Fréttablaðið - 11.06.2015, Qupperneq 40
KYNNING − AUGLÝSINGHúð og hár FIMMTUDAGUR 11. JÚNÍ 20158
DRAGÐU FRAM
ÞAÐ BESTA
Flestar konur kunna að setja
á sig farða, púður og maskara.
Þegar kemur að augnskuggum
og öðrum skyggingum vandast
hins vegar málið. Margar komast
þó vel upp á lag með að skyggja
andlitið og draga þannig fram
það besta í eigin fari. Skyggingin
fer reyndar svolítið eftir andlits-
falli en hér er tekið dæmi um
algenga aðferð.
Fyrst er settur grunnur, augn-
málning og farði. Þegar kemur
að skyggingunni er bronspúður
eða -gel á borið á enni upp við
hárrótina, undir kinnbein, með-
fram nefi og á kjálka. Kinnalitur
er svo borinn á kinnbein og
ljómi þar fyrir ofan, á mitt enni,
undir augabrúnir, á nef og fyrir
ofan og neðan varir.
Í lokin er mikilvægt að blanda
með léttum burstastrokum.
AF HVERJU FÁUM VIÐ
HRUKKUR?
Öll fáum við hrukkur. Reyndar mismiklar og
mishratt. Á Vísindavefnum er því svarað af hverju
hrukkur myndast. Í stórum dráttum er það vegna
þess að ung húð býr yfir miklum teygjanleika og
getu til að halda í sér raka. Með aldrinum þynnist
húðin og erfiðara er fyrir hana að halda í sér raka.
Fita, sem er í undirhúð og gefur húðinni fyllingu,
minnkar einnig með aldrinum. Þetta leiðir til
þess að húðþekjan fer að hanga/síga og hrukkur
myndast.
Húðlæknar áætla að allt að 90% þeirra breyt-
inga í húðinni sem við álítum tilkomnar vegna
öldrunar séu í raun vegna skemmda af völdum
sólarljóss. Húð sem hefur orðið fyrir áralöngum
ljósskemmdum er með fleiri og dýpri hrukkur,
auk þess sem víða eru litaskellur vegna ójafnrar
litadreifingar.
Gefin eru nokkur ráð til að hamla hrukkumynd-
un á unga aldri:
● Forðastu að vera of lengi í sólinni, einkum
þegar hún er hæst á lofti. Sólarvörn dregur úr
áhrifum útfjólublárra geisla að einhverju leyti
en getur ekki haldið öllum geislunum frá.
● Slepptu því að fara í ljós. Útfjólubláu geislarnir
í perum lampanna eru alveg jafnskaðlegir og
geislar sólarinnar, stundum jafnvel verri.
● Ekki reykja! Reykingar ræna húðina verð-
mætum raka og valda hrukkumyndun fyrir
aldur fram.
● Berðu rakakrem á húðina á hverjum degi,
einkum í þurru og köldu veðri.
● Drekktu mikið vatn á hverjum degi til að
líkaminn fái nægan vökva sem stuðlar að því
að húðin verði mjúk og slétt.
BY mótunarlínan er frá Framesi Milanó.
Fæst eingöngu á hárgreiðslustofumwww.harogsmink.is
VOLUMIZING
DRY SHAMPOO
HÁRIÐ VEX Í SEX ÁR
Á höfðinu eru að meðaltali um
hundrað til hundrað og sextíu
þúsund hár sem vaxa um það
bil einn sentimetra á mánuði.
Hvert hár vex í allt að fimm til
sex ár. Þá hættir það að vaxa og
dettur að lokum af . Á hverjum
degi detta um hundrað hár af
höfðinu.
Í rótum hársins eru frumur sem
framleiða litarefnið melanín.
Með aldrinum hrörna frumurnar,
framleiðsla litarefnisins minnkar
og hárin grána.
Hrörnun frumnanna byrjar
í kringum 30 ára aldurinn hjá
körlum og um það bil fimm
árum síðar hjá konum.
heimild: vísindavefur.is
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
9
-3
2
1
C
1
7
5
9
-3
0
E
0
1
7
5
9
-2
F
A
4
1
7
5
9
-2
E
6
8
2
8
0
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K