Víkurfréttir - 06.12.2012, Page 30
fimmtudagurinn 6. desember 2012 • VÍKURFRÉTTIR30
SPORT
Ný heimildarmynd um knatt-spyrnumanninn Guðmund
Steinarsson verður forsýnd í
Sambíóunum í Keflavík í kvöld.
Myndin er eftir Keflvíkinginn
Garðar Örn Arnarson og er farið
yfir frábæran feril Guðmundar
sem er leikja- og markahæsti leik-
maður Keflavíkur frá upphafi.
Guðmundur hefur skorað 100
mörk í 289 leikjum í meistara-
flokki en hann hefur leikið nær
allan sinn feril hjá Keflavík.
„Ég byrjaði á þessari mynd í mars á
þessu ári og upphaflega átti þetta að
vera stuttmynd. Þetta verkefni stækk-
aði aðeins frá upphaflegri hugmynd.
Ég tel að Gummi Steinars hafi ekki
fengið þá virðingu sem hann á skilið
í íslenska knattspyrnuheiminum og
fannst hann tilvalið viðfangsefni í
heimildarmynd,” segir Garðar Örn.
„Ég hóf tökur á myndinni á síðasta
ári og boltinn fór svo að rúlla þegar
ég hóf samstarf við Stöð2 Sport. Þeir
útveguðu mér mikið myndefni og
í staðinn munu þeir sýna myndina
eftir áramót.“
Garðar Örn útskrifaðist úr Kvik-
myndaskóla Íslands í mars síðast-
liðnum. Hann segir að það hafi
verið lítið mál að fá Guðmund til
að samþykkja að láta gera heim-
ildarmynd um sig. „Það var ekkert
mál. Konan hans segir að hann
kunni ekki að segja nei,“ segir
Garðar léttur í bragði. „Í myndinni
er farið yfir allan feril Gumma,
bæði hæðir og lægðir. Hann er
mjög einlægur í viðtölum en ég
ræddi einnig við vini, samherja
og mótherja. Farið er vel yfir
tímabilið 2008 sem er mörgum
Keflvíkingum erfitt.“
Garðar Örn vann að mestu mynd-
ina einn en fékk aðstoð frá félaga
sínum, Davíð Erni Óskarssyni, við
lokavinnslu myndarinnar. Myndin
kemur út á DVD eftir helgi en þar
verður talsvert af aukaefni sem
ekki kemur fram í myndinni
sjálfri. „Þar má m.a. sjá öll mörk
hans með Keflavík á ferlinum.
Gummi er búinn að sjá myndina
og er mjög sáttur,“ bætti Garðar
Örn við.
Það er mikið að gera hjá Garðari
Erni um þessar mundir og er
hann einnig að vinna heimildar-
mynd um annan íþróttamann af
Suðurnesjum, Örlyg Sturluson úr
Njarðvík, sem lést langt fyrir aldur
fram. Stefnt er að því að myndin
komi út 21. maí næstkomandi sem
var afmælisdagur Örlygs. „Ég hef
unnið þessa mynd í miklu sam-
starfi við fjölskyldu Örlygs enda
viðfangsefnið viðkvæmt. Þú gerir
svona mynd bara einu sinni,“
sagði Garðar að lokum.
Knattspyrnudeild Grinda-víkur gengur í gegnum mikla
endurskipulagninu um þessar
mundir. Karlaliðið féll úr efstu
deild síðastliðið sumar og við það
hafa rekstrarforsendur breyst til
muna. Þrátt fyrir það býst Jónas
Þórhallsson, formaður knatt-
spyrnudeildarinnar, við að halda
nær öllum leikmönnum karlaliðs-
ins á næstu leiktíð. Stefnan er sett
á að fara beint upp í efstu deild á
nýjan leik.
„Það hefur auðvitað mikið breyst
hjá okkur og við höfum þurft að
endurskipuleggja rekstur okkar frá
grunni,“ segir Jónas. „Sú leið sem
við höfum ákveðið að fara er að
lækka launakostnaðinn um 25%
og borga leikmönnum laun í níu
mánuði á ári, frá janúar og út sept-
ember. Ef vel gengur þá munum
við verðlauna okkar leikmenn.
Þeir leikmenn sem við höfum
viljað halda munu vera áfram hjá
Grindavík. Leikmenn okkar hafa
sýnt mikla tryggð við klúbbinn og
það er okkur ómetanlegt. Það eru
kannski ekki allir sem gera sér grein
fyrir hversu stór rekstur knatt-
spyrnudeildarinnar er. Við erum
með veltu upp á annað hundruð
milljónir og 20 stöðugildi. Þetta er
eitt af 15 stærstu fyrirtækjunum í
Grindavík. Það er einnig athyglis-
vert að barna- og unglingastyrkir
frá sveitarfélagi og UEFA duga ekki
fyrir launatengdum gjöldum. Við
höfum þurft að treysta á stuðning
fyrirtækja og velunnara.“
Helgi tekur við kvennaliðinu
Það verða ekki bara breytingar
hjá karlaliðinu því nýr þjálfari er
kominn í brúnna hjá kvennaliðinu.
Grindvíkingurinn Helgi Bogason,
sem meðal annars þjálfaði kar-
lalið Njarðvíkur um nokkurra ára
skeið, hefur verið ráðinn þjálfari
kvennaliðs Grindavíkur sem leikur
í 1. deildinni. Í kjölfar ráðningar
Leikmenn hafa sýnt mikla tryggð
hans hafa nokkrir sterkir leikmenn
ákveðið að snúa aftur heim. Í síð-
ustu viku skrifuðu þær Bentína Frí-
mannsdóttir, Þórkatla Sif Alberts-
dóttir, Elínborg Ingvarsdóttir, Sara
Hrund Helgadóttir og Ágústa Jóna
Heiðdal undir tveggja ára samning
við félagið.
„Það eru lykilleikmenn að koma
heim eftir að hafa verið að spila hjá
öðrum liðum í efstu deild. Þetta
eru allt heimastúlkur og við eigum
von á fleirum,“ segir Jónas. „Það
er oft þannig að þegar grindvískir
leikmenn fara til annarra liða þá
sjá þeir hversu gott þeir hafa það
heima. Hjá Grindavík er mjög
vel hlúð að öllum leikmönnum.
Við erum mjög ánægðir með að
fá Helga til starfa. Hann er frábær
þjálfari og þekkir starfið hjá fé-
laginu mjög vel. Við erum mjög
bjartsýnir fyrir hönd kvennaknatt-
spyrnunnar í Grindavík.“
Breyttar áherslur eru hjá Grind-
víkingum um þessar mundir. Vel
hefur verið hlúð að barna- og
unglingastarfi klúbbsins undan-
farin ár en nú á að bæta um betur
og stórefla starfið. Ægir Viktors-
son hefur verið ráðinn í fullt starf
sem yfirþjálfari yngri flokka hjá fé-
laginu. Hann mun einnig sjá um öll
fræðslumál, dómarastjórn og sam-
skipti við KSÍ. „Við viljum búa til
leikmenn sem spila fyrir Grindavík
í efstu deild. Við viljum auka gæðin
og höfum bætt við þjáfurum. Scott
Ramsey er meðal annars kominn í
þjálfarateymið hjá okkur og í þess-
ari endurskipulagningu höfum við
sýnt mikinn styrk,“ segir Jónas að
lokum.
Höfum þurft að endurskipuleggja reksturinn frá grunni,
segir Jónas Þórhallsson, formaður knattspyrnudeildarinnar
Efri röð: Bentína
Frímannsdóttir,
Þórkatla Sif
Albertsdóttir,
Elínborg Ingvars-
dóttir, Sara Hrund
Helgadóttir og
Ágústa Jóna
Heiðdal skrifuðu
undir tveggja ára
samning. Í neðri
röðinni eru Jónas
Þórhallsson, for-
maður, Helgi Boga-
son, Guðmundur
Pálsson og Petra
Rós Ólafsdóttir.
Heimildarmynd um
Guðmund Steinarsson
GS#9
Eftir Garðar Örn Arn
arson
KYNNIR Í SAMSTARFI VIÐ
STYRKTARAÐILAR:
forsýnd í kvöld í Sambíóunum
Guðmundur Steinarsson hefur
verið í eldlínunni að undanförnu
og verður á risaskjánum í Sam-
bíóunum í kvöld. Að ofan er hann
í liðsstjórateymi körfuboltaliðs
Keflavíkur B sem lék gegn Njarð-
vík í vikunni. Þar klæddu þeir
félagar sig upp í tilefni dagsins,
Guðmundur, Jón Halldór Eðvalds-
son og Pétur Pétursson.