgt fjárhagsáhyggjum. Upp-
lýsingar um hvernig við bætum fjár-
mál er líka auðvelt að nálgast. Til
er mikið magn af greinum og efni
í bókum, tímaritum og á veraldar-
vefnum sem gefur okkur góðar og
einfaldar hugmyndir til að setja
okkur raunhæf markmið og gera
yfirlit.
Það er auðvelt að leggja af stað þegar
við höfum tekið slíka ákvörðun. Vilj-
inn er mikill og öflugur og verkið
virðist auðvelt. En fyrir marga er
viljinn ekki endalaus. Við þurfum
að reka heimili og takast á við dagleg
störf. Hversdagsleg þreyta og álag
dregur úr okkur kjark og vilja til að
laga fjármálin. Þegar við erum þreytt,
önug og viljalítil eru meiri líkur á að
við hættum öllum sparnaðarleiðum
og allar ákvarðanir um fjárhagsá-
ætlanir fjúka út í veður og vind. Við
gefumst upp á átakinu.
Ein af mörgum góðum aðferðum til
þess að gefast ekki upp á miðri leið
er að gera ráð fyrir þreytunni. Við
viðurkennum fyrir sjálfum okkur að
það kemur staður og stund þar sem
við verðum önug, þreytt og stressuð
og langar að gefast upp eða hætta.
Þegar við finnum fyrir þessari þreytu
og vonleysi er nauðsynlegt að slaka á,
safna kröftum og ná áttum. Hér eru
fimm hagnýt atriði sem nota má til að
forðast uppgjöf.
Við einföldum óyfirstíganleg verk-
efni með því að hluta þau niður í stutt
tímabil. Við framkvæmum svo eitt
lítið verkefni í einu. Til að höggva
niður skóg þá tökum við eitt tré í
einu.
Við gefum okkur verðlaun fyrir hvert
lokið verk. Erfið markmið verða auð-
veldari ef við höfum eitthvað til að
hlakka til. Góð slökun, góður matur
eða sjónvarpsþáttur eftir erfiðan dag
gæti breytt öllu fyrir okkur.
Við segjum öðrum frá því hvað við
erum að gera. Við erum ekki að
kvarta heldur útiloka að við verðum
þau einu sem vita um þreytu og álag
dagsins. Ræðum við vini okkar sem
eru góðir hlustendur. Líkur eru á að
þeir hvetji okkur áfram og hrósi fyrir
hvert lokið verk.
Leitið leiðsagnar. Vanþekking og
óvissa er ein af algengustu ástæðum
þess að við stoppum eða hættum. Oft
þarf ekki annað en smá spjall til að
verða viss og halda áfram.
Við umgöngumst duglega fólkið.
Drífandi fólk hefur jákvæð áhrif á
líðan okkar.
Við gerum okkar besta til að halda
áfram. Þrátt fyrir að það sé erfitt að
ná erfiðum markmiðum þá er ennþá
erfiðara að byrja aftur ef við hættum
eða tökum of langa hvíld. Við getum
tekið stuttar pásur eða minnkað
markmiðin til að fá kraft til að halda
áfram.
Haukur Hilmarsson,
ráðgjafi hjá Fjölskyldu- og
félagsþjónustu Reykjanesbæjar
Þökkum ykkur fyrir
frábærar mótttökur
Glæsilegar nátturulegar vörur fyrir húð og hár
Nýtt Eucerin® VOLUME-FILLER – fyrir unglegra útlit.
Byltingarkennd formúla með Magnolol,
Oligo peptíd og Hyaluronsýru endurheimta
stinnleika húðarinnar og endurmóta útlínur.
Innblásið af meðferðum húðsjúAkdómalækna.
www.eucerin.com/volume-filler
Meiri fylling
– fyrir unglegra útlit
Eins árs
afmælistilboð
20% afsláttur
20% afsláttur
OptiBac inniheldur aðeins vel rannsakaða
góðgerla með sannaðri virkni
Þú finnur réttu OptiBac vöruna fyrir þig hjá okkur!
• Við lofti í maga og þembu.
• Til að stöðva niðurgang.
• Áhrifarík og fljótvirk leið gegn hægðatregðu.
• Til að ná niður Kandíta sveppi á áhrifaríkan hátt.
• Til að styrkja ónæmiskerfið og daglega þarmaheilsu.
• Fyrir þá sem taka sýklalyf.
Nýtt í Apóteki Suðurnesja
20% afsláttur
Dr Organic – Rose Otto
náttúrulegar húðvörur
• Rose Otto frá Dr Organic eru marg verðlaunaðar náttúrulegar húðvörur
• Mjúkar og nærandi
• Án allra skaðlegra aukaefna
Útsölustaðir: Heilsuver, Suðurlandsbraut 22, Árbæjarapótek, Hraunbæ 115, Lifandi Markaður, Borgartúni og Hæðarsmára.
• Rose Otto frá Dr Organic eru margverðlaunaðar náttúrulegar húðvörur.
• Mjúkar og nærandi.
• Án allra skaðlegra aukaefna.
til 6. desember í Apóteki Suðurnesja
Aðeins fáanlegar í snyrtivöruverslunum, snyrtistofum & apótekum
Vöruúrvalið má sjá á www.artdeco.com & á facebook.com/artdeco/island
Afmælis vikuna verður
ARTDECO með
Góða kaupauka &
Flott tilboð
HRINGBRAUT 99 - REYKJANESBÆR
Það var rífandi stemmning og mikil traffík í verslunum í
Reykjanesbæ á „kósýkvöldi“ en
tugur verslana bauð tilboð og af-
slætti sl. fimmutdagskvöld og var
opið til kl. 22.
Að sögn Kristínar Kristjánsdóttur í
versluninni Kóda hitti þetta fram-
tak verslana í mark því margir við-
skiptavinir mættu og gerðu góð
kaup. Kvenfólk, sem alla jafna stýrir
jólainnkaupum heimilanna, ætlaði
greinilega að nýta þetta tækifæri
og mátti sjá nokkra vinkvennahópa
saman á röltinu í góða veðrinu á
Hafnargötunni.
Þann 30. nóvember nk. verður elsku mamma okkar Soffía G.
Ólafsdóttir 70 ára og af því tilefni
verður hún með opið hús í Sam-
komuhúsinu Garði frá kl. 19.00.
Þeir sem vilja fagna með
þessari lífsglöðu konu eru
hjartanlega velkomnir.
Gjafir eru afþakkaðar, en söfn-
unarkassi verður á staðnum fyrir
þá sem vilja láta eitthvað af hendi
rakna og mun afraksturinn renna
til Hjartadeildar Landspítalans
til að bæta aðbúnað og öryggi
sjúklinga á hjartadeildinni.
Ólafur, Klemenz, Hlíðar og Ína.
-póstkassinn pósturu vf@vf.is
n Haukur Hilmarsson, ráðgjafi skrifar:
Fjármál heimilanna - Gerum ráð fyrir þreytunni
Soffía 70 ára
Brjálað að gera á „kósý-
kvöldi“ Betri bæjar
-fréttir
Eitt fyrsta fjölbýlishúsið fyrir almennan markað sem hefur
verið klárað eftir hrun er við
Krossmóa 5 í Reykjanesbæ.„Það
hljóta að vera góðar fréttir fyrir
byggðalagið,“ segir Áslaugur
Einarsson, framkvæmdastjóri
ÁÁ verktaka. Hann segir að kapp-
kostað hafi verið að fá í verkið
heimafólk og það hafi gengið vel
og mælst vel fyrir. Húsanes ehf
hafði byggt húsið og ÁÁ verk-
takar síðan keyptu það uppsteypt
af Íbúðalánasjóði í fyrra. „Þá var
almennt rólegt hjá fyrirtækjum í
þessum bransa svo að við vildum
skapa okkur vinnu. Blokkin er á
besta stað. Hér leikskóli við hlið-
ina, stutt á Nesvelli, verslunar-
kjarni nálægt og þetta er mjög
miðsvæðis,“ segir Áslaugur.
„Menn voru stórhuga“
Áslaugur segir að menn hafi verið
stórhuga og með stefnu á uppbygg-
ingu á erfiðum tímum á Suður-
nesjum. Tveir verktakar hafi einnig
komið að verkinu, R.H. innrétt-
ingar og S.I. verktakar. Svo bættust
við eftirtalin fyrirtæki sem saman
áttu veg og vanda að því að klára
verkið: Kollgáta ehf, Studioola
ehf, Ellert Skúlason ehf., Benni
pípari eh., H. Helgason ehf og
Hjalti og synir ehf. „Þetta er búið
að ganga eins vel og óskað var í
upphafi. Efnisval og innviðir eru
mjög vönduð og vinnbrögð líka,“
segir Áslaugur. Fjölbýlishúsið er
á fjórum hæðum í tveimur stiga-
göngum með samtals 25 íbúðum.
11 íbúðir, 2ja og 3ja herbergja,
eru í vesturhluta og 14 íbúðir í
austurhluta. Íbúðirnar afhendast
fullbúnar með fallegum innrétt-
ingum, vönduðu parketi og flísum
á gólfum. Auk þess er lyfta í húsinu.
11 íbúðir verða tilbúnar í desember
og hinn áfanginn í maí.
Geta keypt húsbúnaðinn
Fasteignasalan Stuðlaberg hefur
íbúðirnar til sölu, en hún er í eigu
Guðlaugs H. Guðlaugssonar. Hall-
dór Magnússon, fasteignasali hjá
Stuðlabergi, segir tvær íbúðir hafa
verið innréttaðar á sem heimilis-
legastan hátt, með húsgögnum og
heimilistækjum og einhverjum
myndum á veggjum þegar þær
voru sýndar síðastliðinn laugar-
dag. Væntanlegir kaupendur hafi
val um hvort þeir vilji kaupa á góðu
verði þann húsbúnað og tæki sem
þar voru. Fjöldi manns hafi komið
að skoða og mikill áhugi var á
íbúðunum. Það hafi verið breiður
hópur fólks á öllum aldri.
n Uppbygging á erfiðum tímum:
„Blokk á besta stað“
Áslaugur Einarsson, framkvæmdastjóri ÁÁ verktaka
og Halldór Magnússons, fasteignasali hjá Stuðlabergi.
tvær íbúðir hafa verið innréttaðar
á sem heimilislegastan hátt, með
húsgögnum og heimilistækjum og
einhverjum myndum á veggjum
þegar þær voru sýndar síðastliðinn
laugardag. Væntanlegir kaupendur
hafi val um hvort þeir vilji kaupa á
góðu verði þann húsbúnað og tæki
sem þar voru.