Víkurfréttir - 06.12.2012, Side 2
fimmtudagurinn 6. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR2
FRÉTTIR
AÐVENTA
NESVELLIR
Föstudagur 7. des kl 14:00
Börn með dans og tónlistaratriði
Mánudagur 10. des, kl 14:00
Eldeyjarkórinn undir stjórn Arnórs Vilbergssonar
Fimmtudagurinn 13. des. kl 14:00
Bókakynning / Bókasafn Reykjanesbæjar
Komið og njótið. Allir velkomnir, ungir sem aldnir
BÆJAR-
SKRIFSTOFUR
VINSAMLEGAST ATHUGIÐ!
Þjónustuver verður lokað frá kl. 12:00
föstudaginn 7. desember.
LJÓSAHÚS
REYKJANESBÆJAR
Taktu þátt í vali á best skreyttu húsum bæjarins
Val á Ljósahúsi Reykjanesbæjar fer fram með
vefkosningu á vef Víkurfrétta vf.is 13. – 16. desember
Sjá nánar á vf.is
sími 421-5566 - www.bilahotel.is
ALÞRIF: VERÐ FRÁ 8.500,-
VIÐ SÆKJUM OG SKILUM
Þorvaldur Árnason lyfsali er snúinn aftur til Reykjanes-
bæjar eftir tíu ára fjarveru og
hefur opnað Apótek Suðurnesja
að Hringbraut 99. Segja má að
Þorvaldur sé að snúa aftur í
heimahaga en hann rak apótek
á sama stað um nokkurra ára
skeið fram til ársins 2002 er Lyfja
keypti reksturinn. Þetta er fjórða
apótekið sem hann rekur, en fyrir
rekur hann Lyfjaval í Mjódd og
Lyfjaval í Álftamýri auk þess að
reka Bílaapótekið í Kópavogi. Í
viðtali við Víkurfréttir þá kveðst
Þorvaldur var mjög ánægður að
hefja aftur rekstur í Reykjanesbæ.
„Ég er mjög spenntur fyrir því
að koma aftur á Suðurnesin og
þjónusta Suðurnesjamenn,“ segir
Þorvaldur. „Þetta húsnæði, sem er í
minni eigu, var laust og er hannað
fyrir apótek. Ég ákvað að nýta
þetta tækifæri til að koma aftur til
Reykjanesbæjar. Suðurnesjamenn
hafa verðið duglegir að sækja til
mín til Reykjavíkur og því þótti
mér tilvalið að opna aftur apótek á
svæðinu. Það starfa hjá mér fjórir
starfsmenn sem voru að keyra frá
Reykjanesbæ til höfuðborgarinnar
í vinnu þannig að það var einnig
hvati til að opna hér á ný. Ég er
reynslunni ríkari eftir að hafa rekið
lyfjaverslanir í Reykjavík í tíu ár
og það er gott að geta þjónustað
Suðurnesjamenn á ný.“
Hræðist ekki samkeppnina
Þorvaldur er fæddur Sandgerðingur
en býr nú í Garðabæ. Hann er eng-
inn nýgræðingur á lyfjamarkað-
inum í Reykjanesbæ. Hann var í
15 ár hjá Apóteki Keflavíkur en
opnaði svo sjálfur einkarekið apó-
tek árið 1996 á Hringbrautinni, en
það var fyrsta apótekið sem opnaði
á Íslandi eftir að ný lyfjalög tóku
gildi, þar sem frjálsræði í stofnun
apóteka var aukið. Árið 2002 keypti
Lyfja reksturinn af Þorvaldi og þá
söðlaði hann um og opnaði apótek
í Mjóddinni vorið 2003.
„Apóteksrekstur var góður þegar ég
fór héðan fyrir tíu árum en ég veit
ekki alveg hvernig hann er í dag.
Hér er samkeppni en það er af hinu
góða fyrir almenning og stuðlar að
lægra lyfjaverði. Ég óttast ekki sam-
keppnina,“ segir Þorvaldur en hver
er helsta sérstaða Lyfjavals?
„Ég sem eigandi er nær rekstrinum
og fólkinu sem kemur og verslar.
Það er einn af kostum einstaklings-
rekinna apóteka og eigendurnir eru
tilbúnir að gera meira fyrir við-
skiptavini sína. Þjónustan er betri.“
Þorvaldur gerir ráð fyrir því að Apó-
tek Suðurnesja muni ná að festa sig
í sessi í Reykjanesbæ á næstu árum.
Þegar blaðamaður Víkurfrétta hitti
fyrir Þorvald og starfsfólk hans þá
voru nokkrir viðskiptavinir sem
óskuðu Þorvaldi til hamingju með
að vera kominn aftur á svæðið.
Ljóst er að margir viðskiptavinir
muna ennþá eftir Þorvaldi frá fyrri
tíð. „Hér í Reykjanesbæ finnum við
fyrir ánægju hjá viðskiptavinum
apóteksins og staðsetningin frábær.
.Þetta apótek er komið til að vera,“
sagði Þorvaldur að lokum.
Þorvaldur snýr heim
- Apótek Suðurnesja opnar á Hringbraut
Þorvaldur Árnason
lyfsali er snúinn
aftur til Reykjanes-
bæjar eftir tíu ára
fjarveru og hefur
opnað Apótek
Suðurnesja að
Hringbraut 99.
Þorvaldur Árnason ásamt starfsfólki sínu í Apóteki Suðurnesja.
VF-myndir: Jón Júlíus Karlsson