Fréttablaðið - 11.06.2015, Side 72

Fréttablaðið - 11.06.2015, Side 72
Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Sumarið er komið VIÐ SEGJUM FRÉTTIR · SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 DREIFING: dreifing@postdreifing.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 800 1177 VÍSIR RITSTJÓRN 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN Ísafoldarprentsmiðja Allt sem þú þarft ... Höfuðborgarsvæðið, meðallestur kvenna á tölublað, 18–49 ára. Prentmiðlakönnun Gallup, jan.– mar. 2015 YFIRBURÐIR Fréttablaðsins staðfestir 53,3% 18% FB L M BL Frá því að aðgerðaráætlun um afnám hafta var kynnt í vik- unni hef ég verið eitt spurninga- merki. Fjármál eru ekki mitt sérsvið en ég tel mig þó skilja til- gang aðgerðanna og átta mig á að þær eru mjög góðar. Stórum og mikilvægum spurningum er þó enn þá ósvarað. Eða öllu heldur stórri og mikilvægri spurningu: Hver á heiðurinn? Á Alþingi og á samfélagsmiðlum hafa þingmenn skipst á skoð- unum á yfirvegaðan og málefna- legan hátt um hver eigi að fá að taka að sér heiðurinn á þessari vinnu. Skiljan lega reyna þing- menn að gera sem minnst úr eigin hlut og þvert á flokka kepp- ast þeir um að kasta heiðrinum á milli sín, eins og sjóðandi heitri og gómsætri kartöflu. ÞESSARI mikilvægu spurningu er þó enn ósvarað þrátt fyrir hóg- værar og mikilvægar tilraunir þingheims. Það er því mikilvægt að setja á fót einhvers konar nefnd til að komast að því hver á heiðurinn að aðgerðunum. Nefnd- in hefði það hlutverk að komast til botns í málinu og neyða við- komandi þingmann til að taka hrósi. ÞAÐ er nefnilega óþolandi að þingmenn séu samstiga um ágæti aðgerða sem skila þjóðarbúinu miklum fjármunum án þess að almenningur viti nákvæm- lega hverjum á að hrósa. Það er það eina sem skiptir okkur máli. Það er enginn að spá í stórkost- leg áhrif sem lægri skuldastaða ríkissjóðs getur haft á íslenskt sam félag. Vaxtagreiðslur myndu lækka um milljarða en það breyt- ir litlu á meðan þöggun ríkir í samfélaginu um hver á hugmynd- ina. HVER ber ábyrgð á því að 1.200 milljarðar festust í gjaldeyris- höftum og hverjum datt í hug að það væri sniðugt að sækja hluta af þessu fjármagni til kröfuhafa? Hver stakk upp á því að leggja til að semja við kröfuhafana og hver sótti kaffið á fyrsta fund- inum? Þetta eru mjög mikilvægar spurningar. Kaffi hefur nefnilega mjög mikil áhrif á líðan fólks og virkni. Hver á heiðurinn? BAKÞANKAR Atli Fannar Bjarkason 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 7 -F B 0 C 1 7 5 7 -F 9 D 0 1 7 5 7 -F 8 9 4 1 7 5 7 -F 7 5 8 2 8 0 X 4 0 0 1 A F B 0 7 2 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.