Fréttablaðið - 05.12.2015, Side 50

Fréttablaðið - 05.12.2015, Side 50
FÓLK| JÓL BAKSTUR „Ég hef nú ekki gert mikið af því að baka piparkökur í gegnum tíðina en núna kólnar varla ofninn enda myndi litlan mín vilja baka á hverjum degi með mömmu sinni.“ Tími kertanna er runninn upp. Fátt er notalegra í svartasta skamm-deginu en að lýsa það upp með fallegu kertaljósi. Þetta þekkir Marta Jonsson vel. „Það er ekkert betra en að kveikja kertaljós snemma morguns um helgi og öll jólin ef maður þarf ekki að vinna,“ segir Marta og bendir á að það sé allt önnur tilfinning að kveikja á kert- um snemma morguns eða um kvöld. „Það er hvort tveggja jafn yndislegt en afar ólíkar tilfinningar sem fylgja því.“ Marta viðurkennir að hún sé ansi ýkt þegar kemur að kertum. „Ég get alveg kveikt á upp í fimmtíu kertum í einu. Oft stekk ég inn í stofu og kveiki á nokkrum kertum bara til að hafa það kósí yfir tebollanum,“ segir Marta sem ferðast ávallt með kerti í töskunni. „Það er svo gott að fá sína eigin lykt í hótelherberg- ið,“ segir hún glaðlega. Daginn byrjar Marta með kertabaði. „Ég fór í dásamlegt kertabað í morgun eins og ég geri reyndar á hverjum morgni nema þegar ég fer í stuttar ferðir.“ Marta heillast bæði af fegurð kertanna og þeim frið sem þau veita. „Það er ein af mínum bestu stundum að sitja með te- eða kaffibolla við kertaljós.“ ILMURINN SKIPTIR MIKLU Marta segir kerti afar misjöfn. „Mér finnst gott að hafa smá ilm frá kertum en hef oft lent í því að kaupa kerti sem ég hef síðar þurft að henda af því lyktin var svo yfirgnæfandi,“ segir Marta sem er afar lyktnæm að eigin sögn og fær hausverk af reykelsum og ilmvötnum. „Nema Bulgari-ilmvatninu sem ég hef notað í fimmtán ár,“ segir hún glettin. Hún ákvað því að láta sérframleiða fyrir sig kerti sem hún væri ánægð með. Þau fyrstu komu á markað árið 2013. „Það tók mig heilt ár að gera glasið á fyrsta kertinu því það varð að vera ná- kvæmlega eins og ég hugsaði mér,“ seg- ir hún en kertin eru framleidd í Portúgal líkt og allir skórnir úr smiðju Mörtu. „Kertin sem ég framleiði eru með mildri vanillulykt og ég get haft kveikt á fimmtíu kertum án þess að hún pirri mig. Ég hef líka fengið pósta frá konum sem segja að fjölskyldan sé í fyrsta sinn sammála um að kertalyktin sé góð,“ segir hún. GÓÐ GJÖF Kerti Mörtu eru til í tveimur gerðum og af nokkrum stærðum. Þau fást í versl- unum Mörtu Jonsson á Laugavegi 51 og í Kringlunni. Marta segir endingu þeirra afar góða. „Minnsta kertið okkar getur brunnið í allt að 30 klukkutíma.“ Marta mæli með kertum sem gjöfum. „Það eru svo margir sem eiga allt og við vitum ekkert hvað á að gefa þeim, en það er alltaf hægt að gefa kerti þar sem viðkomandi kemur til með að nota þau.“ BAKAR MEÐ DÓTTURINNI Marta kveikir oft á kerti þegar hún bakar með dóttur sinni sem er fimm ára. „Ég hef nú ekki gert mikið af því að baka piparkökur í gegnum tíðina en núna kólnar varla ofninn enda myndi litlan mín vilja baka á hverjum degi með mömmu sinni,“ segir Marta hlæjandi meðan hún stekkur í rauðu lakkskóna sína enda að drífa sig í jólapartí. BYRJAR ALLA DAGA Á KERTABAÐI MARTA JONSSON KYNNIR Marta Jonsson skóhönnuður elskar kerti. Hún kveikir stundum á fimmtíu kertum í einu til að mynda notalega stemningu, og ferðast auk þess með kerti til að hafa á hótelherbergjum. Það er því ekki að furða að hún lætur framleiða fyrir sig kerti sem hún hefur sjálf hannað. NOTALEGT Marta kveikir iðulega á fjölmörgum kertum til að mynda notalega stemningu. Jólamarkaður Skálatúns verður haldinn á morgun á milli tíu og fjögur. Þar má finna mikið úrval af glæsi- legum handverksvörum sem margar hverjar eru einstak- ar og til í takmörkuðu upp- lagi. Starfsfólk Vinnustofu Skálatúns býður öllum að líta við og þiggja heitt kakó og piparkökur og upplifa skemmtilega jólastemningu auk þess að geta keypt fallegar jólagjafir eða eitthvað til að skreyta eigið heimili, svo sem leir- og glerverk, púða, skart, vefnað, kort og fleira. Markaðurinn verður haldinn í Búðinni Okkar sem er til húsa í Úthlíð við Skálatún en þar fást allar handverksvörurnar. Í Vinnustofum Skálatúns starfa um 35 manns með þroskahömlun. Þar er unnið að fjölbreyttum verkefnum, meðal annars er þar unnin handavinna þar sem sköpunargleðin ræður ríkjum. Þar má helst nefna vefnað, glervinnslu, útsaum, vélsaum, korta- og skartgripagerð. FALLEGAR JÓLAVÖRUR Á Jólamarkaði Skálatúns má finna fallegt handverk og gæða sér á gómsætum piparkökum og kakói. Jólasnjórinn verður í regnbogalitunum þann 12. desember þegar jóla- tónleikar Hinsegin kórsins fara fram í Neskirkju klukkan 19.30. Á dagskrá verða hýrir jólatónar í bland við dægurtónlist og popp. Spiluð verður tónlist Óðins Valdimars, David Bowie, Olly Murs og Tsjajkovskí. Kórinn syngur undir stjórn Helgu Margrétar Marzellíusar- dóttur en meðleikari kórsins er Jón Birgir Eiríksson. Uppselt er á fyrri tónleikana klukkan 17 og því var efnt til aukatón- leika klukkan 19.30. HÝR JÓL 40.000 fréttaþyrstir notendur Smelltu þér á Fréttablaðsappið og lestu blaðið hvar sem er og hvenær sem er. Fáðu Fréttablaðið ókeypis í spjaldtölvuna og snjallsímann með Fréttablaðsappinu. Nálgastu appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum: 1 1 -1 2 -2 0 1 5 0 9 :2 9 F B 1 3 6 s _ P 0 9 0 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 8 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 1 3 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 7 A 8 -3 E 7 4 1 7 A 8 -3 D 3 8 1 7 A 8 -3 B F C 1 7 A 8 -3 A C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 1 3 6 s _ 4 1 2 2 0 1 5 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.