Víkurfréttir - 28.11.2013, Síða 30
fimmtudagurinn 28. nóvember 2013 • VÍKURFRÉTTIR30
-íþróttir pósturu eythor@vf.is -molar
ÍRB sigursæl á ÍM25
uÍslandsmeistaramótið í sundi í
25 metra laug var haldið um síð-
astliðna helgi. Lið ÍRB þrefaldaði
fjölda verðlauna sinna frá árinu
2012, en sundfólk ÍRB vann sam-
tals 41 verðlaun á mótinu í ár.
ÍRB vann flest verðlaun bæði í
karla- og kvennaflokki. Liðið
átti næstflesta Íslandsmeistara
karla og þriðju flestu Íslands-
meistara kvenna. Í heildina var
liðið með 31% allra verðlauna
sem veitt voru á mótinu. Lið ÍRB
var skipað 30 sundmönnum og
var fjölmennasta liðið á mótinu.
ÍRB keppendur á mótinu voru
á aldrinum 11-18 ára en liðið er
ungt og efnilegt.
10 sundmenn náðu í landsliðs-
verkefni. Einnig náðust lágmörk
fyrir Norðurlandameistaramót
unglinga sem fram fer í Fær-
eyjum í næstu viku. Eins náðust
lágmörk á Evrópumeistara-
mótið. Fjögur Íslandsmet í ald-
ursflokkum voru sett á mótinu af
sundmönnum ÍRB. Mörg ÍRB-,
Keflavíkur- og Njarðvíkurmet
voru svo slegin. ÍRB vann brons
í öllum átta boðsundunum á
mótinu en í fyrra unnust engin
verðlaun í boðsundi hjá liðinu.
Keflvíkingar sópuðu
að sér verðlaunum
u 17 keppendur úr íslenska
taekwondo landsliðinu kepptu á
Scottish Open mótinu um helg-
ina og þar af voru 13 frá Kefla-
vík. Skemmst er frá því að segja
að allir íslensku keppendurnir
fengu verðlaun og sumir kepp-
endur fengu nokkur verðlaun.
Keflvíkingar voru sérstaklega
sigursælir en af þeim 36 verð-
launum sem íslenska liðið hlaut,
þá unnu Keflvíkingar 31.
Íslenska landsliðið var með besta
árangur allra liða í tækni (það
voru bara Keflvíkingar að keppa í
tækni), annan besta árangur liða
í bardaga og annan besta saman-
lagðan árangur. Það er ótrúlega
góður árangur, sérstaklega í ljósi
þess að mörg önnur lið voru
mun stærri en íslenska liðið. Alls
tóku um 40 lið þátt í mótinu.
Árangur íslenska liðsins
Gull – 18 (Keflavík var með 16
af þeim)
Silfur – 10 (Keflavík – 8)
Brons – 8 (Keflavík – 7)
Ásmundur íþrótta-
maður Mána 2013
uÁsmundur Ernir Snorrason
var valinn íþróttamaður Mána
2013 á aðalfundi félagsins sem
haldinn var miðvikudaginn
20. nóvember síðastliðinn. Ás-
mundur náði mjög góðum ár-
angri á árinu og þar má helst telja
að hann varð tvöfaldur Íslands-
meistari á Íslandsmótinu sem
haldið var á Akureyri í sumar.
Hann varð Íslandsmeistari í
gæðingaskeiði og samanlögðum
fimmgangsgreinum. Einnig náði
hann silfri í fimmgangi.
Tvær efnilegar hestaíþrótt-
astúlkur hlutu árangursverð-
laun fyrir mjög góðan árangur á
árinu: Jóhanna Margrét Snorra-
dóttir hlaut viðurkenningu fyrir
góðan árangur og einnig Gyða
Sveinbjörg Kristinsdóttir. Þess
má til gamans geta að Ásmundur
Ernir og Jóhanna Margrét eru
systkini og Gyða Sveinbjörg er
frænka þeirra.
Fjölskyldan á Akureyri
„Ég fer aðallega á þrjá staði þegar
ég er hér fyrir sunnan; Reykjanes-
höllina, Íþróttahús Reykjanesbæjar
og til Magga dómara [Þórissonar]
að borða,“ segir Heiðar og hlær.
Hann segir að honum líði mjög vel
hér og hafi fengið góðar móttökur.
Aðstæður séu góðar, krakkarnir
frábærir og tilbúnir að leggja mikið
á sig. „Hér ríkir mikil knattspyrnu-
menning og það er gaman að
koma inn í hana. Foreldrarnir eru
mjög áhugasamir og vilja allt gera
fyrir börnin sín.“ Sjálfur á Heiðar
og eiginkona hans, Inga María
Gunnarsdóttir, þrjú börn á aldr-
inum 3 - 11 ára. Fjölskyldan hans
býr á Akureyri þar til Inga María
klárar nám í grafískri hönnun við
Myndlistarskólann þar næsta vor.
„Við fluttum þangað árið 2011 og
leigjum húsið okkar í Hafnarfirði
þangað til í mars. Þá flytjum við
aftur heim,“ segir Heiðar.
Býður upp á alþjóðlegt
námskeið
Heiðar er metnaðarfullur og ætlar
að bjóða upp á námskeið undir
merkjum Coerver Coaching í
Reykjaneshöll 27. - 29. desember.
„Coerver Coaching er æfinga-
áætlun í knattspyrnu sem starfar út
um allan heim og er undir áhrifum
frá kennslu Wiel Coerver. Alfred
Galustian og Chelsea goðsögnin,
Charlie Cooke, stofnuðu þetta árið
1984.“ Heiðar segir að frá stofnun
hafi 8 sjónvarpsþættir á jafn
mörgum tungumálum verið gerðir
um þessa aðferð, auk myndbanda,
mynddiska og bóka á 12 tungu-
málum. Þá hafi 1,5 milljónir barna
og þjálfara tekið þátt í námskeiðum
Coerver Coaching sem hefur verið
samstarfsaðili Adidas í 20 ár.
Ávinningurinn barna
og foreldra
„Þessi hugmynda- og æfingaáætlun
í knattspyrnu þjálfar upp færni og
hentar öllum aldurshópum en sér-
staklega aldrinum 6-16 ára á öllum
getustigum. Einnig foreldrum,
þjálfurum og kennurum. Einblínt
er á að þróa færni einstaklingsins
og leikæfingar í smáum hópum.
Virtustu knattspyrnusambönd
heims, leikmenn, sérfræðingar og
félög viðurkenna þetta og mæla
með því,“ segir Heiðar og bætir við
að ýtt sé undir sjálfstraust og sköp-
unargleði hjá leikmönnum með
því að gera leikinn skemmtilegan
á æfingum. Góður íþróttaandi sé
ríkjandi og virðing fyrir öllu í ör-
uggu og lærdómsríku umhverfi.
„Ávinningurinn er ekki einungis
iðkenda heldur einnig foreldra.
Börnin auka leikfærni og njóta
íþróttarinnar óháð eigin getu. For-
eldrarnir fá gæði fyrir fjármuni
sína því framfarir verða miklar og
skýrar hjá börnunum. Auk þess
fæst besta æfing og kennsluáætun
í færni knattspyrnumanna sem völ
er á í dag,“ segir Heiðar og er sann-
færður um góð viðbrögð.
Heiðar Birnir Torleifsson hóf formlega störf fyrsta nóvember sem þjálfari meistaraflokks kvenna og
yfirþjálfari yngri flokka hjá Knattspyrnudeild Keflavíkur. Ásamt því er hann íþróttafulltrúi deildarinnar.
Heiðar hefur mikla reynslu af þjálfun og hefur m.a. starfað hjá ýmsum félögum og við knattspyrnuskóla.
n Nýr þjálfari ánægður með móttökur:
Góðar aðstæður
og frábærir
krakkar
Börnin
auka
leikfærni og
njóta íþróttar-
innar óháð eigin
getu. Framfarir
verða miklar og
skýrar hjá þeim
Heiðar Birnir er sannfærður um
góð viðbrögð við námskeiðinu.AUKIN LEIKFÆRNI
Bandaríkjamaðurinn Damon Johnson, sem er að margra mati besti erlendi leikmaðurinn sem leikið hefur í efstu
deild körfuboltans hér á landi, kemur til Keflavíkur á
næstu dögum. Hann mun leika með B-liði félagsins
gegn ÍG í bikarkeppninni á morgun, föstudag.
„Okkur langaði bara að hitta hann því það eru tíu ár frá
því hann var hér síðast. Við vitum ekkert hvort hann sé í
formi eða ekki enda skiptir það ekki máli. Þetta er bara
gert upp á fjörið,“ sagði Sævar Sævarsson, stjórnarmaður
í Keflavík og leikmaður B-liðs Keflavíkur. Í liðinu eru
nokkrir af fyrrum snillingum Keflavíkur í körfunni.
Einn þeirra er Gunnar Einarsson og hann virðist vera í
toppformi á miðað við frammistöðu hans með liðinu
um daginn þegar hann fór mikinn í stigaskori.
„Eina sem hann bað um var að fá góða gistingu,
fara í Bláa lónið og á Nonnabita,“ sagði Sævar
og hló. Hann bætti því við að líklega yrði haldið
upp á heimsókn Damons með stuðningsmanna-
kvöldi eftir leikinn við ÍG.
Damon fékk íslenskan ríkisborgararétt og lék
nokkra landsleiki með Íslandi. Hann lék síðast
árið 2003 með Keflavík en þá vann liðið Íslands-
meistaratitilinn. Hann fór eftir sigurárið 2003
til Spánar þar sem hann lék í tvö ár hjá tveimur
liðum. Hann hefur síðustu árin búið á heimaslóðum
í Bandaríkjunum.
Herta
Pálmadóttir
Elska þegar pabbi
ætlar að senda
póst á facebook en
skrifar á vegginn hjá aðilanum
#noob
Guðrún María
Í gær gerðist sá
merkis atburður
að ég fór í annað
skiptið á ævinni á
Olsen Olsen
Guðni F. Oddsson
Af hverju get ég ekki
keypt mandarínur
365 daga ársins
#pirr #mikiðpirr
Hlynur Thor
Valsson
Náði að gera lýta-
lausar, bragðgóðar,
brúnaðar kartöflur í
fyrsta sinn á ævinni. 150 kokka-
stig!
Sævar Sævarsson
Djöfulsins leg-
endary leikur verður
þetta á föstudag-
inn... Hafið
þið tryggt
ykkur
svona
bol? #kefna-
tion #damon
Ómar
Jóhannsson
Stormur úti eða eins
og þeir kalla það í
Eyjum "Gameday"
Björn Birgisson
Það er blóðugur
niðurskurður hjá
ríkinu.
Datt einhverjum í
hug að RÚV slyppi við hann?
Jónína
Magnúsdóttir
Mig sárvantar ljóta
jólapeysu fyrir
föstudaginn - ein-
hver sem getur lánað mér?
Helga Sigrún
Harðardóttir
Það er góð
skemmtun að
standa á höndum
með Villi Pétursson í þágufalli…
Þorvaldur Helgi
Auðunsson
Ég hélt að Garðbæ-
ingar vissu allt
- greinilega veit ég
þeim mun minna, glæsilegt hjá
Reykjanesbæ
VIKAN Á
VEFNUM
Suðurnejamenn láta ekki
sitt eftir liggja á samfélags-
miðlunum. Við á Víkur-
féttum munum framvegis
birta það helsta sem ber á
góma á Facebook og Twitter
hjá Suðurnesjamönnum.
DAMON JOHNSON
til Keflavíkur