Gerðir kirkjuþings - 1966, Side 29

Gerðir kirkjuþings - 1966, Side 29
-3- en svo, að þeir fari um allt biskupsdæmið á þremur til fimm árum. 9. gr. Biskupar taka laun úr ríkissjóði og eiga rétt til embættisbústaðar. Þeim skal veitt hæfilegt fé til embættis- kostnaðar og risnu. Kostnaður við vísitazíuferðir, vígslur og ferðir vegna biskuparáðsfunda greiðist úr ríkissjéði eftir reikningi, sem kirkjumálaráðherra úrskurðar. 10.gr. Sjóðir, sem eru í eigu kirkna eða gjafasjóðir og aðrir slíkir sjóðir, sem bundnir eru ákveðnu biskupsdæmi, eins og þau verða samkvæmt þessum lögum, skulu vera í umsjá þess biskups, sem hlut á að máli. Heimilt er að lána úr sjóðum þessum til kirkjulegra þarfa í öðrum biskupsdæmum, ef reglugerðir mæla því eigi í gegn og biskuparáð samþykkir. Biskuparáð fer með yfirstjórn almennra sameiginlegra sjóða |)jóðkirkjunnar. ll.gr. Núverandi vígslubiskupaembætti skulu lögð niður, þegar skipaðir eru biskupar samkvæmt þessum lögum. 12.gr. Með lögum þessum er úr gildi numin 3.gr. laga nr. 47 frá 6. nóvember 1907 um laun prófasta, lög nr. 38 frá 30 júlí 1909 um vígslubiskupa, lög nr. 21 frá 27. júní 1921 um biskups- kosningar, svo og önnur ákvæði, er fara £ bága við lög þessi. Ákvæði til bráðabirgða. Núverandi biskup íslands á rétt á að setjast í hvert biskupsdæmið, sem hann kýs.

x

Gerðir kirkjuþings

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.