Víkurfréttir - 06.12.2012, Page 20
fimmtudagurinn 6. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR20
Marika Adrianna Gabriela Kiwat-
kowska er 17 ára stúlka
frá Póllandi sem flutti
til Keflavíkur árið 2007.
Marika er á málabraut
í FS en hana langar til
þess að búa í útlöndum
í framtíðinni og stunda
þar háskólanám. Hún
telur að strákarnir í
Hnísunni geti öðlast
heimsfrægð og ef hún
væri skólameistari myndi hún hafa ókeypis
hnífapör fyrir alla.
Af hverju valdir þú FS?
Væri ekki til að vakna kl.6 á hverjum degi
til þess að keyra í bæinn, oh hell no.
Hvernig finnst þér félagslífið í skólanum?
Mætti vera aðeins meira en annars fínt bara
Áhugamál?
Dans og tíska.
Hvert er stefnan tekin í framtíðinni?
Stefni að því að útskrifast úr FS og svo
flytja eitthvert til útlanda og stunda nám
í háskólanum þar og verða flugfreyja.
Ertu að vinna með skóla?
Já, einhver þarf að gera þessar samlokur á Subway.
Hvað er skemmtilegast við skólann?
Allt er æði nema stærðfræði. Stærð-
fræði hatar mig og ég hata stærðfræði.
Hvar hangirðu í eyðum og frímínútum?
Niðri í matsal eða fer heim.
Stundarðu íþróttir eða ert í
öðrum tómstundum?
Já, dans í Danskompaní.
Hvað borðar þú í morgunmat?
Cocoa Puffs eða rúnstykki með osti og smjöri.
Hvaða FS-ingur er líklegur til þess
að verða frægur?
Ég held nú að það séu bara strákarnir í Hnísunni.
Hvað fær þig til að hlæja?
Allt.
Hvað er heitasta parið í skólanum?
Annaðhvort þau Bjarki og Lovísa eða Njáll
og Unnur María! Can´t choose between.
Hver er best klæddur í FS?
Það er Einar Ari Árnasson.
Hvernig myndir þú gera FS að betri skóla
ef þú værir skólameistari?
Klárlega hafa ókeypis hnífapör og plast glös.
Ég er nú annars ekkert eitthvað sérstaklega að
pæla í því að breyta þessum skóla, It is like it is.
Eftirlætis:
Sjónvarpsþættir
Pretty Little Liars, Grey's Anatomy, Gos-
sip Girl, Jersey Shore og South Park.
Vefsíður
Facebook.
Flík
Bláa H&M peysan mín og græna, og
brúna líka, elska öll fötin mín.
Skyndibiti
Langbest og Villi.
Kennari
Hate them all.
Fag
saga.
Tónlistin
Frank Ocean, Coldplay,
Ásgeir Trausti og fleiri.
FS-INGUR VIKUNNAR
EFTIRLÆTIS...
Jón Arnór Sverrisson er í 9. bekk í Njarðvíkurskóla.
Hann fer alltaf í jólaboð
hjá ömmu og afa og segir
að jólatónlist og snjórinn
kemur honum í jólaskap.
Fyrstu jólaminningarnar?
Þegar það kom jóla-
sveinn heim til mín
þegar ég var 4 ára.
Jólahefðir hjá þér?
Engar sérstakar hefðir, bara
borða góðan jólamat og
vera með fjölskyldunni.
Ertu dugleg/ur í eldhúsinu
yfir hátíðirnar?
Nei, það er ég ekki.
Jólabíómyndin?
Home Alone 1 og 2 eru bestar.
Jólatónlistin?
Mörg góð jólalög, get
ekki valið eitthvað eitt.
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
Mamma gerir það fyrir mig.
Gefurðu mikið af jóla-
gjöfum?
Gef mömmu og pabba.
Ertu mikið jólabarn?
Jáá myndi segja það!
Ertu vanafastur um jólin,
eitthvað sem þú gerir alltaf?
Já, fer alltaf í jólaboð
til ömmu og afa.
Hvað kemur þér í jólaskap?
Jólatónlistin og snjórinn
kemur mér í jólaskap!
Besta jólagjöf sem þú hefur
fengið?
Playstation 3 er besta gjöfin.
Hvað er í matinn á aðfanga-
dag?
Hamborgarhryggur
er í matinn.
Eftirminnilegasta gjöfin?
Sími og borðtennisborð eru
eftirminnilegustu gjafirnar.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Ferð á Anfield væri geggjað.
Ferð á Anfield væri geggjað
n JÓN ARNÓR SVERRISSON // UNG UmSJón: PÁll oRRI PÁlSSon • PoP@VF.IS
Stærðfræði
hatar mig
MENNING OG MANNLÍF
alíSa rún tendraði jólaljóSin
Sara Lind Teitsdóttir er í 10. bekk í Njarðvíkur-
skóla. Henni finnst Home
Alone 1 myndin best og
opnar alltaf einn pakka fyrir
mat á aðfangadagskvöld.
Fyrstu jólaminningarnar?
Dettur ekkert í hug...
Jólahefðir hjá þér?
Vakna alltaf og horfi á
jólaskrípó og fer svo að keyra
út pakkana með pabba og
systkinum mínum á að-
fangadegi, svo auðvitað þetta
hefðbundna um kvöldið.
Ertu dugleg/ur í eldhúsinu
yfir hátíðirnar?
Nei, ég sé bara um að borða.
Jólabíómyndin?
Home Alone 1 langbest!
Jólatónlistin?
Allt amerískt er æði.
Hvar verslarðu jólagjafirnar?
Panta flest frá Ameríku.
Gefurðu mikið af jóla-
gjöfum?
Ég gef mömmu og pabba,
systkinum mínum og
kærastanum í ár.
Ertu vanafastur/föst um
jólin, eitthvað sem þú gerir
alltaf?
Opna einn pakka
fyrir matinn.
Besta jólagjöf sem þú hefur
fengið?
Hef alltaf fengið mjög góðar
gjafir, 66°Norður úlpan er
með þeim betri alla vega!
Ertu mikið jólabarn?
Já, ég er mjög mikið jóla-
barn, elska þennan tíma.
Hvað er í matinn á aðfanga-
dag?
Hamborgarhryggur, mmm
Hvað kemur þér í jólaskap?
Hlusta á jólalög, horfa á jóla-
myndir og snjórinn auðvitað!
Eftirminnilegasta gjöfin?
Man alltaf eftir því þegar
ég og systir mín fengum
saman sjónvarp frá ömmu
og afa, vorum svo ánægðar.
Hvað langar þig í jólagjöf?
Föt og skó, manni
vantar alltaf þannig.
Vakna og horfi á jólaskrípó á aðfangadag
n SARA LIND TEITSDÓTTIR // UNG UmSJón: PÁll oRRI PÁlSSon • PoP@VF.IS
Jólaljósin á vinabæjarjólatrénu frá Kristiansand í Noregi voru tendruð sl. laugardag.
Stutt dagskrá var í tilefni með tónlist og söng frá nemendum
Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og kór 4. bekkjar í Holtaskóla.
Sendiherra Noregs á Íslandi afhenti Reykjanesbæ jólatréð sem
Alísa Rún Andrésdóttir nemandi í 6. bekk Akurskóla tendraði
svo ljósin á. Jólahljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar sló upp
léttu jólaballi og jólasveinar sungu og trölluðu með börnunum.