Fréttablaðið - 05.12.2015, Qupperneq 40
500
milljónir
Um það bil 500
milljónir
klámsíðna
er að finna á
internetinu
11 ára
Rannsóknir hafa sýnt
að meðalaldur
þeirra sem horfa
á klám í fyrsta
skipti er um
11 ára 96
milljarðar
dollara
Árið 2006 var
klámiðnaðurinn metinn
á 96 milljarða dollara
á heimsmælikvarða
klámáhorf hafði mikil áhrif á kyn
hegðun þeirra og getu til kynferðis
legrar örvunar. Kynlífið þurfti t.d. að
vera mjög afbrigðilegt eða gróft til að
það veitti þeim örvun og var því lítið
um tilfinningar eða nánd í sambandi
þeirra við kynlífsfélaga.“
Þarf öflugri kynfræðslu
Kynfræðslu þyrfti að efla að mati
Ástrósar Erlu. Þá ekki aðeins til ung
menna heldur einnig til almennings.
„Það er einhver kynfræðsla í boði í
skólum, en ekki næg. Það þarf að tala
meira um kynlíf og klám og aðstoða
ungt fólk við að greina á milli kláms
og veruleika. Einnig er mikilvægt að
tala um hvernig á að efla góð sam
skipti, jafnrétti, nánd og tilfinningar.
Það hafa nokkrar rannsóknir sýnt
að ungmenni leita í klám ef þau
þurfa upplýsingar eða fræðslu um
kynferðislegar athafnir. Mikilvægt er
að þau geri sér grein fyrir hvað á við í
raunveruleikanum og hvað ekki. Það
er því mikilvægt að við í þjóðfélag
inu, skólar, foreldrar og fleiri, séum
til staðar og veitum þeim fræðslu
um þessi efni. Það er til svo mikið af
góðum myndböndum á netinu þar
sem meðal annars er frætt um mun
inn á klámi og veruleika sem hægt
væri að nota.
Kynfræðsla þar sem kennt er um
samskipti kynja, kynhegðun, kyn
þroska, kynheilbrigði og klám ætti
að mínu mati að vera skyldufag
bæði í grunnskólum og framhalds
skólum. Ég er nú að kanna þörfina
á slíkri fræðslu og kanna hvernig
staðan er hjá íslenskum ungmennum
í meistararitgerð minni. Þegar ung
menni eru á kynþroskaskeiðinu og
eru að þróa kynvitund sína, viðhorf
sín til kynlífs og fleira er mikilvægt að
þau fái fræðslu sem stuðlar að góðu
kynheilbrigði. Við þurfum t.d. að
tryggja að ef ungmenni horfa á klám
fái þau fræðslu um hvað er talið hefð
bundið eða normal í kynlífi svo þau
geta miðað sig út frá því. Ef þau hafa
góð viðmið, eru þau líklegri til að
geta greint sjálf milli þess sem kemur
fram í klámi og raunveruleikans.“
↣
Þórður Kristinsson segir betur megi
gera í kynfræðslu fyrir ungmenni.
Fréttablaðið/Ernir
*Staðreyndir úr ritgerð Ásthildar Erlu
42,7%
Rannsóknir hafa sýnt að
um 42,7% allra einstak-
linga sem nota internetið
skoða þar klámefni
13.000
Gefnar eru út 13.000
kvikmyndir um klám
á ári hverju*
5 . d e s e m b e r 2 0 1 5 L A U G A r d A G U r40 h e L G i n ∙ F r É T T A b L A ð i ð
Þórður Kristinsson, mannfræðingur og kennari við Kvennaskólann, segir vera mun á
klámvæðingu og klámmenningu.
Hið fyrrnefnda er það þegar áhrif
kláms smeygja sér inn í menningu
okkar. „Klámmenningin hefur verið
í uppsveiflu núna samanber rann
sókn frá 2010 sem sýndi að íslenskir
unglingsdrengir ættu Norðurlanda
met í klámnotkun,“ segir Þórður.
„Tengingin er kannski þessi að með
klámvæðingunni þá þykir klám og
klámneysla sjálfsagðari. Þó að við
séum að sjá merki kláms í almennri
menningu, þá er meginstraums
klámið orðið miklu grófara en það
var fyrir fimm, tíu eða fimmtán
árum,“ segir hann.
Þórður segir mikilvægt að taka
umræðuna um klám við ungmenni
og ræða til að mynda um muninn
á erótík og klámi og hvers vegna
mikið af umræðunni snýst um að
fólk er ekki að tala um sömu hlutina.
Það eru til margar mismunandi skil
greiningar þar sem klám er aðgreint
frá erótík og er þar helst að telja að í
klámi felist einhver niðurlæging og
misnotkun án þess að slík hegðun
sé gagnrýnd. „Í því sem við köllum
meginstraumsklám er niðurlæging
og ofbeldi orðið eðlilegt. Og sárs
auki þess sem er riðið, konunnar,
virðist vera það sem á að vera kyn
æsandi. Sú skilgreining sem við
notum á klámi, felur í sér að í klámi
sé niðurlæging. Allt annað er eró
tík. Ef þau fá ekki mótvægi við þessa
„kynfræðslu“ sem þau eru að sækja
sér sjálf í gegnum klámið þá getur
það haft þau áhrif að þau haldi að
fullt af hlutum sem þau sjá í klámi
sé í lagi.“
Hann segir ýmsar ranghugmyndir
geta falist í þessu og klám geti verið
skaðlegt. „Það getur verið það. Ef þú
sérð hugmyndir sem þú heldur að sé
svakalega sniðugt að prófa en virðir
ekki mörk manneskjunnar sem þú
stundar kynlíf með þá er það skað
legt fyrir báða aðila. Síðan er það
þessi litli hluti sem ánetjast klámi.
Klám er notað við persónulegar
aðstæður, í þessum aðstæðum leys
ast út boðefni sem eiga að notast við
að byggja upp tilfinningaleg tengsl
en sé það notað svona þá byggjast
upp þessi tengsl við klám.
Miðað við það sem við sjáum hjá
Neyðarmóttöku vegna nauðgana
hjá Landspítala og Stígamótum þá
virðast gerendur í kynferðisafbrota
málum fá mikinn innblástur úr
klámi. Við höfum rannsóknir sem
Gerendur fá
Þeir sem eru eldri skilja kannski verr þennan veruleika sem samfélagsmiðlar og aukin
allrahanda netnotkun hefur fært
okkur,“segir Björt Ólafsdóttir,
þingkona Bjartrar framtíðar. Björt
er fyrsti flutningsmaður frum
varps um breytingar á almennum
hegningarlögum sem miða að því
að gera birtingu, vörslu og sköpun
hefndarkláms refsiverðar. Mál
hennar hefur ekki enn verið sett á
dagskrá Alþingis og Björtu finnst
það skjóta skökku við. Það sé ljóst
að eining sé um málið þvert á flokka
og það verði samfélaginu til góða
að lögin nái utan um glæpi af þessu
tagi. „Forseti Alþingis hefur ekki enn
sett málið á dagskrá þrátt fyrir mála
þurrð stjórnarliða.“
Hún segir ljóst að klámvæðingin
hafi áhrif á þróun glæpa á borð við
hefndarklám. „Ég held að það sé
alveg ljóst að mörkin eru að færast
til. Klámneysla hefur áhrif á það
hvað fólk álítur vera eðlilegt kynlíf.
Ekki ætla ég að ákveða hvað venju
legt kynlíf er en það er sorglegt að
vita af því að fólk færir mörkin
lengra en því þykir þægilegt.“
Lögreglu hafa borist tvær tilkynn
ingar á síðustu tveimur árum um til
vik þar sem hefndarklám er notað
til kúgunar, hvort sem það er til að fá
viðkomandi til að samþykkja kyn
ferðislegt samneyti eða láta af hendi
fjármuni.
„Það er áríðandi að taka á þessu
sem fyrst. Ef klámefni er dreift um
ungt fólk undir lögaldri þá má
flokka það undir barnaklám. En
Þetta eRU baRa nýjaR
leiðiR til að setja fólk
niðUR oG innblÁsnaR
af klÁmi.
Þessi tilRaUnaGleði
helst ekki í hendUR við
meiRi samskipti við ÞÁ
sem eRU að taka ÞÁtt í
kynlífsathöfnUm.
Klám sem kúgunartæki
„Miðað við það sem við sjáum hjá neyðarmóttöku vegna nauðgana hjá landspítala og Stígamótum þá virðast gerendur í kyn-
ferðisafbrotamálum fá mikinn innblástur úr klámi,“ segir Þórður Kristinsson. nordicphotoS/GEtty
björt Ólafsdóttir, þingmaður bjartrar framtíðar, vill að hefndarklám verði gert refsi-
vert en umræðan hefur ekki verið sett á dagskrá á þingi. Fréttablaðið/StEFán
bara nýjar leiðir til að setja fólk
niður og innblásnar af klámi. Þetta
er haturs áróður um manneskjur.
Við verðum alltaf að vera á tánum,
það spretta upp nýjar og nýjar leiðir.
Þetta er grasserandi og meiðandi.
Við verðum að flýta okkur að koma
böndum á þessa glæpi áður en þeir
skaða fleira fólk.“
Fólk sem hefur orðið fyrir barð
inu á hefndarklámi hefur sett sig í
samband við Björtu. „Fólk er hissa
á því að það sé ekkert búið að gera.
Ef það er ekki refsivert að deila og
dreifa hefndarklámi þá linnir því
ekki. Það er ekki boðlegt. Skömmin
á að vera þeirra.“
inn blástur
frá klámi
sýna að ungt fólk er orðið miklu
tilraunaglaðara og er að sækja sér
hugmyndir í klámið. Hvort það sé
neikvæð eða jákvæð þróun er svo
spurning en það er allavega aug
ljóst að þessi tilraunagleði helst
ekki í hendur við meiri samskipti
við þá sem eru að taka þátt í kynlífs
athöfnum. Það er gengið út frá því
að allir séu alltaf tilbúnir,“ segir
hann.
Þórður segir augljóst að betur
megi gera í kynfræðslu fyrir ung
menni. Sums staðar sé vel staðið
að málum en víða sé henni ábóta
vant. „Við erum búin að vera að
færast aðeins í áttina með átökum
eins og til dæmis Fáðu já en ég held
við þurfum að taka alla kynfræðslu
miklu fastari tökum. Það er hægt að
matreiða svona kennslu fyrir yngri
börn. Það eru margir að gera þetta
vel en alls ekki allir. Það þyrfti ein
hver að taka þetta til og samræma,“
segir hann og nefnir að unglingum
finnist oft vanta meiri fræðslu. „Ég
held að akkúrat sú hugmynd að þú
verðir að fá samþykki sé mjög eftir
sóknarverð,“ segir hann.
lögin ná ekki utan um glæpi sem
snerta ungt fólk yfir lögaldri.“
Björt segir helst ungar konur
verða fyrir barðinu á hefndar
klámi. Rótin sé kúgun. „Þetta eru
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
7
-A
A
5
4
1
7
A
7
-A
9
1
8
1
7
A
7
-A
7
D
C
1
7
A
7
-A
6
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K