Fréttablaðið - 11.06.2015, Side 42

Fréttablaðið - 11.06.2015, Side 42
FÓLK|TÍSKA Í FATASKÁP ÖMMU „Ég fór alltaf bein- ustu leið í fata- skápinn hennar ömmu þegar ég var hjá henni en hún var al- gjör tískudrottn- ing. Það eru því til ótal margar mynd- ir af mér þegar ég var lítil í pels unum hennar og með hatt á hausnum.“ Tíska er og hefur lengi verið helsta áhuga-mál Alexöndru Bernharð háskólanema og hefur hún bloggað um tísku frá árinu 2011 á tískubloggið sitt, Shades of Style, auk þess að skrifa fyrir NUDE Magazine. Hún fylgir þó ekki alltaf þeim tískustraumum sem eru í gangi þar sem hún er trú sínum eigin stíl. Hefurðu lengi pælt í tískunni? Já, ég hef lengi haft gaman af fötum og að klæða mig upp. Ég fór alltaf beinustu leið í fataskápinn hennar ömmu þegar ég var hjá henni en hún var algjör tískudrottning. Það eru því til ótal margar myndir af mér þegar ég var lítil í pelsunum hennar og með hatt á hausnum. Ég byrjaði þó ekki að pæla í tísku fyrir alvöru fyrr en ég var um átján ára og nokkrum árum seinna opnaði ég mitt eigið tísku- blogg. Hvernig klæðir þú þig hversdags? Ég reyni að klæða mig mjög þægilega hversdags en þægindi eru mjög mikilvæg að mínu mati þegar kemur að fatavali. Seinustu daga hef ég mikið verið í svörtum gallabuxum og þægilegri peysu eða síðri, víðri skyrtu yfir sokkabuxur. Hvernig klæðir þú þig spari? Það er mjög misjafnt eftir skapi og tilefni. Í augna blikinu er ég mjög hrifin af síðum samfesting- um og fínum buxum en fallegur kjóll er alltaf klass- ískt val. Hvernig lýsir þú stílnum þínum? Hann er mjög einfaldur og þægilegur. Mér finnst mikilvægt að líða vel í því sem ég klæðist og að geta notað flíkurnar á mismunandi vegu. Hvar kaupir þú fötin þín? Ég versla mest í Vila, Vero Moda, Zara, H&M og Asos. Eyðir þú miklu í föt? Já, það er það sem ég eyði eflaust mestum pen- ing í. Næst á eftir kemur matur en það er áhugamál númer tvö á eftir tísku. Hver er uppáhaldsflíkin þín? Það er mjög erfitt að velja á milli þar sem ég á svo margar fallegar flíkur en í augnablikinu er það ólífugræni jakkinn minn úr H&M og svartur síður samfestingur úr H&M. Uppáhaldshönnuður? Elie Saab án efa, svo er ég mjög hrifin af Alexand- er Wang og Eyland. Bestu kaupin? Ég vildi óska að ég gæti nefnt einhverja fallega tískuflík en ég verð að segja 66° Norður úlpan mín, það er ekkert betra en hún enda er ég algjör kulda- skræfa. Annars eru allir hælaskórnir mínir mjög góð kaup þótt þeir séu ekki mikið notaður. Einhver tískuslys? Það er alltaf eitthvað, en ég er þakklát fyrir þau því maður lærir af þeim. Hverju verður bætt við fataskápinn á næstu vikum? Það sem er á óskalistanum þessa stundina er út- víður samfestingur, fölbleikur biker-jakki og Chanel WOC-taska. Hver er helsti veikleiki þinn þegar kemur að tísku og útliti? Þegar ég sé flík sem ég er hrifin af þá get ég ekki hætt að hugsa um hana fyrr en hún er orðin mín. Það er alveg hægt að segja að ég eigi við örlítið verslunarvandamál að stríða. Hvers konar fylgihluti notarðu? Ég reyni að hafa hlutina alltaf mjög einfalda og því nota ég ekki mikið af fylgihlutum. Ég bæti oftast bara fallegri tösku og Daniel Wellington-úrinu mínu við dressið. Áttu þér tískufyrirmynd? Nei, ekki neina sérstaka. Ég fæ þó helling af inn- blæstri frá öðrum bloggurum en mér finnst Ange- lica Blick og Kenza æðislegar. KULDASKRÆFA MEÐ EINFALDAN STÍL TÍSKUBLOGGARI Alexandra Bernharð á skemmtilega tíma í vændum í sumar. Hún verður að vinna sem flugfreyja og ætlar til Parísar og La Rochelle auk þess að spá í tísku og skrifa um hana á bloggið sitt, Shades of Style. FINNST GAMAN AÐ VERSLA Alexandra á erfitt með að hætta að hugsa um flík sem hana langar í fyrr en hún hefur eign- ast hana. Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is Verslunin Belladonna Stærðir 38-58 Flottar sokkabuxur og leggings, í flottum stærðum Laugavegi 178 | Sími 555 1516 Kíkið á myndir og verð á Facebook Opið virka daga kl. 11–18 Opið laugardaga k l. 11-15 0 3 -1 2 -2 0 1 5 2 3 :3 6 F B 0 7 2 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 7 5 9 -E 3 D C 1 7 5 9 -E 2 A 0 1 7 5 9 -E 1 6 4 1 7 5 9 -E 0 2 8 2 8 0 X 4 0 0 8 B F B 0 7 2 s _ 1 0 _ 6 _ 2 0 1 5 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.