Fréttablaðið - 05.12.2015, Page 47
DUGNAÐUR
Elvar Örn Reynisson lætur ekki
veðrið aftra sér frá því að hjóla all-
an ársins hring. Hann segist horfa á
föstu bílana með vorkunnaraugum
þegar hann hjólar fram hjá þeim.
KLASSÍSK
Allar nánari upp-
lýsingar um jóla-
skeiðina má finna
á www.gam.is og
á Facebook undir
GAM – verslun
Guðlaugs A.
Magnússonar.
Verslun Guðlaugs A. Magnússonar við Skólavörðustíg var stofnuð árið 1924 og hefur um 69 ára
skeið boðið upp á jólaskeið með nýrri
hönnun á hverju ári en hver hönnunar-
lína telur tólf skeiðar. Það var árið 1946
sem Guðlaugur hannaði sína fyrstu jóla-
skeið sem smíðuð var úr sterling-silfri.
Skeiðin naut strax mikilla vinsælda á
meðal Íslendinga enda Guðlaugur ein-
stakur listamaður og hugmyndaflugi
hans fá takmörk sett.
Í dag er það barnabarn Guðlaugs,
Hanna Sigríður Magnúsdóttir, viðskipta-
fræðingur og hönnuður, sem sér um
hönnun jólaskeiðarinnar og rekstur
verslunarinnar.
Aðspurð segir Hanna Sigríður að það
hafi legið beinast við eftir daga föður
hennar heitins að halda heiðri afa síns
og föður á lofti með því að reka verslun-
ina áfram og taka við þar sem frá var
horfið. „Ég hef lifað og hrærst við með-
höndlun silfurs og fallegra hönnunar-
gripa allt mitt líf. Með þessari hönn-
unarlínu sem hófst 2013 vil ég heiðra
minningu föður míns og afa og arfleifð
mína.“ Jólaskeiðina í ár prýðir friðar-
dúfa ásamt búrgundírauðri emaleringu
en sá litur er tákn hins heilaga anda
og kærleikans að sögn Hönnu Sigríðar.
„Jólaskeiðin er því falleg gjöf í jólapakk-
ann og glæsilegur hönnunarsafngripur.“
Sjálf hefur Hanna Sigríður erft list-
fengi og hönnunaráhugann frá fjöl-
skyldu sinni og hefur m.a. hannað
fallega skartgripi ásamt fallegum orna-
mentum í formi snjókorna og engla.
„Innblásturinn að fyrsta englinum mín-
um kom til mín í gegnum veikindi föður
míns. Ég og við fjölskyldan vorum alltaf
að halda í vonina eins og gengur og ger-
ist þegar ástvinur veikist og á erfiðustu
köflunum þá var það vonin sem virtist
það eina sem ég átti eftir.“
Í kjölfar þessara tímamóta hannaði
hún fyrsta engilinn sinn sem hún kaus
að kalla engil vonar. „Sú hönnun fór svo
að vinda upp á sig og í dag hanna ég
nokkrar tegundir af englum, í nokkrum
stærðum og úr ólíkum efnivið eftir því
hvað við á. Englarnir mínir sem ég geri
úr silfri prýða bæði hálsmen og arm-
bönd og hægt
er að fá
eyrna-
lokka
líka.“
FALLEG JÓLASKEIÐ
GAM KYNNIR Friðardúfa prýðir jólaskeiðina í ár frá verslun Guðlaugs A.
Magnússonar. Ný jólaskeið kemur á hverju ári og hefur gert um 69 ára skeið.
LIFIR ÁFRAM „Með
þessari hönnunarlínu
sem hófst 2013 vil ég
heiðra minningu föður
míns og afa og arfleifð
mína,“ segir Hanna
Sigríður Magnúsdóttir.
MYND/ANTON BRINK
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
7
A
8
-3
E
7
4
1
7
A
8
-3
D
3
8
1
7
A
8
-3
B
F
C
1
7
A
8
-3
A
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K