Víkurfréttir - 06.12.2012, Page 31
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 6. desember 2012 31
SPORT
Hér er ansi fallegt mát sem átti
sér stað árið 1910 í Vínarborg
á milli Réti og Tartakover. Þeir
voru báðir meðal sterkustu skák-
manna í heimi á sínum tíma.
Þetta mát heitir einfaldlega
Réti mát og kom upp úr afbrigði
sem heitir Caro - cann vörn
eða afbrigði fátæka mannsins
eins og það er stundum kallað.
Það er einungis búið að leika
nokkrum byrjunarleikjum út og
hvítur mátar svartan nú í þremur
leikjum. Og skákin tók því aðeins
tólf leiki sem er afar sjaldgæft á
milli svo sterkra skákmanna.
Lausn:
1.Dd8+ Kxd8 2.Bg5+ Kc7 3.Bd8#
Krakkaskák.is
Stofnað 1976
Uppskeruhátíð2012
6. desember 21:30
Ráin, Hafnargötu
Miðaverð: 1.000.-
Fram koma:
Bjartmar Guðlaugsson
Elíza Newman
Gálan
Eldar
Hrafnar
Klassart
Húsið opnar kl. 21:00 og tónleikarnir hefjast kl. 21:30
Diskar og fleira á sérlegu tilboðsverði
Keflavíkurstúlkur
óstöðvandi
„Það gerist ekki mikið betra en að
vera taplausar þegar skammt er í
jólin,“ segir Birna Valgarðsdóttir,
leikmaður kvennaliðs Keflavíkur
í körfuknattleik. Keflavík hefur
leikið frábærlega það sem af er
vetri og er taplaust í Dominos-
deild kvenna. Keflavík hefur unnið
alla sína leiki í vetur og hefur sex
stiga forystu á toppnum.
„Ég bjóst kannski ekki við svona
góðu gengi og átti von á því að við
yrðum í toppbaráttunni. Liðsheildin
hefur verið frábær hjá okkur og
það vita allir sitt hlutverk í liðinu.
Okkar helsti styrkleiki í vetur hefur
verið vörnin sem hefur verið mjög
stöðug. Við eigum ennþá talsvert
inni og getum bætt okkur mikið
sóknarlega. Það kemur þegar það
líður á tímabilið,“ segir Birna.
Ke f l av í k ge rð i gó ð a fe rð í
Stykkishólm um síðustu helgi þegar
liðið lagði Snæfell af velli, 70-74.
Þessi tvö lið hafa leikið hvað best
í vetur og er Keflavík nú komið í
vænlega stöðu á toppnum. „Það
var mjög ljúft að fara heim með
sigur eftir þessa löngu bílferð,“
segir Birna. „Pressan eykst á okkur
með hverjum leik og það bíða allir
eftir því að við töpum okkar fyrsta
leik. Það hvetur okkur áfram og við
vitum að það er enginn auðveldur
leikur í þessari deild.“
Það er óhætt að segja að ungu stelp-
urnar hafi stigið upp hjá Keflavík í
ár. Yngri flokka starf félagsins er að
skila upp mörgum frábærum leik-
mönnum sem nú þegar eru meðal
betri leikmanna liðsins. „Ungu
stelpurnar eru ótrúlega góðar og
það koma upp frábærar stelpur
á hverju ári. Þetta á bara eftir að
verða betra á næstu árum og þá get
ég hætt með góðri samvisku,“ segir
Birna og hlær. Næsti leikur liðsins
er næstkomandi laugardag þegar
liðið tekur á móti Val í Toyotahöll-
inni.
Einar Orri framlengir
við Keflavík
Einar Orri Einarsson hefur framlengt samning sinn við
Keflavík og verður hjá félaginu til
ársloka 2015. Samningur Einars
gilti til ársins 2014 en hefur nú
verið framlengdur.
Einar Orri er nýorðinn 23ja ára og
hefur leikið með Keflavík allan sinn
feril. Hann lék fyrst með meistara-
flokki árið 2005 og á að baki 84 leiki
í efstu deild og hefur skorað í þeim
tvö mörk.
GOðSaGniRnaR
KjöldREGnaR
Það voru fjölmargir áhorfendur sem lögðu leið sína í To-
yotahöllina síðastliðið mánudagskvöld til að fylgjast með
viðureign Keflavík-B og Njarðvíkur í 32-liða úrslitum Powe-
rade-bikarins. Fjölmargar körfuboltagoðsagnir úr Keflavík
léku með B-liðinu í ár sem átti hins vegar lítið erindi í úrvals-
deildarlið Njarðvíkur. Lokatölur urðu 64-130 fyrir Njarðvík.
Keflavík-B hafði hins vegar talsverða yfirburði í kílóafjölda.