Gerðir kirkjuþings - 1966, Qupperneq 27

Gerðir kirkjuþings - 1966, Qupperneq 27
5. Kirkjuþinq. 2. mal Frumvarp til laga um biskupa hinnar íslenzku þjóðkirkju. Samið af milliþinganefnd. Flutt af biskupi. 1. gr • Þrír skulu vera biskupar íslenzku þjóðkirkjunnar: Reykjavíkurbiskup, Skálholtsbiskup og Hólabiskup. Skal Reykjavíkurbiskup sitja í Reykjavík, Skálholtsbiskup í Skálholti og Hólabiskup á HÓlum í Hjaltadal. Kirkjumála- ráðherra getur ákveðið að Hólabiskup skuli einnig hafa aðsetur á öðrum stað í biskupsdæminu ef prestastefna biskupsdæmisins og meiri hluti sóknarnefndarformanna þess samþykkja annað aðsetur. 2. gr. Reykjavíkurbiskupsdæmi nær yfir núverandi Reykjavíkur- prófastsdæmi og Kjalarnesprófastsdæmi nema Vestmannaeyjar; Hólabiskupsdæmi yfir HÓlabiskupsdæmi hið forna og auk þess bæði Múlaprófastsdæmin, en Skálholtsbiskupsdæmi yfir aðra landshluta. 3. gr. Forseti íslands veitir biskupsdæmi að undangengnu biskupskjöri. Prófastar og þjónandi prestar hvers biskupsdæmis kjósa biskup í því biskupsdæmi. Skipa skal þann biskup, er flest atkvæði fær við biskupskjör. Kjörgengir til biskupsembættis eru allir þeir, sem fullnægja skilyrðum til að gegna prestsembætti í þjóð- kirkjunni án tillits til þess, hvar þeir eru búsettir. Biskupskjör skal vera leynilegt, en að öðru leyti setur kirkjumálaráönerra með reglugerð nánari fyrirmæli um framkvæmd þess. 4.gr. Biskuparnir þrír skipa biskuparáð. Reykjavíkurbiskup er forseti biskuparáðs.

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.