Fréttablaðið - 11.06.2015, Side 10
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| FRÉTTIR | 10
© GRAPHIC NEWS
Á valdi ISIS Stuðningur við ISIS Að fullu eða hluta á valdi ISIS
Heimildir: Institute for the Study of War, fréttaveitur
þ
Júní 2014: ISIS nær Mósúl og lýsir
yfir stofnun kalífadæmis í Írak og Sýrlandi.
2. ágúst: ISIS hefur sókn til norðurs ásamt
ofsóknum gegn minnihlutahópum á borð
við Jasída með fjöldamorðum,
nauðgunum og þrælahaldi.
8. ágúst: Bandaríkin hefja loftárásir
gegn ISIS í Írak og stöðva sókn víga-
sveitanna inn á Kúrdasvæðin í norðri.
19. ágúst: Bandaríski blaðamaðurinn
James Foley hálshöggvinn og myndband
birt af ódæðinu. Fleiri afhöfðanir
erlendra gísla fylgja í kjölfarið.
September: Loftárásir Bandaríkjanna og
Arabaríkja gegn ISIS hefjast í Sýrlandi.
Desember: Peshmerga-hersveitir Kúrda
hrekja ISIS að mestu út úr Sinjar-héraði,
með aðstoð loftárása frá bandarískum
og arabískum herþotum.
Janúar 2015: Sveitir Kúrda í Sýrlandi ná,
með stuðningi frá loftárásum, Kobane
aftur á sitt vald eftir meira en fjögurra
mánaða hörð átök.
Ramadi
Sinjar
ÍR
A
N
Bagdad
Damaskus
S Ý R L A N D
ANBAR-HÉRAÐ
Í R A K
Mósúl
T Y R K L A N D
JÓRDANÍA
LÍ
BA
N
O
N
100km
Rakka
Tíkrit
Baiji
Febrúar: ISIS tekur jórdanskan flugmann af
lífi með því að kveikja í honum í litlu búri
og birtir myndband.
Mars: ISIS eyðileggur assýrískar
fornminjar í Numrud og Hatra.
Apríl: Íraksher og sjía-sveitir studdar af
Íran ná Tíkrit aftur á sitt vald.
Maí: ÍR nær á sitt vald bæði Ramadi,
höfuðstað Anbar-héraðs, og hinni fornu
borg Palmyra í Sýrlandi.
Júní: Íraksher nær að hluta bænum
Baídjí á sitt vald og vonast til að endur-
heimta einnig Mósúl úr höndum ISIS.
Fallujah
Homs
Irbil
Kirkuk
Haditha
Qaim
Al-Tanf
Hasakah Kúrda-
héruðin
Deir
al-Zawr
Aleppo
Kobane
Palmyra
Ár grimmdar og eyðileggingar
Þessa dagana er eitt ár liðið frá því leiðtogi Íslamska ríkisins lýsti
yfir stofnun kalífadæmis í Írak og Sýrlandi. Enn hafa þessi samtök
vald á stórum svæðum í báðum þessum löndum.
Upplýsingaskrifstofan Norðurlönd í fókus og Norræna félagið í Reykjavík standa fyrir
sameiginlegri dagskrá í Norræna tjaldinu á útisvæði Fundar fólksins við Norræna húsið,
dagana 11.-13. júní. Tjaldið er opið alla hátíðina. Allir dagskrárliðir eru ókeypis og öllum opnir.
Fimmtudagur 11. júní frá kl. 12-22
kl. 12:30 Smukke biler efter krigen
kl. 15:00 Daglegt líf án eiturefna!
kl. 15:40 Að læra allt lífið á Norðurlöndunum!
Föstudagur 12. júní frá kl. 12-22
kl. 14:00 Geta Norðurlöndin reddað heiminum frá loftslagshörmungum?
kl. 14:40 Bætum heilsuna með samstarfi við grannlöndin - tillögur Könbergs
kl. 15:30 Allt í hring! Lífhagkerfið er framtíðin!
kl. 16:00 Gildi í náttúrunni - virðing og vinsemd
kl. 16:30 Norrænn málskilningur – skiptir hann máli?
kl. 17:00 100 ára kosningaafmæli á Íslandi og í Danmörku [í sal Norræna hússins]
kl. 20:00-22:00 „Á norrænum nótum“ og „Söngur og spé“ Norrænar vísur og slagarar
Laugardagur 13. júní kl. 12-22
kl. 11:00 Kosningar í Danmörku - pallborðsumræður.
kl. 13:00-15:00 Norrænt menningarmót
kl. 15:00 Gjörningur í minningarlundi um fórnarlömbin í Utøya.
Stjórnmál, menning, hugleiðingar um lífið sjálft.
Nánari upplýsingar á facebook.com/Nordurlondifokus
og www.nordichouse.is
ÍRAK Íbúar Mósúl fylltust margir
hverjir ótta þegar fréttist af því
að vígasveitir Íslamska ríkisins
væru að nálgast, en fyrst heyrð-
ist til vopna þeirra í útjaðri borg-
arinnar þann 9. júní á síðasta
ári. Aðrir fundu þó til léttis, að
minnsta kosti í fyrstu, því íbúar
borgarinnar höfðu mátt búa við
ofríki af hálfu stjórnvalda.
„Sjía-stjórnin í Bagdad leit allt-
af á Mósúl sem helstu bækistöð
baathista, vafalaust vegna þess
að flestir æðstu herforingjarnir á
tímum Saddams voru frá Mósúl,“
er haft eftir 45 ára lækni frá Mósúl
á fréttavef breska dagblaðsins The
Guardian.
Baathistar voru liðsmenn Baath-
flokksins í Írak, flokks Saddams
Hussein. Eins og Saddam voru
baathistarnir flestir súnní-múslim-
ar frá Anbar-héraði í vesturhluta
landsins. Í höfuðborginni Bagdad
hafa hins vegar sjía-múslimar
ráðið ríkjum að mestu undanfarin
ár, og njóta stuðnings frá Íran.
„Þegar Íslamska ríkið tók völdin
í Mósúl þá komu þeir almennilega
fram við heimafólk, tóku niður
allar eftirlitsstöðvarnar sem her-
inn hafði sett upp og opnuðu göt-
urnar,“ segir læknirinn, sem
ekki er nafngreindur á vef The
Guardian. „Fólk trúði ekki eigin
augum að ekki væri neinn sjía-her
í borginni, engar handtökur og
engar mútur.“
Fljótlega fór þó að koma annað
hljóð í strokkinn. Fyrst voru allir
krafðir um að lýsa yfir hollustu við
kalífann Abu Bakr al Baghdadi,
leiðtoga Íslamska ríkisins, sem þá
hafði lýst yfir stofnun kalífaveldis
í Sýrlandi og Írak. Viku síðar voru
kristnum íbúum borgarannar sett-
ir afarkostir: Þeir skyldu taka upp
íslamska trú eða hafa sig á brott
hið fyrsta. Þriðji kosturinn var
dauðinn.
Læknirinn, sem The Guardian
ræddi við, forðaði sér til Irbil,
höfuð staðar Kúrdahéraðanna í
norðurhluta Íraks.
Um hálf milljón manna er talin
hafa flúið borgina fyrstu vikurnar
eftir að liðsmenn Íslamska ríkisins
komu þangað. Þeir sem eftir eru
þurfa að sæta ströngum reglum
um hvaðeina í daglegu lífi, að við-
lögðum hörðum refsingum.
„Frá því Íslamska ríkið tók
borgina hafa íbúarnir þurft að
lúta „lögum kalífadæmisins“, eins
og þau eru kölluð. Lágmarksrefs-
ing er hýðing, en henni er beitt
vegna hluta á borð við sígarettu-
reykingar,“ hefur breska útvarpið
BBC eftir Zaid, einum flóttamann-
anna frá Mósúl.
„Fyrir þjófnað er refsað með því
að höggva hönd af, fyrir hjúskapar-
brot er körlum refsað með því að
henda þeim ofan af hárri byggingu,
en konum með því að grýta þær til
dauða. Refsingunum er beitt til þess
að hræða fólk, sem oft er neytt til
þess að horfa á.“
gudsteinn@frettabladid.is
Ár undir ógnarstjórn
Um þetta leyti á síðasta ári heyrðu íbúarnir í Mósúl í vopnum vígasveita Íslamska
ríkisins í útjaðri borgarinnar. Næstu vikurnar lagði hálf milljón manna á flótta.
Vestrænir fjölmiðlar hafa í vikunni birt frásagnir íbúa sem flúðu frá borginni.
ALÞJÓÐASTJÓRNMÁL Vladimír Pútín, forseti Rússlands, heimsótti Frans
páfa í Páfagarð í gær. Páfinn bauð Pútín velkominn en tveir dagar
eru síðan leiðtogar G7-ríkjanna, sjö helstu iðnríkja heims, funduðu í
Brussel, höfuðborg Belgíu, án Rússlandsforsetans.
Rússland hafði áður átt aðild að samtökunum sem þá nefndust G8 en
situr nú úti í kuldanum sökum meints stuðnings við uppreisnarmenn í
Úkraínu.
Heimsóknin er önnur heimsókn Pútíns í Páfagarð en forsetinn hefur
aldrei boðið páfanum til Rússlands. - þea
Vladimír Pútín Rússlandsforseti í heimsókn hjá páfanum:
Velkominn hjá páfa en ekki G7
HEIMSÓKN Frans páfi bauð Vladimír Pútín velkominn í Páfagarð í gær.
NORDICPHOTOS/AFP
BRETLAND Um 120 heilbrigðissamtök á Bretlandi undir forystu sam-
takanna Action on Smoking and Health lögðu í gær til aukinn skatt á
tóbaksframleiðendur.
Samtökin vilja að allur peningur sem safnast með skattheimtunni
renni beint í forvarnir gegn reykingum. Samtökin segja að þessar
aðgerðir ættu að fækka reykingamönnum um tuttugu prósent á næstu
árum.
Meðalverð á sígarettupakka á Bretlandi er um 1.600 krónur í dag,
þar af fara rúmlega 1.200 í skatt. - þea
Um 120 heilbrigðissamtök taka höndum saman á Bretlandi:
Vilja skatt á tóbaksframleiðendur
SKATTUR Heilbrigðissamtök á Bretlandi vilja aukna skattlagningu á tóbaksframleið-
endur. NORDICPHOTOS/GETTY
HÖFUÐPAURINN Abu Bakr al
Baghdadi er sagður hafa særst alvarlega
í loftárás Bandaríkjahers í mars og
sagður ófær um að stjórna samtökun-
um áfram. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
A
-4
6
9
C
1
7
5
A
-4
5
6
0
1
7
5
A
-4
4
2
4
1
7
5
A
-4
2
E
8
2
8
0
X
4
0
0
9
B
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K