Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 38
Í grófu klámi er hægt að finna ýmis brengluð skilaboð sem eiga sér ekki stoð í veruleikanum,“ segir
Ástrós Erla Benediktsdóttir, meist-
aranemi í félagsráðgjöf til starfsrétt-
inda við Háskóla Íslands. Skilaboðin
geta verið dulin eða sýnileg. Skila-
boðin gefa til dæmis hugmyndir um
kynhegðun, kynheilbrigði, líkams-
mynd og samskipti milli kynja. Mörg
þessara skilaboða eiga ekki við í
raunveruleikanum. Þar má nefna
dæmi um að konur eru í flestum
klámmyndum alltaf til í kynlíf og
fá alltaf fullnægingu, jafnvel þótt
það virðist vont eða niðurlægjandi.
Einnig eru karlmenn oft sýndir kald-
lyndir þar sem lítil virðing og ást er
sýnd til kvenna í grófu klámi.
Kærleikssnautt viðhorf
Ástrós Erla vann lokaverkefni
sitt í BA-námi í félagsráðgjöf um
útbreiðslu kláms og hugsanleg áhrif
þess, þá sérstaklega á börn og ung-
menni. Í dag vinnur hún að meistara-
prófsritgerð sinni í félagsráðgjöf
undir leiðsögn Freydísar Jónu Frey-
steinsdóttur (MSW, PhD), dósents
í félagsráðgjöf. Í ritgerðinni skoðar
hún kynhegðun, kynheilbrigði og
klámáhorf íslenskra ungmenna og
kannar meðal annars hversu mikið
klámáhorf er hér á landi, hvar ung-
menni nálgast klám og hve mikið
þau horfa á það. Einnig er skoðað
hvort klám hafi áhrif á ýmsa þætti
í lífi einstaklinga t.d. eins og líkams-
ímynd og hamingju.
Rannsóknir hafa sýnt að meðal-
aldur þeirra sem horfa á klám í
fyrsta skipti er um 11 ára. Í ritgerð
Ástrósar Erlu kemur einnig fram að
rannsóknir hafi sýnt að klámáhorf
snemma á æviskeiðinu getur komið
í veg fyrir að kynvitund mótist eðli-
lega og að hætta sé á að viðhorf
einstaklings verði virðingar- og/
eða kærleikssnautt. „Rannsóknir
sýndu að börn sem hafa séð klám
geta upplifað kvíða eftir á og jafnvel
vanlíðan,“ segir Ástrós Erla. Aðgengi
að klámi hefur aukist mjög síðustu
áratugi með tölvuvæðingunni. Mikil-
vægt er að foreldrar séu meðvitaðir
um hversu mikið af klámi er á netinu
og hversu auðvelt er að nálgast það.
„Maður er t.d. farin að sjá börn í leik-
skóla leika sér með síma og ég tel að
það séu ekki allir foreldrar sem fatta
að setja netsíur til að verja börnin
gegn klámi.“
Klámvæðingin ekki stöðvuð
Ástrós Erla segir útbreiðslu kláms
sífellt að aukast, þar að auki hafi
klám orðið sífellt hversdagslegra og
viðurkenndara með tölvuvæðing-
unni. „Klám er ekki aðeins að finna á
internetinu en einnig í kvikmyndum,
sjónvarpsþáttum, tónlistarmynd-
böndum, tímaritum, auglýsingum,
fjölmiðlum og mörgu fleira. Klám-
fengið efni sem kemur fram í tónlist-
armyndböndum og öðru sjónvarps-
efni er oft flokkað sem mjúkt eða
erótískt klám. Mikið af því klámefni
sem hægt er að finna á internetinu er
mjög gróft og afbrigðilegt frá „hefð-
bundnu“ kynlífi. Klámvæðinguna
er líklegast ekki hægt að stöðva og
því tel ég mikilvægt að nýta fræðslu
og forvarnir til að koma í veg fyrir
skaðleg áhrif.“
Rannsóknir hafa sýnt að karl-
menn sækjast fremur eftir því að
horfa á klám en konur. „Flestir hafa
séð klám, bæði konur og karlar, en
rannsóknir hafa sýnt að karlar horfa
meira og oftar á það en konur. Klám
er margs konar og hefur margs konar
áhrif á fólk sem getur bæði verið
flokkað sem jákvætt og neikvætt,“
tekur hún fram. „Sumir nota klám til
að fá hugmyndir um nýja hluti sem
þá langar að prófa í kynlífi og eru
forvitnir um. Rannsóknir hafa sýnt
að ungmenni sem horfa á klám eru
líkleg til að prófa endaþarmsmök,
kynlíf með fleirum en einum aðila
eða eiga fleiri bólfélaga yfir ævina. Ég
Hvaða skilaboð sendir klám um kynlíf, konur, karla
og sambönd? Hver eru áhrif þess á börn og unglinga?
Er klámvæðingin komin til að vera? Hvernig er hún að
þróast? Ástrós Erla Benediktsdóttir og Þórður Krist-
insson eru sérfróð um áhrif kláms á ungmenni og eru
sammála um að aukin kynfræðsla sé algjör nauðsyn.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
Slæm
áhrif
Fréttablaðið/Silja
l Kynferðisleg mök í leggöng
konu, endaþarm eða munn
af hálfu þriggja eða fleiri
karla á sama tíma.
l „Double penetration“, kyn-
mök og endaþarmsmök
sem tveir karlar stunda í
einu við konu.
l „Gagging“, það orð er
notað þegar karlmaður
lætur konu veita sér munn-
mök og þvingar lim sínum
það langt niður í kok að
hún kúgast, tárast og jafn-
vel ælir.
l „Ass to mouth“, enda-
þarmsmök þar sem karl-
maður tekur liminn úr
endaþarmi og beint yfir í
munn konunnar án þess að
þrifið sé á milli.
l „Bukkake“, einn eða fleiri
karlmenn brunda yfir and-
lit, líkama, hár, augu, eyru
eða munn konu.
l „Money shot“, einn eða
fleiri karlmenn brunda í
glas og konan drekkur það.
(Dines, 2010; Stewart og Szymanski, 2012).
Ofbeldi í klámi
90%
vinsælustu klámmynda í
Bandaríkjunum innihalda sen-
ur þar sem kona er bæði beitt
tjáningarlegu og líkamlegu
ofbeldi, allavega einu sinni.
Ástrós Erla benediktsdóttir segir skila-
boð sem felast í grófu klámi brengluð,
fræðslu þurfi til að aðstoða ungt fólk
sem er enn að móta kynvitund sína til
þess að greina á milli kláms og veru-
leika. Fréttablaðið/StEFÁn
Kaldlyndir
strákar og
stúlkur
niðurlægðar
kláms
tel að mörg ungmenni prófi ýmislegt
sem þau sjá í klámi sem þau hefðu
jafnvel annars ekki prófað. Þar má
nefna að í klámefni á netinu má
finna mikið um endaþarmsmök,
hópkynlíf og „cum shots“ þar sem
karlmaður brundar yfir konuna, þá
í andlit, munn eða líkama.
Aðrar rannsóknir hafa sýnt að
mikið klámáhorf getur haft áhrif
á getu einstaklinga til að tengjast
öðrum og halda sér í sambandi.
Rannsóknir hafa einnig sýnt fram
á að bæði mikill sýnileiki kláms í
umhverfinu og klámáhorf geti haft
slæm áhrif á sjálfsmynd og líkams-
ímynd ungmenna. Einnig getur það
haft áhrif á kynhegðun og kynferðis-
lega örvun einstaklinga. Í heimildar-
mynd um klámfíkla kom fram að
adul
t
cont
ent
↣
5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r38 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
7
-B
E
1
4
1
7
A
7
-B
C
D
8
1
7
A
7
-B
B
9
C
1
7
A
7
-B
A
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K