Fréttablaðið - 11.06.2015, Blaðsíða 26
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| TÍMAMÓT | 26TÍMAMÓT
Okkar elskulega mamma og amma,
BRYNDÍS M. FRIÐÞJÓFSDÓTTIR
Álfkonuhvarfi 37,
Kópavogi,
kvaddi þennan heim þann 7. júní eftir
virðingarverða baráttu við krabbamein.
Fallegri og yndislegri manneskju er ekki
hægt að finna og hennar verður sárt saknað.
Jarðarförin verður 16. júní kl. 15.00 í Grafarvogskirkju.
Blóm og kransar eru afþakkaðir en þeim sem vilja minnast
hennar er bent á líknarfélög.
Hanna Maja, Elísabet Hanna og Óskar.
Hjartans þakkir fyrir samúð, kveðjur og
hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar
eiginkonu minnar, móður okkar, ömmu,
systur og mágkonu,
ÞÓRU KRISTINSDÓTTUR
Ársölum 1, Kópavogi.
Árni Ingólfsson
Ingólfur Árnason
Kristrún Árnadóttir
Ketill Árni, Tómas Kristinn og Hinrik Ari Ingólfssynir
Guðrún Kristinsdóttir Jóhann Guðmundsson
Erna Kristinsdóttir Elías Bragi Sólmundarson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærrar dóttur,
móður, systur, tengdamóður og ömmu,
MARGRÉTAR MAGNÚSDÓTTUR
myndlistarkonu.
Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir Ottó Schopka
Magnús Tómasson
Una Stígsdóttir, Anik Todd, Óðinn A. Todd, Æsa Margrét Todd
Magnús Ólafsson
Inga Franksdóttir
Friðrik Franksson
Teitur Atlason
Auðunn Atlason
Hrappur Magnússon
Helga Gerður Magnúsdóttir
Halla Oddný Magnúsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
ÁSDÍS KRISTJÁNSDÓTTIR
Vallholtsvegi 17,
Húsavík,
lést þann 3. júní á Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga. Útför hennar verður frá
Húsavíkurkirkju laugardaginn 13. júní 2015 kl. 15.00. Þeim sem
vilja minnast hennar er bent á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga.
Sigþór Haraldsson Brynja Ragnarsdóttir
Kristján Viðar Haraldsson Hugrún Inga Ingimundardóttir
og barnabörn.
Fyrrverandi eiginkona mín, elskuleg móðir
okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
INGIBJÖRG BENEDIKTSDÓTTIR
Litlu-Brekku í Geiradal,
andaðist á Heilbrigðisstofnun Vesturlands
laugardaginn 6. júní. Útför hennar fer fram
þriðjudaginn 16. júní kl. 14.00 frá Reykhólakirkju.
Birgir Hallgrímsson
Hreinn Ch. Birgisson Lilja Huld Sigurðardóttir
Hallgrímur Birgisson
Unnsteinn Birgisson
Fanney Birgisdóttir
Birta Dögg Birgisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Kæru ættingjar og vinir.
Hjartans þakkir fyrir þá vináttu og hlýhug
sem okkur fjölskyldunni hefur verið sýnd
við andlát og útför elskulegs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
BJÖRNS GÚSTAFSSONAR
frá Ásbyrgi, Djúpavogi,
síðast til heimilis á Höfða, hjúkrunar-
og dvalarheimili á Akranesi.
Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki Höfða fyrir einstaka
umönnun sem hann varð aðnjótandi, og hlýju til okkar
fjölskyldunnar.
Hilmar Björnsson Hanna Rúna Jóhannsdóttir
Lea H. Björnsdóttir Aðalsteinn Sigurgeirsson
Jón Valdimar Björnsson Selma Guðmundsdóttir
Sigrún Björnsdóttir Júlíus Ólafsson
Hreinn Björnsson Ingibjörg J. Ingólfsdóttir
Hlíf Björnsdóttir Magnús F. Ingólfsson
og fjölskyldur.
„Í tilefni af því að í ár eru liðin 100 ár
frá því að konur fengu kosningarétt á
Íslandi er saga formæðra okkar rifj-
uð upp vítt og breitt um landið,“ segir
Ingibjörg Pálmadóttir, fyrrverandi
heilbrigðisráðherra og tengiliður sýn-
ingarinnar Saga líknandi handa í Guð-
nýjarstofu í Görðum á Akranesi. „Þar
ætlum við að bregða upp myndum af
sögu líknandi handa, en hjúkrun, yfir-
seta og öll umönnun barna og aldraðra
hefur að meira og minna leyti verið í
verkahring kvenna í áranna rás, við
mjög mismunandi aðstæður,“ bætir
Ingibjörg við.
Farið verður yfir sögu nítján kvenna
sem helguðu líf sitt umönnun annarra.
Á meðfylgjandi myndum er sýnt örlít-
ið brot af öllu því sem sagan geymir
um þetta efni. „Með sýningunni vilj-
um við heiðra allar þær konur sem
hafa með fórnfýsi og umhyggju líkn-
að, huggað og grætt mein. Tól, tæki
og magnaðir búningar frá fyrri tíð
í eigu Þjóðminjasafnsins eru meðal
muna á sýningunni sem gefur innsýn
í þær stórfelldu breytingar sem orðið
hafa í gegnum tímann í heilbrigðis-
málum,“ útskýrir Ingibjörg. Meðal
þeirra kvenna sem fjallað er um á
sýningunni er Kristrún á Bjargi frá
Akranesi, sem tók inn í sinn litla bæ
sjúklinga til hjúkrunar og náði undra-
verðum árangri, eins og segir í frétta-
tilkynningu. Þar segir einnig að fyrsti
sjúklingurinn hafi komið í hennar
umsjá vorið 1886. Einnig er skyggnst
inn í störf ljósmæðra á Akranesi og er
farið yfir feril Guðrúnar Gísladóttur,
sem fæddist 1868. Hún tók á móti 1.163
börnum á Akranesi auk þess sem hún
þótti góð hjúkrunarkona og hjálpaði
mikið í spænsku veikinni sem geisaði
svo harkalega á Akranesi 1918. Hús
Guðrúnar á Mið-Söndum var ávallt
kallað Ljósuhús en það stendur enn að
Krókatúni 2.
Að sögn Ingibjargar verða sýnd sjón-
varpsviðtöl við fimm konur sem segja
reynslusögu sína og þar á meðal er við-
tal við Sigurlínu Gunnarsdóttur sem
var önnur tveggja hjúkrunarkvenna
sem hófu störf þegar Sjúkrahús Akra-
ness tók til starfa árið 1952.
„Skagaleikflokkurinn setur upp
stúku fund frá 1915 þar sem tillaga
Mettu Steinunnar í Mörk var samþykkt
um byggingu sjúkraskýlis á Akranesi,“
bætir Ingibjörg við.
Hún segir að sum tæki væri jafnvel
hægt að nota enn. „Já, til dæmis stól-
pípurnar, en þær erum við með í öllum
stærðum og gerðum, flottar og emalér-
aðar. Ef lítið verður að gera á sýning-
unni verður hægt að panta smá hreins-
un hjá okkur ef áhugi er fyrir hendi,“
segir ráðherrann fyrrverandi og hlær.
kjartanatli@365.is
Kvenna sem helguðu líf
sitt umönnun minnst
Sýningin Saga líknandi handa verður opnuð á Akranesi í dag. Þar er farið yfi r feril kvenna
sem störfuðu við umönnun. Stúkufundur frá árinu 1915 verður settur á svið.
ÖLLU TJALDAÐ TIL Hér má sjá hluta af sýningunni sem haldin er í Guðnýjarstofu í Görðum á Akranesi.
MERKRA KVENNA MINNST Hér má sjá tvær af þeim konum sem minnst er á hátíðinni.
MERKISATBURÐIR
1509 Hinrik VII Englandskonungur kvænist fyrsta sinni. Það
gerði hann fimm sinnum í viðbót á ævinni.
1535 Greifastríðinu í Danmörku lýkur með sigri Kristjáns 3. í
orrustunni við Øksnebjerg.
1870 Bruggverksmiðjan Amstel er stofnuð í Hollandi.
1910 Gasstöð Reykjavíkur tekur til starfa.
1911 Melavöllurinn í Reykjavík vígður.
1957 Handknattleikssamband Íslands er stofnað.
1975 Lög um fóstureyðingar við sérstakar aðstæður taka gildi á
Íslandi.
1982 Orrustan um Stanley, lokaorrusta Falklandseyjastríðsins,
hefst.
1987 Margaret Thatcher verður fyrsti breski forsætisráðherrann
til að vinna kosningar þrisvar í röð á síðustu 160 árum.
1994 Íslandssíld er landað í fyrsta skipti í 27 ár.
1994 Sveitarfélögum á Íslandi fækkar um 18.
2001 Konunglegu fjöldamorðin í Nepal eiga sér stað. Dipendra
prins myrðir 10 konungsmeðlimi og sviptir sig lífi.
2004 Ronald Reagan er borinn til grafar.
2000 Hafez Assad Sýrlandsforseti deyr, 69 ára að aldri.
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
5
9
-E
3
D
C
1
7
5
9
-E
2
A
0
1
7
5
9
-E
1
6
4
1
7
5
9
-E
0
2
8
2
8
0
X
4
0
0
8
B
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K