Gerðir kirkjuþings - 1966, Blaðsíða 41
5. Kirkjuþinq
12. mál
Tillaga til þinqsályktunar.
Flm. Páll Kolka.
(breyt. till. við 3. mál)
Kirkjuþing 1966 telur brýna nauðsyn bera til að komið
verði á fót kirkjulegri rannsóknarstofnun, sem annist alls
konar skýrslusöfnun, m.a. um messufjölda og kirkjusókn í
hverjum söfnuði, um starfsaðstöðu og starfskjör presta og
annarra kirkjulegra starfsmanna; láti fram fara skoðanakann-
anir á ýmsu kirkjulegu starfi og fyrirkomulagi helgihalds; og
fylgist með - ef höfð verður í formi kirkjulegrar akademíu -
þeim andlegum hreyfingum umheimsins, sem mega koma að gagni
við boðun kristinnar tróar, og athugi hverju sinni möguleika
til viðhalds nægilega fjölmennri prestastétt í landinu.
Tillaga þessi var flutt sem breytingatill. við 3. mál og fór til
allsherjarnefndar. Taldi nefndin, að her væri um sjálfstæða
till. að ræða, enda leit flutn.m. einnig svo á. Álit nefndarinnar
var á þá lund, að þótt hór væri hreyft mjög mikilmægu máli og þörfu
treysti hón sér ekki til að gera um það sérstakt nefndarálit, enda
hafði ekki unnizt tími til að ræða málið og lögmæltur tími þingsins
á enda. Hlaut því tillagan ekki afgreiðslu að þessu sinni.