Gerðir kirkjuþings - 1966, Blaðsíða 25
3. Styrkja söfnuði, er ráða vilja djákna, diakonissur eða aðra
starfsmenn til starfa á sínum vegum á sviði æskulýðsmála, líknarmála
eða að öðrum mikilvægum verkefnum.
4. Veita fátækum söfnuðum starfsstyrki, einkum á þeim stöðum,
sem prestaköll hafa verið sameinuð og kirkjuleg þjónusta er sérstökum
erfiðleikum háð.
5. Veita lán til bifreiðakaupa prestum sem eru að hefja prests-
þjónustu í dreifbýli og skuldbinda sig til þriggja ára þjónustu hið
minnsta.
6. Kosta búferlaflutning guðfræðinga, sem settir eru til prests-
þjónustu samkvæmt 18. gr. þessara laga.
7. Styrkja námsmenn til undirbúnings undir prestsstarf og önnur
kirkjuleg störf.
8. Styðja hverskonar starfsemi kirkjunnar til eflingar kristinni
trú og siðgæði með þjóðinni, svo sem útgáfu á hjálpargögnum í safnaðar
starfi og kristilegu fræðsluefni, ennfremur felög og stofnanir, sem
vinna að mikilvægum verkefnum á kirkjunnar vegum.
27. gr.
Fastir starfsmenn kirkjunnar, sem ráðnir eru til fullrar vinnu
samkvæmt 26. gr. til 3^ t.l. skulu njóta róttinda opinberra starfs-
manna. Kandidötum og prestum skal reikna þau skylduár, sem gert er
ráð fyrir £ 18.gr. og 26.gr.l.lið sem þjónustuár.
28. gr.
Kirkjuráð hinnar íslenzku þjóðkirkju hefur á hendi umsjá og
stjórn Kristnisjóðs, og ber ábyrgð fyrir Kirkjuþingi á stjórn hans.
Kirkjuráð setur reglugerð um einstök atriði, er varða starfsemi sjóðs-
ins. Þá skal kirkjuráð semja starfsáætlun fyrir sjóðinn og leggja
hana, ásamt endurskoðuðum reikningi hans fyrir hvert reglulegt Kirkju-
þing til fullnaðar ákvörðunar og samþykktar.