Fréttablaðið - 11.06.2015, Side 38

Fréttablaðið - 11.06.2015, Side 38
KYNNING − AUGLÝSINGHúð og hár FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 20156 KOMDU Í ÁSKRIFT Sérstakt kynningartilboð til áskrifenda Glamour er kr. 1.690 á mánuði. Viðskiptavinir með net eða sjónvarp hjá 365 fá blaðið heim fyrir kr. 1.490. Eins og flest önnur sumur vilja margar konur skarta ljósara hári í sumar en þær gerðu í vetur. Elín Birna Harðardóttir, hárgreiðslumeistari hjá Hár & Dekur, tekur undir þetta. „Ljósar strípur verða gríðarlega vinsælar í sumar, þá sérstaklega falleg nátt- úruleg lýsing og mjúk hreyfing eða ískalt skol yfir ljós- ar strípur. Við notum mikið skemmtilega tækni í hár- litun sem heitir „balayage“. Rótin er höfð náttúruleg eða lituð dekkri, svo eru endarnir litaðir ljósari og strípurn- ar eru teiknaðar í fríhendis, við vaskinn setjum við svo skol yfir hárið til að fá nákvæmlega þann tón sem við viljum,“ útskýrir Elín Birna. Einnig er vinsælt að hafa endana í öðrum litum, til dæmis fjólubláum, bleikum eða rauðum, en þá er rótin lituð í dekkri tón. Heillitur er og verður alltaf inni og vinsælir litir eru meðal annars súkkulaðibrúnn og sandljós. „Við erum mikið að nota efni sem heitir Olaplex og er nýtt efni hér á landi, það byggir hárið upp innan frá á meðan á efnameðhöndlun stendur. Olaplex gerir hárið heilbrigt, glansandi og fallegt. Með því er hægt að lýsa hárið hratt og örugglega, án þess að skemma það.“ Mýkri línur en hefur verið Undanfarið ár hefur hártískan verið að styttast mikið og segir Elín Birna að millisítt hár sé núna áberandi. „Millisítt til sítt, alveg frá eyrum og aðeins niður fyrir axlir. Það er komin meiri hreyfing í hárið, mjúkar styttur, og beina línan sem var mjög vinsæl í vor verð- ur ekki alveg eins áberandi.“ Toppurinn er annaðhvort hafður jafnsíður hárinu eða styttri við andlitið og þá tekinn til hliðar. Annars verða eiginlegir toppar ekki mikið í gangi í sumar að sögn Elínar Birnu. „Þær konur sem eru með stutt hár eru svo annað- hvort með tjásað yfir eyrun eða upp fyrir eyrun, það er ekki nein ein klipping í gangi hjá þeim og allt svolítið frjálst. Þær sem eru með sítt hár ættu að hafa það liðað og létt, það verður aðalmálið í sumar.“ Liðað og laust Ekki er þörf á að hafa miklar áhyggjur af því hvernig eigi að greiða hárið í brúðkaupum, útskriftum og öðrum veislum sumarsins, málið er einfalt, hafið hárið laust og liðað. „Það er bara allt í boði og mjög frjálst,“ segir Elín Birna og brosir. Hún bætir því við að hárböndin sem hafa verið áberandi undanfarið haldi áfram að vera í tísku. „Svo eru það gormateygjurnar góðu, þær eru frá- bærar í hárið, slíta það ekki og það kemur ekki far eftir teygjuna, það er algjört möst að eiga þær.“ Grásprengt er flott „Í sumar verða herrarnir frekar stutthærðir. Rakaðir í hliðum og aftan, stuttur toppur en meira hár skilið eftir að ofan sem þeir greiða með vaxi. Þeir ættu ekki að lita hárið sitt, grásprengt hár er flott,“ segir Elín Birna. Ljóst, liðað og laust hár í sumar Hártískan fer í hringi eins og önnur tíska og breytist með árstíðunum. Nú í sumar, líkt og önnur sumur, verður hárið ljósara en á veturna. Það á líka að vera meira liðað og meiri hreyfing í því. Millisítt hár er áberandi. Herrarnir eru stutthærðir og ólitaðir. Elín Birna segir ljósar strípur verða mjög vinsælar í sumar. MYND/VILHELM Ljóst og liðað verður inni í sumar. Það er vinsælt að hafa rótina í dekkri tón og endana í öðrum lit, til dæmis ljósum en líka í fjólubláum, bleikum eða rauðum. 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 8 -5 D C C 1 7 5 8 -5 C 9 0 1 7 5 8 -5 B 5 4 1 7 5 8 -5 A 1 8 2 8 0 X 4 0 0 4 B F B 0 7 2 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.