Gerðir kirkjuþings - 1966, Síða 13

Gerðir kirkjuþings - 1966, Síða 13
2. gr. í Reykjavíkurprófastsdæmi skal vera safnaðarráð. Skal það vera skipað formönnum safnaðarnefnda og safnaðarfull- truum í prófastsdæminu og prestum þess. Prófastur er formaður ráðsins og kallar það saman. Skylt skal að kalla safnaðarráð saman til fundar, þegar fullur þriðjungur safnaðarráðsmanna óskar þess. Verkefni ráðsins eru: 1. Að gera tillögur Um skiptingu prófastsdæmisins í sóknir og prestakoll og um breytingar á þeim svo oft, sem þörf er, og skal su skipting miðuð við það, að einn prestur sé í hverju presta- kalli. 2. Að sjá um kosningu safnaðarnefnda í prestaköllum eftir skiptingu. Ein safnaðarnefnd sé fyrir hvert prestakall, og hefur hún á hendi störf sóknarnefndar, eftir því sem við á, og er kosin með sama hætti. Þar sem fleiri en einn söfnuður eiga sömu kirkju, skulu nefndirnar hafa sameiginlega stjórn á afnotum og fjármálum kirkjunnar. 3. Að vinna að eflingu kirkjulegs starfs og kristilegrar félagsstarfsemi innan prófastsdæmisins. 3. gr. í kaupstöðum utan Reykjavíkurprófastsdæmis skulu prestar vera svo margir, að sem næst 4000 manns komi á hvern. Skipta skal prestaköllum, þar sem eru tveir eða fleiri prestar, á hliðstæðan hátt og ákveðið er í 2.gr. , 1. tölulið. 4. gr. Nú er skipt prestakalli í tvö eða fleiri prestaköll, og hefur þá presturinn rétt til að velja, hvaða hluta þess hann hyggst að þjóna, eða sá, er lengur hefur þjónað kallinu, sé um tvo að ræöa. 5. gr. Sveitafélögum kaupstaða og kauptúna er skylt að leggja til ókeypis lóðir undir kirkjur og undanskilja þær gatnagerðar- gjaldi. Nú er presti skylt að hafa aðsetur í kaupstað eða kaup- túni, og er þá sveitar- eða bæjarfélagi skylt að leggja til

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.