Fréttablaðið - 05.12.2015, Síða 48
FÓLK|HELGIN
SETTI SÉR
MARKMIÐ
„Ég hjólaði alltaf í
vinnu og á heim
leiðinni tók ég
oft aukaleið til að
lengja túrinn. Það
eru fimm kílómetr
ar heiman frá mér
til vinnu en ég tók
alltaf 32 km í baka
leiðinni.“
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs-
endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala
og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið
ritstjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson
Sölumenn: Bryndís Hauksdóttir, bryndis@365.is, s. 512 5434
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429
Hönnun: Silja Ástþórsdóttir
E lvar Örn er menntaður matreiðslu maður og starfaði lengi sem slíkur, síðast á Kringlu
kránni. Nú starfar hann hins vegar
í Erninum og sameinar þar starf og
áhugamál. Hann segist ekki sakna
kvöld og helgarvinnunnar. „Ég tók
mér smá pásu frá kokkinum og færði
mig nær áhugamálinu,“ segir hann.
Elvar breytti um lífsstíl árið 2011
þegar honum fannst hann vera orð
inn of þungur. „Mér hefur alltaf þótt
gaman að hjóla en ég hafði ekki þann
tíma sem þurfti til að sinna áhugamál
inu. Einn daginn fékk ég nóg af sófa
kartöflu stílnum og ákvað að forgangs
raða lífi mínu öðruvísi. Þar fyrir utan
var ég farinn að hafa áhyggjur af fram
tíðinni. Ég fann vel fyrir því hversu
þungur ég var. Þótt ég væri í yfirvigt
var ég í ágætis formi því ég stundaði
alltaf líkamsrækt þrátt fyrir að finnast
hún leiðinleg. Einn daginn ákvað ég
að sleppa öllu gosþambi og minnka
nammiát. Ég drakk að minnsta kosti
tvo lítra af kóki á kvöldin. Eftir að ég
hætti því fann ég strax mun á vigtinni.
Samfara því tók ég síðan mataræðið í
gegn í skrefum,“ segir Elvar.
EKKI MEGRUNARKÚR
Hann fór ekki í neinn sérstakan
megrunar kúr en ákvað að taka alltaf
einn hlut út úr mataræðinu í einu.
Síðan var nauðsynlegt að vera í
stöðugri líkamsrækt. Ég setti mér það
markmið að hjóla alltaf ákveðið marga
tíma á viku. Stundum hjólaði ég mjög
mikið og ofkeyrði mig með tilheyrandi
þreytu á eftir. Ég reyndi því að finna
hinn gullna meðalveg í æfingum. Best
er að fara milliveginn og halda brennsl
unni stöðugri. Ég hjólaði alltaf í vinnu
og á heimleiðinni tók ég oft aukaleið
til að lengja túrinn. Það eru fimm kíló
metrar heiman frá mér til vinnu en
ég tók alltaf 32 km í bakaleiðinni. Eitt
skipti fannst mér ég vera að gefast
upp svo ég pantaði ferð til Danmerk
ur í hjólaferðalag. Það setti ákveðna
pressu á mig að komast í betra form.
Ég léttist um tíu kíló fyrir ferðina. Ég
hjólaði síðan í tólf daga um Danmörku
frá Kastrup til Sonnenborg þar sem
vinur minn býr og valdi ekki stystu
leiðina. Það var mjög skemmtileg ferð,“
segir Elvar.
60 KÍLÓ FARIN
Frá því Elvar hóf þennan feril hefur
hann misst tæp sextíu kíló. „Ég er
kominn í kjörþyngd en vil létta mig
örlítið meira. Núna er ég 92 kíló en
vil vera 86 kíló. Það er betra að vera
léttur á hjólinu. Í dag get ég hjólað
eins langt og mig langar til án þess að
finna fyrir þreytu. Þolið er orðið mjög
gott,“ segir hann.
Elvar lætur ekki veðrið aftra sér
frá því að hjóla til og frá vinnu. „Það
er skemmtilegt að hjóla í svona veðri
eins og við höfum upplifað í vikunni.
Veðrið er fallegt, ekkert rok, og það er
hressandi að hjóla. Það er gaman að
upplifa alls konar veður utandyra. Ég
er á breiðum naglalausum dekkjum
sem henta þessu færi. Síðan á ég ann
að hjól sem er á nagladekkjum. Maður
skiptir um eftir því sem þarf. Ég varð
vitni að árekstrum í vikunni og fjölda
fastra bíla. Ég vil heldur fara á hjólinu
en að vera fastur í bíl í marga klukku
tíma. Ég er í vindþéttum, millihlýjum
fötum, þarf ekki að vera dúðaður.“
ALLTAF FREISTINGAR
Elvar segist vera mikill nammikarl.
„Ég á mína nammidaga en reyni að
fara frekar í popp en eitthvað sætt. Ég
mun aldrei hætta að borða súkkulaði,“
segir kokkurinn og viðurkennir að
sér finnist ekkert leiðinlegt að borða.
„Aðgangurinn að hollum mat er orð
inn greiður og þess vegna útbý ég
grænmetisrétt í hádeginu og fæ mér
ávexti. Ég passa upp á að verða aldrei
svangur því þá er svo auðvelt að detta
í súkkulaði. Jólin eru engin undan
tekning fyrir mig, freistingarnar eru
allt árið í mínum huga, ekki eingöngu
á þessum tíma. Ég kvíði því ekkert jól
unum.“
Elvar ætlar að vera í Danmörku um
jólin ásamt unnustu sinni, Margréti
Thorlacius Friðriksdóttur. Þau kynnt
ust í gegnum hjólreiðarnar. Elvar á
tvær dætur með fyrri konu sinni.
„Með því að hjóla sameina ég lík
amsrækt og hreyfingu, áhugamál og
samgöngutæki. Auk þess er ég nátt
úruunnandi og hef gaman af því að
taka myndir og myndbönd. Ég sam
tvinna þetta allt og set síðan inn á
bloggið mitt ismadurinn.net,“ segir
hann.
Elvar er keppnismaður og hefur
tekið þátt í mörgum hjólreiðakeppn
um bæði hér á landi og erlendis. „Ég
hef fengið mjög góðan stuðning og
hvatningu frá félögum mínum í þessu
sporti.“ n elin@365.is
FÉKK ALVEG NÓG AF
SÓFAKARTÖFLUNNI
DUGNAÐUR Elvar Örn Reynisson komst í fréttirnar í vikunni sem hjólamaðurinn
mikli. Elvar lætur veðrið ekki aftra sér frá því að hjóla allan ársins hring. Hann
segist horfa á föstu bílana með vorkunnaraugum þegar hann hjólar fram hjá þeim.
NÝR LÍFSSTÍLL Elvar hefur misst tæp sextíu kíló eftir að hann breytti um lífs-
stíl. Hann hjólar alla daga ársins og finnur ekkert fyrir veðrinu sem aðrir kvarta
yfir. MYND/GVA
Bæjarlind 6 • S. 554 7030 Við erum á Facebook
Svartir stakir jakkar
kr. 17.900.-
str. 36-48
Góð gjöf
sem gleður
Opið
sunnudag
frá kl. 13-17
Kínverskar
gjafavörur
Skeifan 3j | Sími 553 8282 | www.heilsudrekinn.is
1
1
-1
2
-2
0
1
5
0
9
:2
9
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
3
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
7
A
8
-4
3
6
4
1
7
A
8
-4
2
2
8
1
7
A
8
-4
0
E
C
1
7
A
8
-3
F
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
1
3
6
s
_
4
1
2
2
0
1
5
C
M
Y
K