Gerðir kirkjuþings - 1966, Page 14

Gerðir kirkjuþings - 1966, Page 14
ókeypis 1óð undir íbúðarhús hans. 6. gr. Biskupi er heimilt að ráða tvo prestsvígða menn, annan að Skálholti hinn að Holum, þó ekki fyrr en starfsaðstaða og sórstök verkefni eru f>ar fyrir hendi. Staða þeirra gagnvart sóknarprestum staðanna skal þó aldrei vera meiri en aðstoðarprests. 7. gr. Biskupi er heimilt að ráða tvo prestsvígða menn til þess að gegna prestsþjónustu um stundarsakir í þeim prestaköllum, þar sem prestur er veikur eða prestakaliið prestslaust af öðrum ástæðum. Skulu þeir taldir þjóaandi prestar þjóðkirkjunnar. 8. gr. Biskupi er heimilt að ráða prestsvígðan mann sem æskulýðs- fulltrúa þjóðkirkjunnar til þess að aðstoða og leiðbeina við æskulýðsstörf í söfnuðum landsins. Ráðningartími skal vera allt að þremur árum í senn. Þá er og heimilt að ráða tvo aðstoðaræskulýðsfulltrúa til starfa með æskulýðsfulltrúa þjóð- kirkjunnar. Skal annar þeirra búsettur norðanlands. 9. gr. Biskupi er heimilt að ráða tvo sérmenntaða, prestsvígða menn til sjúkrahúsa- og fangaþjónustu. Biskup setur þeim erindisbróf. 10. gr. Heimilt er kirkjustjórninni að ráða til þriggja ára í senn prestsvígðan mann til kirkjulegra starfa meðal íslendinga í Kaupmannahöfn og annars staðar á Norðurlöndum eftir því sem við verður komið. Ráðherra setur honum erindisbréf. 11. gr. Heimilt er biskupi ao ráða prestsvígðan mann til þess að annast og skipuleggja kristilegt starf meðal íslenzkra sjómanna og annara þeirra, sem dvelja langtímum saman fjarri heimilum sínum á vertíðum.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.