Fréttablaðið - 11.06.2015, Síða 64
11. júní 2015 FIMMTUDAGUR| SPORT | 44
FÓTBOLTI „Ég er búinn að bíða eftir
þessum leik allt sumarfríið,“ segir
Kári Árnason, miðvörður íslenska
fótboltalandsliðsins, við Vísi um
leikinn gegn Tékklandi í undan-
keppni EM 2016 á föstudaginn.
Þar geta strákarnir okkar tekið
risastórt skref í átt að fyrsta stór-
mótinu í sögu karlalandsliðsins.
„Sumarfríið hefur verið langt og
hefur nánast bara gengið út á að
bíða eftir þessum leik,“ segir Kári
sem spilaði síðast fótboltaleik með
félagsliði sínu Rotherham 2. maí.
Miðvörðurinn öflugi verður því
ekki búinn að spila fótboltaleik í 41
dag þegar flautað verður til leiks
á Laugardalsvelli á föstudaginn.
„Ég eyddi stærstum hluta frísins
hér heima en fór aðeins til útlanda.
Maður hefur bara verið að reyna
að halda sér í standi,“ segir Kári
sem hefur æft mest einn.
„Ég reyndi að æfa með Víking-
unum en vellirnir eru misgóðir
þannig það var bara best að halda
sig á hlaupabrettinu,“ segir hann
og hlær.
Tékkland vann Ísland, 2-1, þegar
liðin mættust síðast, en þann sigur
verðskulduðu Tékkarnir sem eru
með tveggja stiga forskot á toppi
riðilsins.
„Við fórum yfir það sem miður
fór þar í Kasakstan og reyndum
að laga hlutina fyrir þann leik. Við
gerðum það ágætlega en nú erum
við að mæta mun sterkara liði,“
segir Kári.
Víkingurinn hefur spilað með
Rotherham í neðri deildum Eng-
lands undanfarin þrjú ár, en liðið
hélt sér uppi með naumindum í
B-deildinni í ár sem nýliði. Árang-
urinn er góður hjá liðinu, sem var í
D-deildinni þegar Kári samdi.
„Það hefur alltaf verið mikill
baráttuandi og karakter í þessu
liði. Alltaf þegar það er búið að
afskrifa okkur, eins og í úrslita-
leiknum um að komast upp í B-
deildina þar sem við lentum 2-0
undir, komum við til baka,“ segir
Kári, en liðið lenti líka í kröppum
dansi á síðustu leiktíð.
„Það voru náttúrlega tekin
af okkur stig á lokakaflanum í
deildinni en við komum til baka
eftir það og héldum okkur uppi.
Við höfðum alltaf trú á þessu, en
þetta var erfitt eftir að stigin voru
tekin af okkur. Það var klaufalegt
af hálfu stjórnar liðsins. Við leik-
mennirnir vissum samt alveg að
þetta var hægt.“
Knattspyrnustjóri Rotherham,
Steve Evans, er litríkur í meira lagi.
Hann elskar sviðsljósið og fór ham-
förum undir lok tímabilsins þegar
hann sagði leikmanni Millwall að
hann mætti halda kjafti og hlakka
til lífsins í C-deildinni eftir að liðið
féll en Rotherham hélt sér uppi. Þá
mætti hann í stuttbuxum og með
mexíkóhatt í lokaumferðinni.
„Hann nær svolítið að færa
athyglina yfir á sig sjálfan,“ segir
Kári, en er hann þá eins konar feit-
laginn José Mourinho?
„Ég læt það nú vera,“ segir Kári
og hlær. „Hann er góður sölu-
maður. Hann selur sjálfan sig með
þessu og það er það sem hann var
að gera með þessu.“ - tom
Góður að selja sig
Kári Árnason spilar fyrir öðruvísi knattspyrnustjóra.
KLÁR Í SLAGINN Kári Árnason stendur vaktina í vörninni. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
FÓTBOLTI „Ég spilaði mjög vel í vetur og
mæti til leiks með sjálfstraustið í botni,“
segir landsliðsmaðurinn Jóhann Berg Guð-
mundsson en hann er klár í slaginn fyrir
stórleikinn gegn Tékkum á morgun. Svo
sannarlega risaleikur fyrir strákana þar
sem toppsætið í riðli Íslands í undankeppni
EM er undir.
Jóhann Berg skoraði tíu mörk fyrir Charl-
ton í ensku B-deildinni í vetur og nokkur
þeirra komu úr glæsilegum aukaspyrnum.
Spyrnurnar vöktu athygli og var honum líkt
við sjálfan David Beckham.
„Þetta var eitthvað sem þjálfarinn sagði
og strákarnir eru búnir að stríða mér svo-
lítið út af þessu. Vilja meina að ég hafi sagt
þetta en ég er ekki svo kolruglaður að ætla
að líkja mér við Beckham,“ segir Jóhann
Berg hlæjandi en honum fannst samlíking-
in ekkert leiðinleg. „Nei, það var fínt að fá
að heyra þetta.“
Frammistaða Jóhanns hefur komið honum
enn frekar á kortið. Úlfarnir eru meðal ann-
ars sagðir vera að undirbúa tilboð í hann.
„Ég ætla bara að taka þennan leik og sjá
svo til hvað gerist. Ég á auðvitað eitt ár eftir
af samningi mínum við Charlton, það eru
því þreifingar því ég spilaði vel. Ég vil spila
í eins sterkri deild og mögulegt er og ég hef
líka sagt að ég vil sjá hvað Charlton gerir í
sumar. Hver metnaður liðsins sé. Ég vil auð-
vitað vera í liði sem er að reyna að komast
upp af alvöru.“
Líkt og aðrir í hópnum getur Jóhann ekki
beðið eftir stóra leiknum annað kvöld.
„Það er gaman að spila alvöruleik hér á
Laugardalsvelli. Fullur völlur og fyrsta
sætið í boði. Það er ekki hægt að biðja um
mikið meira,“ segir Jóhann og bætir við að
leikmenn liðsins séu komnir með reynslu af
því að spila stórleiki.
„Flestir eru vanir því með félagsliðum
sínum og skemmtilegra að gera það með
landsliðinu. Þetta eru allt stórleikir núna og
ef við náum góðum úrslitum í þessum leik
erum við komnir í góða stöðu til að komast
á okkar fyrsta stórmót. Það er gaman fyrir
þjóðina núna að fá svona stórleik enda yfir
litlu að gleðjast þar sem veðrið leikur ekki
beint við fólk,“ segir Jóhann Berg léttur.
„Við ætlum að njóta þess að spila þennan
leik. Við lærðum mikið af fyrri leiknum.
Þeir pressuðu okkur hátt og við leystum
það alls ekki nógu vel. Menn urðu svolítið
hræddir eftir að við komumst yfir. Fórum
að verja markið í stað þess að halda áfram
okkar leik. Við verðum líka að sjá til hvernig
þeir leggja þetta upp. Þetta verður örugg-
lega svolítil skák en við ætlum að gera betur
en í fyrri leiknum í Tékklandi. Við höfum
fulla trú á okkur.“
henry@frettabladid.is
Ætla ekki að líkja mér við Beckham
Jóhann Berg Guðmundsson gæti söðlað um í sumar en áhugi er á honum víða eft ir gott tímabil. Þjálfari hans líkti honum við David
Beckham og hefur honum verið svolítið strítt eft ir það. Hann segir strákana ætla sér stóra hluti gegn Tékkum í Dalnum á morgun.
MÆTIR MEÐ SJÁLFSTRAUSTIÐ Í BOTNI Jóhann Berg er í flottu formi og á örugglega eftir að gera
Tékkum lífið leitt á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY
Konur fagna 100 ára afmæli kosningaréttar í ár, bæði í
Danmörku og á Íslandi. Í tilefni þess boða Norðurlönd
í fókus til opins fundar í Norræna húsinu á Fundi
fólksins, föstudaginn 12. júní kl. 17-18.30.
Dagskrá:
Inngangsorð: Sóley Tómasdóttir, forseti
borgarstjórnar.
Dr. Auður Styrkársdóttir, stjórnmálafræðingur og
forstöðukona Kvennasögusafns Íslands, ræðir sögu
kosningaréttarins í Danmörku og á Íslandi.
Rithöfundarnir Leonora Christina Skov frá Danmörku
og Gerður Kristný frá Íslandi flytja ræður um sína sýn
á stöðu kvenna í sínum löndum, bæði í nútíð og fortíð.
Fundarstjóri er Charlotte Bøving, leikkona og
leikstjóri.
Fundurinn fer fram á skandinavísku og er öllum
opinn. Aðgengi er fyrir fatlaða.
Fundurinn er haldinn í samvinnu við danska
sendiráðið á Íslandi og Reykjavíkurborg.
100
ÁRA
KOSNINGARÉTTUR
KVENNA Á ÍSLANDI
100 ára kosningaafmæli á Íslandi og í Danmörku
0
3
-1
2
-2
0
1
5
2
3
:3
6
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
5
A
-1
A
2
C
1
7
5
A
-1
8
F
0
1
7
5
A
-1
7
B
4
1
7
5
A
-1
6
7
8
2
8
0
X
4
0
0
9
A
F
B
0
7
2
s
_
1
0
_
6
_
2
0
1
5
C
M
Y
K