Víkurfréttir - 06.12.2012, Blaðsíða 14
fimmtudagurinn 6. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR14
TÓNLISTARLÍFIÐ
MARTA EIRÍKSDÓTTIR
Æskuminningarúr bítlabænum Keflavík
Mei míbeibísitt?
Geggjuð bók!
Lífleg og hnitm
iðuð frásögn.
- Þorsteinn Eggertsson
VÍKURFRÉTTIR EHF.
2012
MARTA EIRÍKSDÓTTIR
M
ei m
í beibísitt?
Mei mí beibísitt?er söguleg skáldsaga úr Keflavík sem gerist á sjöunda og áttunda áratug síðustu aldar. Höfundur rifjar upp og segir frá daglegu lífi barnanna í götunni þar sem hún bjó. Þetta eru minningar um horfna veröld, þar sem skapandi kraftur barnanna sá um að skemmta þeim sjálfum daglangt á sumrin.
Höfundur bókarinnar, Keflvíkingurinn Marta Eiríksdóttir, er vel þekkt fyrir öflugt
námskeiðahald á vegum Púlsins en einnig fyrir jákvæð og skemmtileg viðtöl, sem
birst hafa eftir hana í Víkurfréttum undanfarin tuttugu ár. Mei mí beibísitt? er önnur bók höfundar en fyrsta bók Mörtu Becoming
Goddess – Embracing Your Power! kom út á ensku, á vegum Balboa Press, deild
innan Hay House í Bandaríkjunum sumarið 2012.
Marta hlakkar til að hitta Suðurnesjamenn og ætlar að
taka á móti þeim með kaffi og smákökum í Nettó.
Verið velkomin.
Marta áritar í
Marta Eiríksdóttir mun árita bók sína
Mei mí bí i t?
í Nettó laugardaginn 8. desember kl. 15:00 - 17:00.
Sértilboð verður á bókinni við það tæ ifæri.
JÓLA
BÓKI
N
2012
Á plötunni annast Júlíus allan söng, en naut
aðstoðar Védísar Hervarar Árnadóttur sem
söng með í einu lagi. Þá leikur Júlíus á öll
hljóðfæri eins og á fyrri plötum Gálunnar en
notast var við hrúgu af hljóðfærum. Hann
hafi þó mikið reynt að þjösnast á fiðlu og selló
en það gekk ekki alveg samkvæmt áætlun
þannig að Roland Hartwell var fenginn til að
leika á fiðlu í einu lagi en óþarfi að hafa mörg
orð um það.
Júlíus segir lögin á plötunni vera „sín lög“ en
hann hafi reynt að semja lög sem pössuðu
textunum eftir föður hans. Aðspurður hversu
lengi hann hafi verið að vinna í plötunni,
segist hann hafa hafið undirbúning fljótlega
eftir andlát föður síns og farið í að finna
til texta og semja við þá tónlist. „ Þetta var
kannski einhvers konar aðferð til að vinna
á sorgarferlinu og eftir talsverða vinnu og
langan tíma var komið nægt efni til að telja
í plötu“
Platan er tileinkuð móður Júlíusar enda
segir Júlíus föður sinn hafa undir það síðasta
samið mikið til konu sinnar, Maríu Baldurs-
dóttur og einnig hafi hann verið að semja
um lífið og dauðann. „Það má lesa það út úr
textunum að pabbi hafi vitað í hvað stefndi.
Þetta eru engir svartnættistextar en þetta er
allt á mjög persónulegum nótum. Ákveðið
uppgjör, ástin, lífið, dauðinn og tilveran“
segir Júlíus í samtali við Víkurfréttir.
Til eru um hundruðir textahugmynda og
brot eftir Rúnar sem Júlíus fór í gegnum og
þar leyndust mörg gullkorn. Textinn „Allt
of oft“, sem var að öllum líkindum saminn
í brúðkaupsferð þeirra á Jamaica, fjallar á
einstakan hátt um það hvað litlu hlutirnir í
lífinu skipta miklu máli og að maður eigi að
lifa fyrir daginn í dag.
„Í sumum tilfellum vann ég bara út frá einni
línu sem pabbi var byrjaður á en ekki kom-
inn lengra, eða tók jafnvel búta úr nokkrum
textum og splæsti saman í einn“ segir Júlíus.
Diskurinn Gálan kom út í gær, 5. desember,
en þann dag fyrir fjórum árum féll Rúnar
Júlíusson frá. Gálan mun taka þátt í upp-
skeruhátíð Geimsteins sem fram fer á Ránni
í kvöld, fimmtudagskvöld. Þar koma einnig
fram Bjartmar Guðlaugsson, Elísa Newman,
Eldar, Klassart og Hrafnar. Tónleikarnir hefj-
ast kl. 21.30.
Níu laga
diskur við texta
Rúnars Júlíussonar
n Gálan, Júlíus Guðmundsson,
gefur út nýjan disk þar sem
hann semur tónlist við texta
föður síns:
JúLÍuS GuÐmuNdSSoN gefur út nýja sólóplötu nú fyrir jólin. Platan heitir Gálan, en Júlíus hefur áður gefið út tvær plötur undir
þessu listamannsnafni. Platan hefur að geyma níu lög sem samin eru eftir textum og hugmyndum föður listamannsins Rúnars
heitins Júlíussonar sem lést 5. desember 2008.