Fréttablaðið - 04.02.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 04.02.2016, Blaðsíða 8
18,5% 17,1% 15,8% 14,1% 12,4% 11,4% 12,2% 9,3% 10,1% 10,2% 10,1% 10,4% 9,2% 20% 15% 10% ✿ Fylgi Samfylkingar 31. janúar 2015 til 31. janúar 2016* 5% *Samkvæmt könnun Gallup 0% Samkvæmt mælingum Gallup er fylgi Samfylkingarinnar helmingur af því sem það var fyrir ári. Stjórnmál „Maður verður bara að treysta því að menn geti hamið sig í hnífunum,“ segir Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, þar sem hann var staddur í Vestmanna­ eyjum í gær og þar með ófær um að mæta á þingflokksfund. Ástandið innan þingflokksins er sérstaklega slæmt að mati þingmanna innan flokks sem utan. Árni segir hins vegar að ástandið hafi aldrei snúist um sig og sína per­ sónu og tekur því ekki nærri sér þó aðrir séu orðaðir við formannssætið. „Það væri nú eitthvað að ef enginn vildi vera formaður í Samfylk­ ingunni,“ segir Árni. Hann hyggst bjóða sig fram til formanns að nýju þegar landsfundur fer fram. Sam­ flokksmaður Árna sagði í samtali við Fréttablaðið að Árni liti svo á að ekki mætti bola honum úr embætti. Og það eru sannarlega fleiri sem vilja vera formenn flokksins. Helgi Hjörvar þingmaður hélt samkvæmi fyrir lokaðan hóp samfylkingarfólks í Reykjavík þann 15. janúar síðast­ liðinn. Athygli vakti að þingmenn voru ekki í samkvæminu en þó var nokkuð vel mætt af fólki. Helgi stofnaði líka nýlega Face­ book­síðu fyrir sjálfan sig sem opin­ ber persóna svo stuðningsmenn geti lækað hann. Þingmenn annarra flokka tóku svo eftir því að Helgi fundaði með Hrannari B. Arnars­ syni, fyrrverandi aðstoðarmanni Jóhönnu Sigurðardóttur, í Alþingis­ húsinu á þriðjudag. Þá þótti ljóst að Helga væri ekki í mun að fela for­ mannsbuxurnar. Þingmaður Vinstri grænna, sem ekki vildi láta nafns síns getið, sagði að það hefði verið subbuskapur hjá Helga Hjörvar og Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur að leggja fram frumvarp um afnám verðtryggingar þann 21. janúar síðastliðinn. Helgi Hjörvar væri formaður þingflokks Samfylk­ ingarinnar og það tíðkaðist ekki í því embætti að leggja fram mál þvert gegn vilja formanns flokksins. Þessir tveir formenn verði að dansa í takt og framlagningin hafi sýnt að engin virðing sé borin fyrir Árna Páli sem formanni flokksins. Heimildir Fréttablaðsins herma hins vegar að það hafi verið við­ brögð Árna sem komu á óvart. Málið hafi verið þaulrætt í þingflokki Samfylkingar og þingmönnunum gefið leyfi til að leggja frumvarpið fram. Þegar Árni lagðist hart gegn Samfylking eins og maki á leið í meðferð Það virðast margir vera á þeirri skoðun að formannsskipti í Samfylkingunni séu óumflýjanleg. Árni Páll Árnason formaður hyggst þrátt fyrir það bjóða sig fram að nýju og segir vandann ekki snúast um persónu sína. VG orðin afhuga auknu samstarfi eins og staðan er í dag. Snærós Sindradóttir snaeros@frettabladid.is frumvarpinu í fjölmiðlum hafi það komið þingmönnunum tveimur í opna skjöldu. Þingmenn VG segja að fyrir nokkrum misserum hafi farið fram samtal á milli flokkanna á vinstri­ Þessi hafa verið nefnd l Magnús Orri Schram, fyrrverandi þingmaður, er það nafn sem flestir virðast spenntir fyrir í for- mannsembættið eftir því sem Fréttablaðið kemst næst. Hann nýtur mikils stuðnings innan Ungra jafnaðarmanna og Kragans. Horft er til Magnúsar sem fersks andblæs af þeim sem ekki geta hugsað sér neinn sitjandi þing- mann í formannsembættið. l Össur Skarphéðinsson er talinn hafa tvö plott í gangi. Annað snýst um að verða forseti og hitt formaður Samfylkingarinnar. Það gæti hæglega unnið gegn honum ef fólk veit ekki í hvorn fótinn hann ætlar að stíga. l Anna Pála Sverrisdóttir, fyrr- verandi formaður Ungra jafnaðar- manna, er vonarstjarna innan flokksins. Hún fékk eitt atkvæði í formannsembættið á síðasta landsfundi flokksins sem jafnvel var atkvæðið sem skildi á milli Árna Páls Árnasonar og Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur. vængnum um aukið samstarf. Þá hafi það helst verið Samfylking sem ekki vildi ræða samstarf eða samein­ ingu í krafti stöðu sinnar sem stærsti flokkurinn. Nú sé komið annað hljóð í strokkinn en þingmönnum vinstri vængsins þyki tal um sam­ einingu nú hjákátlegt. Einn orðaði það svo: „Samstarf væri eins og að reyna að lappa upp á hjónaband þar sem annar aðilinn er veikur og þarf nauðsynlega í meðferð.“ Það væri nú eitt- hvað að ef enginn vildi vera formaður í Sam- fylkingunni. Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar 4 . F e b r ú a r 2 0 1 6 F I m m t U D a G U r8 F r é t t I r ∙ F r é t t a b l a ð I ð 0 3 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :4 2 F B 0 5 6 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 5 C -4 B 4 0 1 8 5 C -4 A 0 4 1 8 5 C -4 8 C 8 1 8 5 C -4 7 8 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 5 6 s _ 3 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.