Fréttablaðið - 11.06.2015, Side 52
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| MENNING | 32
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Listahátíðin Festisvall fagnar fimm
ára starfsafmæli í sumar í fjórum
Evrópuborgum með tónleikum og
myndlistarsýningu.
„Þetta átti að vera voðalega ein-
falt allt saman, við ákváðum að
gera plakatasýningu af því að það
væri einfalt og þægilegt að ferðast
með,“ segir Dóra Hrund Gísladóttir,
myndlistarkona og annar stjórnandi
Festisvalls.
„Það hafa allir búnir verið svo til
í þetta og við erum búin að fá góðar
viðtökur, þess vegna er þetta búið að
stækka svona mikið,“ segir hún en
undirbúningur afmælishátíðarinnar,
sem nefnist Festisvall Fünf, hófst í
desember. Festisvall hóf göngu sína
árið 2010 í Hjartagarðinum og var
stofnuð af myndlistarmanninum
Árna Má Erlingssyni. Festisvall
Fünf ferðast frá Reykjavík til Leip-
zig, Berlínar og Amsterdam og taka
tuttugu íslenskir, þýskir og hollensk-
ir listamenn þátt í hátíðinni. „Við
erum að fara með sömu sýninguna í
fjögur rými en hún er í rosalega mis-
munandi samhengi á hverjum stað
þó að þetta séu sömu verkin.“
Sýningin verður sett upp þann 22.
ágúst í almenningsrými á Hverfis-
götu í samstarfi við Kex Hostel.
Tónleikarnir fara fram daginn áður
í Iðnó þar sem fram koma Berndsen,
Hermigervill, Good Moon Deer,
M-Band og East of My Youth. - gló
Festisvall fer til fj ögurra borga
Listahátíðin Festisvall fagnar fi mm ára afmæli í sumar með tónleikum og myndlist.
ALLT Á
FULLU Dóra
og Árni eru
nú á fullu við
að undirbúa
afmælis-
hátíðina.
„Það er vissulega frábært að standa
fyrir svona tónleikum en að sama
skapi leiðinlegt að þess sé þörf. En
þetta er gott framtak hjá Sinfóníu-
hljómsveit Íslands og þá sérstaklega
að fá svona flotta konu eins og Ligia
Amadio stjórnanda,“ segir Anna
Þorvaldsdóttir tónskáld en í kvöld
verða sérstakir kvennatónleikar
Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Á efnisskrá tónleikanna er píanó-
konsertinn Slátta eftir Jórunni
Viðar, Dreymi eftir Önnu Þorvalds-
dóttur og Gelíska sinfónían eftir
bandaríska tónskáldið Amy Beach.
Einleikari í Sláttu verður Ástríður
Alda Sigurðardóttir, sem er á meðal
okkar helstu píanóleikara af yngri
kynslóðinni.
Þurfum fyrirmyndir
Anna Þorvaldsdóttir segir að Ligia
sé bæði frábær stjórnandi og braut-
ryðjandi fyrir konur á þessum vett-
vangi og reyndar alveg sérstaklega í
Suður-Ameríku. Ligia er frá Brasilíu
og starfar sem aðalhljómsveitar-
stjóri Fílharmóníusveitarinnar í
Bogotá í Kólumbíu.
„Konum er vissulega aðeins að
fjölga á meðal hljómsveitarstjóra
en það gerist hægt. Helst til of
hægt í rauninni. Málið er að ungar
konur þurfa fyrirmyndir til þess að
sjá að þetta er hægt – sjá að þær
geta fetað þessa braut. Hið sama
gildir um tónskáldin.
Þegar ég var að byrja sem tón-
skáld þá reyndi ég vissulega að
finna slíkar fyrirmyndir en það er
ekki mikið flutt af verkum kven-
tónskálda. En þetta er að verða
meira og meira og það skipt-
ir miklu máli. Það er samt erfitt
fyrir mig að meta það hvort ég sé
fyrirmynd í augum yngri kvenna
sem hafa áhuga á að leggja fyrir
sig tónsmíðar. En ég vinn mikið og
reyni að vera góð fyrirmynd.“
Verðlaunin lífga tónlistina
Anna hlaut nýverið hin virtu
Marie- Josée Kravis Prize for New
Music sem Fílharmónían í New
York veitir. „Vissulega finn ég að
verðlaun sem þessi skipta máli
enda er eftir þeim tekið. Í grunn-
inn er það samt tónlistin sem er hið
eiginlega framlag og skiptir mestu
máli og það er fullt af fólki að gera
góða hluti í heimi tónlistarinnar
í dag. Ég lít því á verðlaun sem
ákveðna vegsemd fyrir tónlistina.
Auðvitað er þetta mikil hvatning
fyrir mig og þá ekki síst að fá að
vinna með Fílharmóníu sveitinni
í New York. Það gerir tónlistinni
minni fært að lifna við og það er
það dýrmætasta í þessu og að það
skuli verið að vinna með nýja tón-
list á þessum vettvangi. Sinfóníu-
hljómsveit Íslands hefur einmitt
verið mikið í að flytja nýja tónlist
og er í raun á meðal hljómsveita
sem eru í fararbroddi í heiminum
í þessum efnum.“
Sérstök upplifun
Anna segir að þótt hún búi í
Reykjavík sé hún óneitanlega
mikið á faraldsfæti vegna starfs-
ins. „Ég ferðast mikið til bæði
Bandaríkjanna og Evrópu. Vinn
með ýmsum hópum og skemmti-
legu fólki en ég þarf að passa mig
að hafa tíma til þess að semja.
Mér finnst líka mikilvægt að
vera hluti af flutningi verkanna.
Vil kynnast flytjendum hverju
sinni og finn líka að þau vilja heyra
í mér. Þessi æfingatími fyrir flutn-
inginn á verkunum er alltaf sér-
stök upplifun sem mér finnst vera
mikilvægur hluti af þessu. Þannig
nýt ég þess að vinna og fylgjast
með stjórnanda koma með ferska
nálgun – eins og til að mynda hjá
Ligia á tónleikum kvöldsins.“
magnus@frettabladid.is
Gefur tónlistinni líf
Tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands verða sérstakir kvennatónleikar og þar
verða fl utt verk eft ir þrjár konur. Þeirra á meðal er Anna Þorvaldsdóttir sem
nýverið vann til virtra tónlistarverðlauna hjá Fílharmóníunni í New York.
FYRIRMYND Anna Þorvaldsdóttir segist eiga að erfitt með að sjá sig sem fyrirmynd ungra kvenna við tónsmíðar.
MYND/SAGA SIG
www.netto.is Kræsingar & kostakjör
MANGÓ
FERSKT
275
ÁÐUR 549 KR/KG
-50%
Ferskt mangó
50%
afsláttur!
ht.is
Engin venjuleg upplifun
Við kynnum
Philips Ambilight
9000 sjónvörpin
með
Android
F
RÉ
TT
AB
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
MENNING
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
8
-3
6
4
C
1
7
5
8
-3
5
1
0
1
7
5
8
-3
3
D
4
1
7
5
8
-3
2
9
8
2
8
0
X
4
0
0
4
A
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K