Víkurfréttir - 06.12.2012, Side 12
fimmtudagurinn 6. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR12
n Ásmundur Friðriksson skriFar:
Við höfum verk að vinna
fyrir Suðurkjördæmi
Til að endurheimta glataðan kaupmátt og minnka skuldir þarf að framleiða útflutnings-
vöru fyrir þjóð sem er enn í vörn. Lækka skatta á
fjölskyldur og fyrirtæki, en stækka skattstofnana
með aukinni verðmætasköpun, hærri launum og
meiri veltu í samfélaginu sem innistæða er fyrir.
Svikin loforð um afnám verðtryggingar húsnæðis-
lána og lækkun höfuðstóls verðtryggðra húsnæðis-
lána er skammarlegt. Endurskipulagning skulda
heimilanna er forsenda fyrir auknum hagvexti og
framtíðaruppbyggingu íslensks þjóðfélags. Ef ekki
verður snúið við af leið stöðnunar og lífi blásið í atvinnulífið er til lítils
fyrir tilvonandi þingmann að eiga sér draum um bættan hag heimila
og atvinnulífs. Ég ber þó þá von í brjósti að ég og kjósendur í Suður-
kjördæmi eigum samleið til að tryggja bjarta framtíð í kjördæminu og
landinu öllu. Að því vil ég vinna og stend við það sem ég lofa.
Mismunun í byggðarmálum;
Á undanförnum mörgum árum hefur átt sér stað mikil mismunun á
framlögum ríkisins til samtaka sveitarfélaga. Stefna stjórnvalda í byggðar-
málum hefur komið illa niður á Suðurlandi og Suðurnesjum í mörgum
málaflokkum eins og sjá má í tölulegum samanburði frá árinu 2010.
Framlögin eru miðuð við krónur á íbúa og með öllu óskiljanlegt hvernig
ríkið hefur látið kjördæmið dragast aftur úr öðrum kjördæmum í öllum
málaflokkum. Hér eru dæmin;
Framlag ríkisins á árinu 2010 skiptist með eftirfarandi hætti.
Málaflokkur
Framlag í mkr. Framlag pr. íbúa
Miðstöð Símenntunar á Suðurnesjum; 19,9 932 kr.
Fræðslumiðstöð Suðurlands; 17,2 782 kr.
Farskóli Norðurlands vestra, 28,3 3.773 kr.
Þekkingarsetur Austurlands; 39,4 3.802 kr.
Atvinnuþróun á Suðurnesjum; 5,7 268 kr.
Atvinnuþróunarfélag Suðurlands; 22,6 870 kr.
Atvinnuþróunarfélag Vestfjarða; 41,1 5,651 kr.
Samband sveitarfélaga á Norðurlandi vestra; 21,1 2,817 kr.
Framlag v/menningarsamninga á Suðurnesjum; 19,0 890 kr.
Eyþing/Norðurland Eystra; 25,0 865 kr.
Suðurland; 31,0 1,194 kr.
Vestfirðir; 25,0 3,440 kr.
Norðurland vestra; 25,0 3,333 kr.
Framlög til heilbrigðismála, Heilbrigðisst. Suðurnesja; 79,862 kr.
Heilbrigðisstofnun Suðurlands; 92,361 kr.
Heilbrigðisstofnun Vesturlands, 181,007 kr.
Framlag til framhaldsskóla á Suðurnesjum,
kostnaður pr. nemanda; 786,364 kr.
Suðursvæði; 937,380 kr.
Austursvæði; 1,064,259 kr.
Vestursvæð; 1,015,982 kr.
Samkvæmt sömu heimildum eru íbúar á Suðurnesjum 67 ára og eldri
1.623 einstaklingar en hjúkrunarrými 84. Vesturland er með 1.664 íbúa á
þessum aldri en þar eru 221 hjúkrunarrými.
Sú mismunun sem fram kemur í þessum tölum er óþolandi fyrir íbúa
í Suðurkjördæmi. Það hefur vakið undrun mína hvað lítið hefur verið
fjallað um þessi mál. Ég ætla að berjast fyrir brýnum leiðréttingum á
þessum grundvallarmálum. Ég mun ekki linna látum fyrr en leiðréttingar
fást! Ég sækist eftir þingsæti í Suðurkjördæmi. Takist mér ekki ætlunar-
verkið verður seta mín skammvinn á þingi! Því lofa ég! En til þess þarf ég
stuðning þinn í komandi prófkjöri sjálfstæðismanna þann 26. janúar nk.
Við vinnum þetta á mannlegum nótum!
Ásmundur Friðriksson fv. bæjarstjóri
Sækist eftir 3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi 26. janúar nk.
FRÉTTIR vf@vf.isPÓSTKASSINN
Í ár selur Kiwanisklúbburinn Keilir jólatré í Húsasmiðjunni og Blómavali.
Salan fer fram í Húsasmiðjunni á Fitjum.
Jólatré - norðmannsþinur - fura - greni
- leiðiskrossar- skreyttar greinar
Allur ágóði af sölunni rennur til líknarmála
Jólatréssala
Opið virka daga kl. 16–21
og um helgar kl. 14–21
hefst 8. desember kl. 14:00
NJARÐVÍKURKIRKJA
(INNRI-NJARÐVÍK)
Barn borið til skírnar. Kaffi, djús og
kökur á eftir í safnaðarheimilinu.
Aðventusamkoma 9. desember kl.17:00.
Börn frá Leikskólanum Holti annast
helgileik með aðstoð fóstranna.
Nemendur úr Tónlistarskóla Reykjanes-
bæjar koma fram. Vox Felix kór Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja syngur undir stjórn
Arnórs Vilbergssonar. Davíð Ólafsson bassi
og Stefán Helgi Stefánsson tenór syngja
nokkur lög.
Kór kirkjunnar syngur og leiðir almennan
safnaðarsöng undir stjórn Stefáns Helga
Kristinssonar organista. Sóknarnefnd býður
kirkjugestum að þiggja veitingar í safn-
aðarheimilinu að samkomunni lokinni.
Sjá nánar á njardvikurkirkja.is
SUNNUDAGASKÓLI
9. DESEMBER KL.11:00
Stu
tta
r
Stóra jólablaðið
í næstu viku!
TIlRaun geRð TIl að lokka
9 áRa Telpu upp í bIFReIð
Lögreglunni á Suðurnesjum barst á mánudag tilkynning um að reynt hefði verið að lokka 9 ára gamla telpu upp í bifreið í Garði á
Suðurnesjum. Telpan var á leið heim úr skólanum um klukkan 14 í gær
þegar svartri bifreið var ekið fram hjá henni. Dökkhærður karlmaður
á miðjum aldri mun þá hafa teygt sig út úr bifreiðinni í átt að telpunni
og fannst henni sem maðurinn ætlaði að grípa í sig. Telpan varð hrædd,
forðaði sér heim og lét móður sína vita um atvikið.
Lögreglan á Suðurnesjum biður alla þá sem einhverjar upplýsingar gætu
gefið um málið að hafa samband við lögregluna í síma 420 1700.
Fjölskylduhjálp
vantar sjálfboðaliða
Fjölskylduhjálp Íslands vantar sjálfboðaliða til
að starfa á jólamarkaði sam-
takanna við Hafnargötu 90 í
Keflavík. Markaðurinn er op-
inn alla daga vikunnar frá kl.
13-18.
Anna Valdís Jónsdóttir, verk-
efnastjóri hjá Fjölskylduhjálp
á Suðurnesjum, sagði mikið
annríki á jólamarkaðnum og
því þyrfti aðstoð frá fleiri ein-
staklingum. Þeir sem vilja
leggja lið geta haft samband við
Önnu Valdísi í síma 421 1200
eða komið á jólamarkaðinn að
Hafnargötu 90.
Tvítugar með
kókaín innvortis
Lögreglan á Suðurnesjum hefur að undanförnu haft
til rannsóknar mál er varðar
tilraun til smygls á kókaíni til
landsins. Það var 20. nóvem-
ber síðastliðinn sem tollverðir
í Flugstöð Leifs Eiríkssonar
tvær íslenskar stúlkur um
tvítugt sem voru að koma frá
London. Þær reyndust hafa
kókaín innvortis, samtals tæp-
lega 300 grömm.
Stúlkurnar voru úrskurðaðar í
gæsluvarðhald til 2. desember,
en hafa verið látnar lausar.
Rannsókn lögreglunnar er á
lokastigi og ekki hafa fleiri verið
handteknir vegna málsins.
Stóra jólablaðið í næstu viku.
Verið tímanlega með auglýsingar.