Víkurfréttir


Víkurfréttir - 28.11.2013, Qupperneq 31

Víkurfréttir - 28.11.2013, Qupperneq 31
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 28. nóvember 2013 31 ATVINNA HÁR FAKTORÝ Sími 421-3969 Hárfaktorý auglýsir til leigu frábæra aðstöðu fyrir skemmtilegan og hressan hársnyrtisvein eða meistara. Þarf að hafa góða reynslu í faginu og mikinn áhuga á starfinu. Sanngjörn leiga á besta stað í bænum. Endilega komið við eða sendið tölvupóst á harfaktory@gmail.com Kveðja, Lilja og Gauja Bíll til sölu Eðalvagn á góðu verði Nissan Note  2007 ek. 120 þús. 5 dyra, sjálfskiptur, nýlega skoðaður. Flottur fjöldskyldubíll sem eyðir litlu. Listaverð kr. 1.290.000,- en ásett verð kr. 1.050.000,- Tilboðum verður svarað. Áhvílandi hagstætt bílalán 400 Þús. Upplýsingar í síma 8230701. „Ég sá námskeið auglýst á heima- síðu KKÍ í mars sl. og spurði strákinn hvort hann vildi fara á dómaranámskeið. Hann var til að fara ef ég færi með honum. Ég sló til og féll algjörlega fyrir dóm- gæslunni,“ segir Sveinn en hann og Kristinn Rafn sonur hans hófu nýverið feril sem dómarar í körfu- bolta. Kristinn æfir körfu hjá Keflavík með 11. flokki en sjálfur var Sveinn aldrei mikið í körfu- bolta á sínum yngri árum. Sveinn starfar í barna- og unglingaráði körfuknattleiksdeildar Kefla- víkur og fjölskyldan fylgist vel með körfuboltanum. „Við hjónin höfum bara fylgt okkar börnum í kringum allar þær íþróttir sem þau velja. Kristinn valdi körfuboltann, hin tvö eru í fimleikum og sjálf erum við hjónin í blaki. Þannig að það er nóg að gera á þessu heimili,“ segir Sveinn hress í bragði. Feðgarnir hafa dæmt töluvert saman en Sveinn segir að dóm- gæslan sé ennþá bara áhugamál hjá sér. „Ég dæmi kannski 6-7 leiki í mánuði, síðan höfum við verið að taka leiki fyrir okkar félag þegar fjölliðamót eru um helgar.“ Krist- inn er aðeins 16 ára en mælst er til þess að menn séu a.m.k. 17-18 ára í dómgæslunni. Hann kann þó sitt hvað fyrir sér og er óhræddur við að kenna pabba sínum reglurnar. „Við getum sagt að eggið hafi stundum verið að kenna hæn- unni. Meðan á námskeiðinu stóð ræddum við alla mögu- lega hluti sem gætu komið upp, svo tókum við oft sýnikennslu f yr ir hvorn annan,“ segir Sveinn en hann viðurkennir að hafa verið mjög góður svokall- aður „stúkudóm- ari“ áður en hann sótt i námskeiðið. Hann átti alls ekki von á því að enda nokkur tímann i dómgæslu í körfuboltanum, hvað þá með syni sínum. „Við tökum bara eitt skref í einu, en stefna er klárlega tekin lengra. Ég tel líklegt að Kristinn komi til með að dæma mikið í framtíðinni og leyfi kallinum kannski að taka einn og einn leik með sér.“ Eggið kennir hænunni V I Ð K Y N N U M Þ A Ð N Ý J A S T A F R Á S A G E , S I M M S , S C O T T O G F L E I R I F R A M L E I Ð E N D U M . E N G I L B E R T J E N S E N V E R Ð U R V I Ð V Æ S I N N O G K A F F I Á K Ö N N U N N I . J Ú L L I G E F U R G Ó Ð R Á Ð V I Ð V A L Á J Ó L A P A K K A V E I Ð I M A N N S I N S . K Í K T U V I Ð – A L L I R V E L K O M N I R ! O P N U N A R T Í M A R F R A M A Ð J Ó L U M : 1 3 . 0 0 – 2 2 . 0 0 A L L A V I R K A D A G A & 1 2 . 0 0 – 1 6 . 0 0 U M H E L G A R L AU G A R D A G I N N 3 0. N Ó V E M B E R K L . 14 .0 0 O P N A R F LU G U KO F I N N N ÝJ A O G G L Æ S I LE G A V E I Ð I V Ö R U V E R S LU N Á H A F N A R G ÖT U 2 1 S Í M I 7 7 5 - 3 4 0 0 / / F L U G U K O F I N N . I S F LU G U KO F I N N Þ A R S E M V E I Ð I S Ö G U R N A R V E R Ð A T I L Feðgarnir Sveinn Björnsson og Kristinn Rafn Sveinsson dæma saman í körfubolta: FEÐGAFLAUTSveinn hætti sem „stúkudóm-ari“ og blæs nú með stráknum.

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.